Morgunblaðið - 17.10.2000, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2000 29
ERLENT
Réttarhöld stríðsglæpadómstólsins
vegna fjöldamorðanna í Srebrenica
Krstic segir menn sér
æðri bera ábyrgðina
Haag. AP, AFP.
Gífurlegt úrfelli, skriðuföll og flóð í Alpalöndum
Hugsanlegt að tugir
manna hafí farist
AP
Hús sem aurskriðan sundraði í þorpinu Gondo. Þar hafa fundist lfk
nokkurra manna en óttast er að 11 aðrir hafi orðið undir skriðunni.
Sion, Torínó. Reuters, AFP.
FLÓÐ og skriðuföll voru víða á
Norður-Ítalíu um helgina og þorpið
Gondo í sunnanverðum svissnesku
Ölpunum grófst í aur að hluta. Þar
fannst kona á lífi í skriðunni í gær
en talið er, að allt að 12 manns hafi
týnt lífi í þessum hamförum og allt
að 24 er saknað.
Urkoman í Ölpunum, á landa-
mærum Italíu, Sviss og Frakk-
lands, var 60 sm á tveimur dögum.
Olli það flóðum og skriðuföllum,
sem rufu í sundur vegi og lestar-
teina og brutu niður brýr. Á Ítalíu
hafa að minnsta kosti 3.000 manns
verið flutt frá heimilum sínum.
Fannst á lífí
undir aurskriðu
Björgunarmenn fundu í gær
konu á lífi í skriðunni, sem færði
hálft þorpið Gondo í Sviss á kaf á
laugardag. Þar er enn 11 manna
saknað og tveggja manna í ná-
grenninu. Þykja litlar vonir til að
fólkið finnist á lífi. Um 150 til 200
mapns bjuggu í þorpinu.
Á Ítalíu varð héraðið Valle
d’Aosta verst úti en þar hafði rignt
mikið í fimm daga samfleytt. Er
þetta mesta úrfelli á þessum slóð-
um og mestu flóð frá árinu 1994
þegar 68 manns týndu lífi. Mann-
fallið var þó meira fyrir tveimur
árum en þá fórust 147 manns af
völdum skriðufalla í sunnanverðu
Campania-héraði. Hin mikla iðnað-
arborg Torínó í Pódalnum var í
gær einangruð vegna flóða í fljót-
unum á þessum slóðum, Po, Doria
Riparia, Stura og Sangone, og var
búist við því í gær, að Po myndi
flæða yfir bakka sína þá síðar um
daginn. Neyddust Fiat-verksmiðj-
urnar til að loka tveimur verk-
smiðjum sínpm í borginni vegna
ástandsins. I Mílanó voru lestar-
samgöngur að komast í lag í gær
en allt skólahald lá niðri. Voru víða
miklar rafmagnstruflanir.
Lýst yfír neyðarástandi
Italska ríkisstjórnin ætlaði í gær
að lýsa yfir neyðarástandi í þeim
héruðum þar sem ástandið er verst
og hefur fólk verið hvatt til að
sjóða allt drykkjarvatn. Hafa flóðin
víða sópað burt vatns- og skolp-
leiðslum og er talin hætta á, að
sjúkdómar komi upp ef ekki er var-
lega farið.
Heldur var farið að draga úr úr-
komu í gær og til fjalla hafði hún
breyst í snjókomu.
RÉTTARHÖLD hófust aftur í gær í
máli Radislav Krstic, fyrrverandi
hershöfðingja í liði Bosníu-Serba, en
hann er sakaður um að hafa skipu-
lagt skelfilegustu glæpaverkin í
Bosníustríðinu, morð á allt að 8.000
manns í borginni Srebrenica. Verj-
andi hans sagði i gær, að hann hefði
ekki borið ábyrgð á morðunum,
heldur aðrir menn honum hærra
settir.
Nenad Petrusic, verjandi Krstic,
sagði, að skjólstæðingur sinn hefði
ekki borið ábyrgð á morðunum og
hélt því fram, að í serbneska hernum
í Bosníu hefði verið annað og æðra
skipanaferli, sem Krstic hefði ekki
vitað um. Hann hefði hvorki fengið
skipanir um að taka Srebrenica né
um hroðaverkin, sem á eftir fylgdu.
Krstic hefur áður borið, að Ratko
Mladic, yfirmaður hers Bosníu-
Serba, hafi skipað fyrir um morðin.
Drinuúlfarnir í
raorðverkunum
Krstic, sem er hæstsetti herfor-
inginn úr liði Bosníu-Serba, sem
komið hefur fyrir stríðsglæpadóm-
stólinn í Haag, er ákærður fyrir að
hafa stjórnað morðunum í Srebren-
iea, sérstökum „griðastað" Samein-
uðu þjóðanna, en þangað höfðu þús-
undir múslima flúið. Attu morðin sér
stað undir lok Bosníustríðsins og
fullyrt er, að herdeild undir stjórn
Krstic, Drinuúlfarnir, hafi staðið að
þeim.
