Morgunblaðið - 17.10.2000, Side 47

Morgunblaðið - 17.10.2000, Side 47
Amerísku heilsudýnumar MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2000 47 , UMRÆÐAN Þú borgar fyrir 2 daga en færð 3 Afcrane^ij Blóðbankinn verður með blóðsöfnun og skráningu nýrra blóðgjafa á Akranesi þriðjudaginn 17.október í Safnaðarheimilinu Vinaminni klukkan 10:00-18:00. Blóðgjöf er lífgjöf. (Kblóðbankinn ^ - geföu meö hjarta AV/S Sími: 533 1090 Fax: 533 1091 E-mail: avis@avis.is Dugguvogur10 vinnuframlagi kvenna. Verið er að undirbúa göngu og útifund í Reykja- vík á þeim degi. 23 frjáls félagasam- tök og stéttarfélög munu standa að „Heimsgöngu kvenna gegn örbirgð og ofbeldi" í Reykjavík. Safnast verðm' saman á Hlemmi kl.17.30 og gengið niður Laugaveg að Ingólfs- torgi, þar sem haldinn verður úti- fundur. Ekki er ætlunin að halda minningarathöfn um kvennafrídag- inn þótt hans sé minnst, heldur von- umst við til þess að þessi dagur sýni að okkur hafi eitthvað miðað á síð- asta aldarfjórðungi og konur og karlar sjái ástæðu til að sameinast undir kröfunum: Gegn örbirgð og of- beldi. Höfundur er bókasafnsfræðingur. Siðlaust réttarástand Fæst í apótekum o— Jón Steinar Gunnlaugsson Arkopharma ir Jdn Steinar Gunn- iaugsson, að réttlæta siðferðislega slíka nið- urstöðu. séu þá uppfyllt lögmælt skilyrði. Hagsmunir ríkisins af því að upp- lýsa afbrot eru taldir réttlæta slíka heimild. Við viðurkennum hins veg- ar, að engum manni megi refsa, m.a. með frelsissviptingum, nema sannað sé að hann hafi brotið refsi- lög og þau heimili refsinguna. Þeg- ar við leyfum frelsissviptingar til bráðabirgða í rannsóknarþágu, þ.e.a.s. gæsluvarðhald, erum við að taka þá hagsmuni að upplýsa sakir fram yfir þá hagsmuni að ekki megi fangelsa menn nema þeir hafi sann- anlega til þess unnið. Þetta er nauð- synlegt að gera, í því skyni að halda uppi lögum og reglu í landinu. Ef á hinn bóginn ekki tekst að sanna sök á þann, sem sviptur hef- ur verið frelsi, telst hann saklaus. Frá þeirri niðurstöðu má ekki veita afslætti. Þá hefur saklaus maður verið látinn sæta frels- issviptingu um lengri eða skemmri tíma, í tilviki Kio Briggs um nær 9 mánaða skeið. Það er í sjálfu sér döp- ur niðurstaða, að eðli- leg réttarframkvæmd skuli í sumum tilvikum þurfa að leiða slíkt af sér. Það er þó óhjá- kvæmilegt. Það er hins vegar með öllu siðlaust réttarkerfi, sem í ofanálag segir við manninn: Það er ekki nóg með að þú skulir hafa þurft að sitja inni í 9 mánuði, án þess að hafa til þess unnið, held- ur verður þú sjálfur að bera af því kostnaðinn og miskann. Þú færð engar bætur fyrir. Það blasir auð- vitað við, að sá aðili sem átti þá hagsmuni sem leyfðu frelsissvipt- inguna, þ.e.a.s. ríkisvaldið í þágu al- mennings, ætti að bera kostnaðinn. Það er aldrei hægt að réttlæta siðferðislega slíka niðurstöðu sem þessa með hugleiðingum um, að maðurinn kunni að hafa verið sek- ur, þrátt fyrir sýknudóminn, eða að hann hafi „átt þátt í því“ að vera sviptur frelsi með því að svara spurningum rannsóknarmanna á torkennilegan hátt. Fyrir slíku kunna að vera alls kyns ástæður. Þá og því aðeins að það sannist á manninn að hafa vísvitandi viljað afvegaleiða rannsóknarmenn í því skyni að verða sviptur frelsi, ætti að synja honum um bætur. Efist menn um réttmæti þess sem hér hefur verið sagt vegna for- dóma um þennan tiltekna mann, ættu þeir að setja sig í þau spor að verða sjálfir sviptir frelsi í þágu rannsóknar á broti sem þeir hafa ekki framið. Þá finna þeir rétta svarið. Höfundur er hæstaréttarlögmaður. ÉG FÆ ekki varist þeirri hugsun, að eitt- hvað sé athugavert við réttarástand sem leyf- ir, að maður sé af handhöfum ríkisvalds sviptur frelsi sínu um nær 9 mánaða skeið, án þess að hafa sann- anlega til saka unnið, og síðan