Morgunblaðið - 17.10.2000, Side 37

Morgunblaðið - 17.10.2000, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2000 37 Allt hefur sinn tíma Morgunblaðið/Halldór B. Runólfsson Tíminn og ég, frá 1967, er ein af fjölmörgum eftirminnilegum myndum Rósku í Nýlistasafninu. Róska ræðir um lifandi þjóðtrú okkar og gildi hennar fyrir íslenska menningu. MYNDLIST Njlistasafnið MÁLVERK & TEIKNINGAR - RÓSKA Til 19. nóvember. Opið þriðjudaga til sunnudaga frá kl. 14-18. RAUÐ er síðasta sýningin af fána- litasýningum Nýlistasafnsins í tilefni af árþúsundinu sem nú kveður og nýju sem gengur í garð. Jafnframt er þetta eina sýningin í trílógíu safnsins af menningarborgasýningum 2000 sem helguð er einum listamanni. En það er enginn einkasýningarbragur á framkvæmdinni því Róska var eng- inn venjulegur listamaður heldur andríki og andrá heillar kynslóðar, holdi klædd, eins og reyndar kemur vel fram á sýningunni. Þá fylgir sýningarskrá framtak- inu, nokkuð sem hefur verið alltof sjaldgæft í tengslum við sýningar Nýlistasafnsins. Skráin er hartnær tvö hundruð síður, einstaklega vönd- uð, fagurlega myndskreytt og prýdd fjölda litmynda, vel umbrotin og kappfull af upplýsingum um listakon- una og tíðarandann sem einkenndi líf hennar og list. Metnaðurinn sem er hvarvetna í fyrirrúmi við gerð þess- arar langþráðu sýningar - en Nýl- istasafnið bauð Rósku að undirbúa yfirlitssýningu á verkum sínum árið 1996, sama ár og hún lést - ber vott um þá virðingu og aðdáun sem lista- konan naut alla sína alltof stuttu ævi. I staðinn fyrir að dvelja við aug- ljósa drætti í list Rósku og tíunda pólitíska afstöðu hennar - hvort tveggja kemur afar skýrt fram í sýn- ingu og sýningarskrá - er vert að skyggnast ögn ofan í þætti sem vefj- ast fyrir þeim sem sjá sýninguna. Menn virðast sumir hverjir til dæmis eiga erfitt með að staðsetja Rósku, átta sig á sérstöðu hennar og meta hana að verðleikum. Minni okkar sýnir sig oftar en ekki vera skamm- tímaminni sem glatað hefur raun- verulegum forsendum til að meta mikilvægi hlutanna þegar þeir eru ekki lengur bundnir nútíðinni en taka að hverfa til fortíðar. Þannig er það með Rósku eins og svo marga aðra Súmmara að þeir verða ekki dæmdir blákalt af leifunum sem eftir þá liggja. Reyndar er stórhættulegt að byggja listasöguna einvörðungu á verksummerkjum þeirra hluta sem til eru en gleyma því sem til var sáð þótt það félli ef til vill í grýtta jörð. Hver væri staða Leonardó í listasög- unni ef horft væri framhjá tilraunum hans og dagbókadraumum og ein- ungis tekið mið af því sem hann klár- aði og gekk frá til frambúðar? Fjöl- mörgum listamönnum í sögunni tókst að tjá hugmyndir sínar með þróttmiklum hætti án þess að full- gera það sem þeim bjó í brjósti. Antonin Artaud, Raymond Rouss- el og Carl Fredrik Hill eru fáein dæmi um slíka listamenn. Þrátt fyrir takmörk sín tókst þeim að hafa af- gerandi áhrif á afstöðu kynslóðanna sem á eftir komu. Reyndar eru til listamenn sem gáfu okkur ómetan- legan lykil að leyndardómum sköp- unargáfu sinnar með því að skilja eft- ir glás af hálfköruðum verkum. Þeirra á meðal var ekki ómerkari listamaður en Cézanne. Sýningin Rauð í Nýlistasafninu bregður einmitt skýru ljósi á þetta atriði í listamannsferli Rósku. Bakvið skenkinn í kaffistofunni er til að mynda frábær myndbútur á sjón- varpsskjá þar sem Róska fjallar um þjóðtrú Islendinga í tengslum við handrita- og kvikmyndagerð sína. Hafí mönnum einhvem tíma fundist hún óskýr í hugsun þegar hún var að miðla hugmyndum sínum ættu þeir að fylgjast með því hve vel og skil- merkilega hún lýsir einstæðri álfatrú okkar og ályktunum sem draga má af slíkri hjátrú. Það er enginn vafi að hún var næmari á ýmsa menningar- lega eðlisþætti