AP
Radislav Krstic er hann kom
fyrir réttinn í gær. Hann er sak-
aður um að hafa skipulagt morð
á nærri 8.000 múslimum, karl-
mönnum og drengjum, í Srebr-
enica í Bosníu.
Krstic kom fyrir réttinn í gær og
lýsti því hvað hann hefði tekið nærri
sér er Bosníustríðið hófst og fyrrum
vinir, múslimar og Serbar, tekið upp
vopn hvorir gegn öðrum. Þá kvaðst
hann ekki hafa tekið við Drinuúlfun-
um fyrr en hálfum mánuði eftir
fjöldamorðin í Srebrenica.
Síðan réttarhöldin yfir Krstic hóf-
ust fyrst 13. mars sl. hefur fjöldi
vitna lýst blóðbaðinu í Srebrenica og
skýrt hefur verið frá því hvernig
Serbar reyndu að fela ódæðið með
því að fela hkin í fjöldagröfum, taka
þær síðan upp og grafa líkin annars
staðar.
Karadzic og Mladic
enn lausir
Rrstic er sakaður um þjóðarmorð,
fyrir að hafa næstum útrýmt öllum
múslimum á svæðinu, og einnig fyrir
glæpi gegn mannkyni og fyrir að
hafa brotið þau lög, sem gilda um
stríðsrekstur. Á hann lífstíðarfang-
elsi yfir höfði sér.
Sagt er, að Krstic hafi verið náinn
samverkamaður Mladic og Radov-
ans Karadzic, fyrrverandi leiðtoga
Bosníu-Serba, en þeir ei-u báðir eft-
irlýstir stríðsglæpamenn.
Kosningar til fylkisþingsins í Steiermark í Austurrflri
Vínarborg. AFP. ^ ^
FPO tapar fylgi
FRELSISFLOKKURINN í Aust-
urríki (FPÖ) tapaði um fjórðungi
atkvæða í fylkisþingkosningum í
Steiermark um helgina, miðað við
síðustu kosningar í héraðinu. Þetta
var fyrsta raunverulega prófraunin
á vinsældum flokksins, sem hinn
umdeildi Jörg Haider fór fyrir þar
til fyrir skömmu, frá því flokkurinn
fékk aðild að austurrísku ríkis-
stjórninni í byrjun febrúar sl.
Frelsisflokkurinn fékk 12,4%
fylgi í kosningunum um helgina,
nærri 5 prósentustigum minna en
fyrir fimm árum. íhaldsflokkurinn
ÖVP, sem situr í ríkisstjórninni í
Vín með Frelsisflokknum, vann
mikið á í kosningunum og fékk nú
yfir 47% fylgi, 11% meira en síðast.
Jafnaðarmenn, sem nú eru í
stjórnarandstöðu á þinginu í Vín,
fengu 32,4% atkvæða í kosningun-
um í Steiermark um helgina, 3,5%
minna en í síðustu fylkiskosning-
um.
Fréttaskýrendur í Austurríki
kepptust í gær um að túlka þessi
úrslit sem áfall fyrir samsteypu-
stjórnina í Vín. Þykja úrslitin stað-
festa þá þróun í afstöðu kjósenda,
sem skoðanakannanir hafa bent til,
en hún er sú að Frelsisflokkurinn
hríðtapi fylgi eftir að hann er ekki
lengur í stjórnarandstöðu heldur
farinn að axla ábyrgð á landstjórn-
inni.
KIA Pride Staðalbúnaður:
Samlitir stuðarar, vökvastýri, snúningshraðamælir, loftpúði f. ökumann, afturhurð og bensíniok opnanleg innanfrá, 2 höfuðpúöar, bíl-
beltastrekkjarar, þurrkutöf, barnatæsingar, þokuljós að aftan, litað gler, hiti í afturrúðu, geymsiuvasar í framhurðum, útvarp og segulband,
4 hátalarar, rafmagnsloftnet, stafræn klukka, hreyfiltengd þjófavörn, rafmagn i rúðum að framan, hliðarspeglar stillanlegir innanfrá.
KIA Pride kostar aðeins
799.000
i :í ms
'ride
Nýr bíll á verðl notaðs!
KIA Pride er fullbúinn fólksbíll á verði sem flestir kannast við
á notuðum bílum en ekki glænýjum bílum. KIA Pride er knúinn
1330cc vél sem skilar 73 hestöflum, 5 gíra og með rafeinda-
stýrðri EGI fjölinnsprautun. KIA Pride kemur með
staðalbúnaði sem sýnirsvo ekki verður um villst
að hjá KIA fæst mikið fyrir peningana.
FLATAHRAUNI 31 • HAFNARFIRÐI • SÍMI 555 6025 • www.kia.is