Morgunblaðið - 17.10.2000, Blaðsíða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2000
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Alþjóðlegi fram-
takssjóður Bún-
aðarbankans
Fjárfest
í Frakk-
landi
fyrir 750
milljónir
ALÞJÓÐLEGI framtakssjóður
Búnaðarbankans hefur tekið
ákvörðun um að fjárfesta í franska
sprotasjóðnum Innovacom fyrir 10
milljónir evra eða um 750 milljónir
íslenskra króna. Til þess að fá að
fjárfesta í Innovacom þurfti Bún-
aðarbankinn að sækja um að fá að
fjárfesta í honum en forvígismenn
sjóðsins eru komnir í þá stöðu að
geta valið úr hópi áhugasamra fjár-
festa. Astæðan fyrir því að stjórn-
endur Innovacom völdu Alþjóða
framtakssjóð Búnaðarbankans var
áhugi á íslensku atvinnulífi vegna
hás tæknistigs sem endurspeglast
meðal annars í mikilli net- og far-
símanotkun, samkvæmt fréttatil-
kynningu frá Búnaðarbankanum.
Fjárfesting Alþjóða framtakssjóðs
Búnaðarbankans í Innovacom
markar upphafið að fjárfestingum
sjóðsins í framtaksfjárfestinga-
sjóðum Evrópu. Sjóðurinn getur
boðið fjárfestum mikla áhættu-
dreifingu á milli landa og atvinnu-
greina auk aðgangs að fremstu
áhættusjóðum heims sem margir
hverjir takmarka þátttöku með há-
um lágmarksfjárfestingum, Þannig
var lágmarksfjárfesting í Innova-
com til dæmis 10 milljónir evra.
Innovacom-sjóðurinn var stofnaður
fyrir tíu árum að frumkvæði
France Telecom sem er enn í dag
stærsti hluthafi sjóðsins. „Sjóður-
inn er leiðandi áhættufjárfestir á
franska markaðnum og kaupir sér-
staklega í fyrirtækjum sem tengj-
ast fjarskiptatækni og hefur á
undaförnum árum fjárfest á byrj-
unarstigum í nýjum fjarskipta-
fyrirtækjum sem náð hafa að
spjara sig vel. Sjóðurinn hefur átt
þátt í stofnun og þróun á meira en
250 fyrirtækjum sem tengjast
fjarskiptum," segir í fréttatilkynn-
ingu.
Össur hf. kaupir tvö sænsk stoðtækjafyrirtæki
Sala og dreifíng á
Norðurlöndum efld
ÖSSUR hf. hefur undirritað viljayf-
irlýsingu um kaup á öllum hluta-
bréfum tveggja sænskra stoðtækja-
fyrirtækja, Pi Medical AB og
Karlsson & Bergström AB. Sam-
eiginleg velta þessara tveggja fé-
laga er áætluð 668 milljónir ís-
lenskra króna og hagnaður fyrir
afskriftir 70 milljónir króna árið
2000, að frádregnum 5 milljóna
króna kostnaði sem fellur til hjá
sænsku fyrirtækjunum vegna sam-
einingarinnar. Ekki er gert ráð fyr-
ir að samlegðaráhrifa vegna kaup-
anna gæti fyrr en á næsta ári.
Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar
hf., sagði í samtali við Morgunblað-
ið að umrædd fyrirtæki hefðu dreift
annars vegar vörum Össurar hf. og
hins vegar vörum bandaríska fyrir-
tækisins Flex-Foot sem Össur
keypti síðastliðið vor. „Þetta eru
tvö sterkustu dreififyrirtæki í
Skandinavíu núna. Pi Medical var
reyndar fyrsti dreifiaðili Össurar
erlendis og fékk í rauninni alheim-
seinkaleyfi á sölu framleiðsluvara
Össurar til að byrja með, þannig að
það má kannski segja að nú sé eggið
að kaupa hænuna."
Auk dreifingar á stoðtækjum er
hluti veltu Pi Medical AB og Karls-
son & Bergstrom AB á sviði stuðn-
ingstækja, s.s. spelkur og belti, en
Össur hf. hefur fram að þessu ekki
haslað sér völl á þeim vettvangi.
Fyrirtækin sameinuð undir
nafninu Össur Nordic AB
Össur hf. greiðir fyrir hlutabréf
fyrirtækjanna með 6,9 milljón hlut-
um í Össuri hf. Miðað við það gengi
sem notað er í samningnum eru
þetta liðlega 442 milljónir króna að
undanskildum kostnaði tengdum
kaupunum. Hluti kaupverðsins, eða
tæplega 32%, verður einungis
greiddur út svo framarlega sem
ákveðin markmið náist í rekstri fyr-
irtækjanna. Náist þau markmið
ekki verður þessi hluti kaupverðs-
ins ekki greiddur. „Þetta er til þess
að minnka áhættu okkar af þessum
kaupum," sagði Jón.