þjóðar sinnar sem lágu ónýttir og hálfgleymdir en gátu gegnt mikilvægu hlutverki í tilraun- um okkar til að endurheimta sterka og frumlega sjálfsmynd. I kaffistofunni er sömuleiðis hið frábæra málverk Tíminn og ég, frá 1967. Hvergi kom Róska betur til skila vanda okkar gagnvart hraða til- verunnar; eru þó fjölmargar teikn- ingar hennar til marks um erfiðleik- ana við að standa stöðugum fótum í ölduróti daganna. Eitt af óvægnustu lögmálum tíðarandans á ofanverðum sjöunda áratugnum var krafan um allt eða ekkert. Það var ekki aðeins listin og pólitíkin sem settu Rósku ákveðna úrslitakosti um fylgispekt heldur var mönnum gert að velja milli sjálfra sín og allra hinna. Lista- mennska krefst ómældrar sjálfs- fylgni meðan pólitíkin heimtar skil- yrðislausa hópfylgni. En ef til vill endar tilvera flestra hvort eð er í geð- klofnu reiptogi tveggja ofurkrafta. Að því leytinu er engum sama um llk- ama okkar og sál. Þessi tví- skinnungur tilverunnar kristallast best í japanska kontóristanum sem verður að gera upp á milli drykkjus- valls með forstjóranum eftir vinnu og baðferðar með konunni og bömun- um. Vera má að Róska hafi fórnað líf- inu í tilraun sinni til að sætta and- stæður síns stríða sjálfs. List hennar ber þó með sér sannleikann um þessa glímu og það er meira en sagt verður um þá listamenn sem þykjast geta setið ofar öllum veraldlegum þver- stæðum og stjómað gjörðum sínum eins og almáttugir verktakar. Sann- leikurinn í list Rósku er einmitt fólg- inn í hreinskilni hennar gagnvart til- finningum sínum. Það getur varla farið framhjá nokkrum gesti Nýlista- safnsins svo sjaldgæft er að íslend- ingur opni hjarta sitt með svo eðlileg- um og sjálfsögðum hætti. Halldór Björn Runólfsson Félaq viðskiptafræðinqa og hagfræðinga Skattlagning erlendra eignarhaldsfélaga á íslandi Fétag viðskiptafræðinga og hagfræðinga mun nk. miðvikudag, 18. október, efna til hádegisverðarfundar um skattiagningu erlendra eignarhaldsfélaga á íslandi. Fundurinn fjallar um hvernig íslenskar skattareglur taka á erlendum lögaðilum, sem verða undir vissum kringumstæðum, vegna tiltekinna tekna, skattskyld á íslandi. Þannig nær þetta bæði til erlendra eignarhaldsfélaga og til aflandsfélaga eða félaga í skattaparadísum erlendis. Ámi Harðarson lögfræðingur hjá Deloitte & Touche, mun fara yfirþær reglurá íslandi sem gera það að verkum að það sé hagstætt að stofna þannig félög og hvað í reglunum er óhagstætt fyrir þau. Einnig mun hann reifa hugsanlegar breytingar sem gætu orðið á íslenskum skattalögum varðandi þessi félög og skattlagningu söluhagnaðar á hlutabréfum. PéturA. Haraldsson framkvæmdastjóri ITC á íslandi, fjallar um hvað þurfi að gera til þess að stofna aflandsfélög. I pallborðsumræðu um málið munu sitja fyrir svörum Árni Harðarson, PéturA. Haraldsson, Vala Valtýsdóttir lögfræðingur hjá KPMG, Auður Ósk Þórisdóttir löggiltur endurskoðandi hjá Íslandsbanka-FBA, Indriði H. Þorláksson Ríkisskattstjóri og Kristján Gunnar Valdimarsson forstöðumaður skattaráðgjafar hjá Búnaðarbankanum Verðbréfum og stundakennari í skattarétti við Háskóla íslands. Fundurinn verðurá Radisson SAS, Ársölum og stendur hann frá kl. 12:00-14:00. Verð fyrir félagsmenn FVH er kr. 2.000 en 3.000 kr. fyrir aðra. Innifalinn er léttur hádegisverður ásamt kaffi/te. Nánari upplýsingar fást á www.toyota.is bíta var að renna í hlað Við hjá Toyota - betri notuðum bílum höfum fengið fjöldann allan af góðum og traustum Toyota Yaris á sölu á Nýbýlaveginum. Bílarnir, sem allir eru mjög nýlegir og koma frá Bílaleigu Flugleiða, hafa fengið gott og reglulegt eftirlit og eru allir í ábyrgð. <$g) TOYOTA Betri notaðir bílar Simi 570 5070

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.