synjað um bætur vegna frelsis- sviptingarinnar. Þetta gerðist í síðustu viku, þegar Hæstiréttur synjaði þekktum sak- borningi, Kio Briggs, um bætur. í lögum eru, svo sem sjálfsagt er, heimildir til að svipta menn frelsi til bráðabirgða í þágu rannsóknar á afbrotum, þó að engin sök hafi á þá sannast, enda Pað er aldrei hægt, seg- HEILSAN AÐ BILA EÐA BILUÐ? Verkiro.fi. Kynning á yfirdýnum með stillanlegu tifandi segulsviði. í Þingsal nr. 8, Hótel Loftleiðum Miðvikudagskvöldið 18. október kl. 21.00 Tvíblindar vísindarannsóknir staðfesta mjög góð óhrif stillanlegra segulsviðsbylgna. Einföid í notkun! Með hjálp lítillar tölvu, stillir þú á þá tíðni segulbylgna, sem þú vilt fá í hvert sinn sem þú hvílir þig eða sefur. Tifandi segulsvið getur hugsanlega bœtt úr hjó þér og aukið vellíðan þína. Uppl. í síma 4834840, netpóstur: natthagi@centrum.is é Slð> Iðnbúð 1,210 Garðabæ sími 565 8060 Collection : írö..:.. Skipholti Sími : 588-1955 Heimsganga kvenna gegn örbirgð og ofbeldi I DAG, þriðjudaginn 17. október, eru saman komnar í New York konur víðs vegar að úr heiminum til að fylgja eftir kröfum þeirra fjölmörgu sem krefjast þess að Sameinuðu þjóðirnar og þær þjóð- ir, sem aðild eiga að Sameinuðu þjóðunum, hefji raunhæfar að- gerðir til að vinna gegn fátækt og ofbeldi í heiminum. Snemma í morgun lagði hópur 159 hjólandi kvenna af stað frá Bronx-hverfí áleiðis til aðalskrif- stofu Sameinuðu þjóðanna. í far- teskinu hafa þær yfir þrjár milljónir undirskrifta. Þar á meðal eru nöfn þeirra íslendinga, kvenna og karla, sem safnað var hér á landi í sumar. Kofi Annan, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, mun taka á móti hópnum og nokkrar konur hafa verið valdar sem fulltrúar hópsins. Þær munu sitja fund þar sem aðalritaranum verða afhentir undirskriftalistarnir. Hvernig er þetta til komið? Þetta byrjaði í Kanada í júnímán- uði 1995 en þá tóku nokkur hundruð konur sig til og gengu í tíu daga um sveitir landsins undir formerkjunum María S. Gunnarsdóttir „gegn fátækt". Þetta uppátæki vakti mikla athygli og þegar hóp- urinn kom til Québec söfnuðust 15 þúsund manns út á götu til taka undir kröfur þeirra. A kvennaráðstefn- unni í Beijing kom upp hugmynd um alþjóð- lega kvennagöngu árið 2000. Hún var rædd á málþingi frönskumæl- andi kvenna og vakti mikla hrifningu. í októ- ber 1998 komu saman 200 konur frá 60 lönd- um og hófu að setja saman stefnuskrá að- gerðanna. Það plagg hefur þróast í meðförum og teljum við nú að stór hópur fólks muni finna hjá sér þörf til að ganga með okkur. Ástæður til að ganga I hvernig heimi búum við? Við bú- um í heimi, þar sem ennþá viðgengst djúpstætt og óréttlætanlegt misrétti milli kvenna og karla, milli þjóða í norðri og þjóða í suðri, milli þjóða í austri og vestri og innan sömu þjóð- ar milli ríkra og fátækra, milli yngri kynslóðar og eidri borgara, milli þéttbýlis og dreifbýlis, milli manna og náttúru. Við búum í heimi mikilla tækniframfara, þar sem gífurleg Fátækt Milljarðar jarðarbúa eru atvinnulausir, segir María S. Gunnars- dóttir, og án lágmarks- viðurværis. aukning hefur orðið á framleiðslu iðnaðar- og landbúnaðarvara og bylting hefur orðið í samskiptum. En efnahagskerfi þessa heims, sem snýst um einkavæðingu, er mjög ómanneskjulegt og milljarðar jarð- arbúa eru atvinnulausir og án lág- marksviðurværis. Það er mótsagna- kennt að í samfélagi sem sífellt verður ríkara eru stöðugt fátækari einstaklingar. Ganga og útifundur í Reykjavík Hinn 24. október verða liðin 25 ár frá hinum svokallaða kvennafrídegi þegar íslenskar konur lögðu niður vinnu til að vekja athygli á PHYTO SOYA JUR.TA ÖSTROGEN BATMAN ER MÆTTUR MYNDASÖGUBLAÐIÐ ZETA www.nordiccomic. com Réttarfar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.