Samstarf fyrirtækjanna mun
SKJALASKflPAR
einfaldlega betri
2
*
. 0
. o
IxO
Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar hf.
hefjast við undirritun á kaupsamn-
ingi, en þau verða síðan sameinuð á
næsta ári undir nafninu Össur
Nordic AB. Höfuðstöðvar nýja fyr-
irtækisins og dreifingarstöð birgða
verða í Uppsala í Svíþjóð, og fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins verður
Yvonne Meyer, en hún hefur verið
framkvæmdastjóri og aðaleigandi
Pi Medical AB. Eigandi Karlsson &
Bergström AB, Jonas Bergström,
verður sölustjóri hins nýja félags
og mun stýra sölu - og markaðsmál-
um þess. Hjá hinu sameinaða félagi
munu starfa átta sölumenn sem
eiga samskipti við viðskiptavini í
Svíþjóð, Noregi, Danmörku og
Finnlandi. Össur Nordic AB mun
einnig sjá um sölu og markaðssetn-
ingu til Eystrasaltsríkjanna.
Áætlaðar rekstrartekjur
3,3 milljarðar króna
Rekstraráætlun Össurar hf. fyrir
árið 2000 hljóðar upp á 3.210 millj-
ónir króna. Hagnaður fyrii' afskrift-
ir er 690 milljónir króna en gert er
ráð fyrir að samstæðuáhrifa vegna
kaupanna gæti einungis í tvo mán-
uði á þessu ári. Aætlaðar rekstrar-
tekjur samstæðunnar, að viðbætt-
um tekjum sænsku fyrirtækjanna
beggja, verða 3.321 milljón króna,
hagnaður fyrir afskriftir verði 702
milljónir króna og nettótap ársins
er áætlað 3.766 milljónir króna. Af-
skrift viðskiptavildar vegna kaup-
anna er áætluð 416 milljónir ís-
lenskra króna og mun öll upphæðin
verða gjaldfærð á þessu ári.
Jón Sigurðsson sagði að Össur hf.
væri í dag annað stærsta fyrirtæki
á sínu sviði, en ennþá væru mjög
mörg fyrirtæki starfandi í þessum
iðnaði. Aðspurður sagði hann það
vera inni í myndinni að kaupa fleiri
fyi'irtæki til að sameina samstæðu
Össurar hf.
„Við höfum ekkert breytt því sem
við höfum sagt áður að við erum
ennþá að skoða fyrirtæki í þessum
iðnaði, bæði dreifingar- og fram-
leiðslufyrirtæki. Auðvitað verður
það annars vegar að passa mjög vel
inn í framtíðarsýn okkar og hins
vegar þarf þetta að vera fjárhags-
lega raunhæft. Hvað varðar kaupin
á sænsku fyrirtækjunum þá er það
svo, því þetta eru fyrirtæki í ágæt-
um rekstri og skila mjög góðum
hagnaði bæði tvö,“ sagði Jón.
Norska ríkið samþykkir tilboð NBH í Kreditkassen
N orrænn risa-
banki verður til
BEDCO & MATHIESEN EHF
Bæjarhrann 10 - Sími 565 1000
Ósltí. Morgunblaðið
NORSKA ríkið hefur samþykkt til-
boð Nordic Baltic Holding (NBH),
eiganda sænsk-finnska bankans
MeritaNordbanken, í hlut ríkisins í
Ki-editkassen, öðru nafni Christiania
Bank. Norska ríkið á rúman þriðj-
ung í Kreditkassen og selur NBH
allan eignarhlut sinn fyrir sem svar;
ar 85 milljörðum íslenskra króna. í
tilboði NBH felst að greiddar verða
49 norskar krónur fyrir hvern hlut í
Kreditkassen og er það í samræmi
við gengi hlutabréfa Kreditkassen í
Kauphöllinni í Ósló síðustu daga.
Miðað við að allir hluthafar sam-
þykki tilboðið, greiðir NBH samtals
um 27 milljarða norskra króna fyrir
hlutabréfin eða um 245 milljarða ís-
lenskra króna. NBH býður einnig í
hlutabréf annarra hluthafa í Kredit-
kassen og hefur hluti þeirra þegar
gefið samþykki sitt. Nú þegar
norska ríkið hefur einnig veitt sam-
þykki sitt, má segja að NBH ráði yfir
60% hlutafjár Kreditkassen þar sem
NBH átti fyrir 10% hlutafjár. í til-
boði NBH er það skilyrði sett fyrir
kaupunum að aðrir hluthafar sam-
þykki einnig tilboðið sem stendur til
3. nóvember. Eftir viðskiptin mun
Kreditkassen sameinast bankasam-
stæðu MeritaNordbanken þar sem
danski bankinn Unibank er einnig
innanborðs. Stórbankinn mun því
hafa starfsemi í Danmörku, Finn-
landi, Noregi og Svíþjóð og verður í
forystuhlutverki á norrænum
bankamarkaði. Viðskiptavinir sam-
einaðs banka verða um 9 milljónir
einstaklinga og 700 þúsund fyrir-
tæki. Starfsmenn verða um 38 þús-
und.
Thorleif Ki'arup frá Danmörku
verður forstjóri sameinaðs non-æns
banka. A fréttamannafundi í gær
sagði hann að hlutabréf NBH yrðu í
framtíðinni skráð á öllum norrænu
kauphöllunum. Tom Ruud, forstjóri
Kreditkassen, mun verða einn af
stjórnendum NBH.
Sænski viðskiptavefurinn E24
greinir frá því að markaðsvirði NBH
hafi aukist um 36% frá ársbyrjun og
nemi nú 200 milljörðum sænskra
króna, þ.e. um 1.700 milljörðum ís-
lenskra króna. Félagið gæti nú þótt
áhugaverður fjái'festingarkostur
fyrir stórbanka í Evrópu, með sam-
einingu í huga.
Hækkað tilboð eftir
lokaða tilboðslotu
Lokatilboð NBH fékkst eftir lok-
aða tilboðslotu þai' sem þrír aðilar
gerðu tilboð. Ekki hefur fengist
staðfest hverjir það eru auk NBH,
en talið er að Svenska Handelsbank-
en hafi verið með fram á síðustu
stundu en að Bank of Scotland hafi
dregið sig í hlé fyrir nokkrum vikum,
að því er fram kemur í Aftenposten.
Tilboð NBH hljóðar upp á að
greiðslan sé eingöngu í reiðufé en
ekki hlutabréfum. Aftenposten
greinir frá því að tilboð Svenska
Handelsbanken hafi miðast við að
hluti greiðslu væri í hlutabréfum og
því hafi norska ríkið ekki viljað taka
tilboði sænska bankans.
Rúmt ár er síðan NBH lagði fram
fyrsta tilboð sitt í Kreditkassen og
framlengdi það síðast í síðustu viku,
fi'am til 20, október. Það tilboð hljóð-
aði upp á 44 norskar krónur á hlut en
vegna gagntilboðs Svenska Hand-
elsbanken, hækkaði NBH tilboð sitt
upp í 49 krónur á hlut. Á sunnudags-
kvöld bárust fréttir þess efnis að
norska ríkið hefði ákveðið að taka til-
boði NBH.
Karl Eirik Schjott-Pedersen,
íjái-málaráðherra Noregs, segir að
salan til NBH og sameining Kredit-
kassen og MeritaNordbanken bjóði
upp á áhugaverða þróunarmögu-
leika fyrir Kreditkassen. Norska
ríkið fær einum milljarði norskra
króna meira fyrir hlut sinn í Kredit-
kassen en samkvæmt gamla tilboð-
inu og fjármálaráðherrann segir að
það réttlæti frestun á sölu bréfanna,
sú ákvörðun hafi verið skynsamleg.
NBH býst við að samlegðaráhrif
af samruna MeritaNordbanken og
Kreditkassen verði 110 milljónir
evra eða um 8 milljarðar íslenskra
króna. Sparnaður mun nema 4,7
milljörðum íslenskra króna en
tekjur munu líklega aukast um 3,3
milljarða, að því er kemur fram í
fréttatilkynningu frá NBH.
Spurður um uppsagnir á starfs-
fólki bankanna, sagði Hans Dalborg,
forstjóri MeritaNordbanken, að hefð
hafi skapast fyrir því að sameiningar
verði án uppsagna. Meritabanken og
Nordbanken sameinuðust fyrir um
þremur árum og hafa síðan keypt
danska Unibank fyrr á þessu ári.
Hugsanleg sameining
DnB og Storebrand
Kreditkassen er önnur stærsta
fjármálastofnunin í Noregi. Salan á
bankanum er sú stærsta á norsku
fyrirtæki til útlanda til þessa, að því
er NRK greinir frá. Norðmönnum
virðist mikið í mun um að Den
norske Bank (DnB) verði ekki
keyptur af erlendri fjármálastofnun
eins og Kreditkassen nú og þar áður
norski bankinn Fokus Bank sem
keyptur var af Danske Bank. Síð-
ustu daga hafa umræður um samein-
ingu DnB og norska trygginga- og
íj árfestingarfélagsins Storebrand
gerst háværari. Þannig yrði til stór
alnorsk fjármálastofnun, sem aftur á
móti gæti kallað á athugasemdir
norska fjármálaeftirlitsins, að því er
m.a. kemur fram í Aftenposten.