Morgunblaðið - 17.10.2000, Qupperneq 67
MÖRGUNBLÁÐIÐ ÞRIÐ3ITDÁÖUÉ Ýf. OKTÓBER 20Ó0 67
FÓLK í FRÉTTUM
Okkar maður í „auteur“-stellingum; leikstjóri og handritshöfundur
Staying Alive (framhalds Saturday Night Fever), ásamt sljörnunni John
Travolta. Utkoman var bágborin.
Rambo (Stallone) í fautahöndum smábæjarfógeta (Jack Starrett), sem
gerir sér ekki grein fyrir hvað hann er að kalla yfir sig og samfélagið.
tír First Blood.
MYNDBOND
Að fornum*'
sið eða
fram á við?
Allt er gott að austan
(East is East)
G a m a n / U r a ni a
★★★% t
Leikstjóri: Damien O’Donnell.
Handrit: Ayub Khan-Din eftir eigin
lcikriti. Aðalhlutverk: Om Puri.
Linda Bassett. 92 mín.
Bretland 1999. Háskólabíó.
Öllum leyfð.
SYLVESTER STALLONE
MENN koma, sjá og sigra í kvik-
myndaheiminum sem aimars stað-
ar. Einn sá minnisstæðasti á seinni
hluta kvikmyndaaldarinnar, einsog
sú 20. er gjarnan kölluð, er diinm-
raddaður Bandaríkjamaður af ít-
ölskum uppruna. Heitir Sylvester
Stallone, og komst á hvers manns
varir eftir að hafa slegið í gegnum
allan heim sem handritshöfundur,
leikstjóri og aðalleikari metaðsókn-
armyndarinnar Rocky (’76). Enn
eina ferðina var hann í fréttunum í
síðustu viku, þegar nýjasta myndin
hans, Get Carter, var frumsýnd. Nú
var enginn Rockybragur á hlutun-
um, myndin þykir vond og ekki
komast í hálfkvisti við þá gömlu
með Michael Caine. Lánið hefur
ekki leikið við Stallone síðasta ára-
tuginn; hann er fallandi stjarna.
Illar tungur segja að hinn krafta-
legi Stallone hafi leikið í nokkrum
dökkbláum kvikmyndum áður en
hann fékk sitt fyrsta hlutverk, í
unglingamyndinni Tlie Lords of
Flatbush (’74). Leikhópurinn er for-
vitnilegur, skipaður nánast ókunn-
um ungleikurum sem allir áttu eftir
að spjara sig meira og minna; Pery
King, Henry Winkler, Susan Blak-
ely og Armand Assante. Myndin
markaði lítil spor, Stallone varð
ekki sýnilegur í Hollywood fyrr en
ári síðar í Deathrace 2000, Corman
B-mynd, sem naut talsverðra vin-
sælda. Var m.a. sýnd við mikla
lukku hér heima í Tónabíói. Catin-
onball, sem kom ári síðar, var af
svipuðu sauðahúsi.
Ungi leikarinn stefndi hærra en
að vera í næststærstu hlutverkum
B-mynda. Undanfarin ár hafði hann
verið að slípa og betrumbæta hand-
rit um vonlítinn hnefaleikara í Ffla-
delfíú, sem tekst hið ómögulega;
sigrar heiminn. Stallone gaf sig
aldrei í baráttunni við risaveldi iðn-
aðarins, stóð föstum fótum á því að
fá að fara með aðalhlutverkið og
láta handritið halda sér nokkurn
veginn óbreytt. Þetta gekk eftir og
framhaldið cr skráð í sögubækurn-
ar.
Sjálfur kemur Stallone (f. ’46),
frá sundruðu heimili í Hell’s Kitch-
en, liinu illræmda hverfi í vesturbæ
Manhattan. Foreldrarnir nætur-
klúbbadansmær og ítalskur inn-
flytjandi. Fæddist með fæðingar-
galla, hluti af vörum og talfærum
lamað og þaðan á sérkenni raddar-
innar, sem sumir telja næsta illskilj-
anlega, rætur sínar að rekja. Á ís-
lensku mætti kalla hana
grafarrödd. Af þessum ástæðum
hélt Stallone litli sig mest heima
fyrir, var veikinda- og mæðulegt
krakkaskinn. Foreldrarnir áttu
jafnan í illdeilum. Fyrstu áiin var
Stallone mikið á fósturheimilum og
stofnunum og segir leikarinn að
áhugi hans á leiklist hafí vaknað við
að vekja athygli og umhyggju þess
ókunnuga folks sem gekk honum í
foreldrastað á fyrsta áratugnum í
lífi hans. Faðir hans og móðir
reyndu að hcfja nýtt líf í Maryland
þegar Stallone var enn kornungur,
en áhugi þeirra á Stallone og Frank
bróðir hans, var takmarkaður sem
fyrr.
Eftir að þau skildu, er Stallone
var 11 ára, bjó drengurinn hjá kald-
lyndum og ströngum föður og tán-
ingsárin urðu jafnvel enn erfiðari.
Gerði nánast allt til að vekja á sér
athygli, var á endalausum flækingi
á milli skólastofnana, sem jafnan
ráku drenginn að lokum, fyrir af-
leitan námsárangnr. Skólasystkinin
lögðu hann gjarnan í einelti fyrir að
vera málhaltur og „öðruvísi". Þá
flúði drengurinn gjarnan inn í eigin
hugarheim þar sem hann var bar-
dagamaðurinn ósigrandi, sem allir
dáðu.
15 ára flutti strákur til móður
sinnar sem var gift í annað sinn og
bjó í Ffladelfíu. Þar var hann settur
til náms við skóla fyrir tilfinninga-
lega trufluð ungmcnni og kynntist
lyftingum, líkamsrækt, skylming-
um, ruðningi o.fl. íþróttum. Þar
fékk hann einnig áhuga á leiklist og
að námi loknu fékk Stallone náms-
styrk við Bandarfska háskólann í
Sviss. Þar fór hann m.a. með eitt að-
alhlutverkið í Sölumaður deyr og
þar með hafði hann ákveðið fram-
tíðina. Er Stallone sneri aftur heim
hóf hann þegar nám í leiklist við Mi-
ami-háskóla, áður en hann ákvað að
flytja aftur til New York árið 1969.
Við tóku barátt.uár við að ná fót-
festu í leiklistinni og munaði
minnstu að Stallone missti móðinn
er Francis Ford Coppola hafnaði
honum f hlutverk Michacls í Guð-
foðurnum. Uppgjöf virðist þó ekki
vera til í orðabók leikarans, sem nú
fór að skrifa hvert handritið á fæt-
ur öðru og gat loks selt nokkur
þeirra. Eitt þeirra, Rocky, hélt
hann í einsog sfðasta hálmstráið.
Það átti að færa honum frægð og
ríkidæmi - sem það og gerði. Stall-
one krafðist aðalhlutverksins og
vænnar prósentu af innkomunni og
þar að kom að þeir Irwin Winkler
og Robert Chartoff, virtir og fjáðir
framleiðendur, bitu á agnið. Mynd-
in varð ein sú mest sótta í kvik-
myndasögunni, færði Stallone til-
nefningu sem besti leikari ársins,
myndin hlaut þau sem sú besta árið
’76, sömuleiðis B-myndasmiðurinn
Jon Avildsen, sem stýrði sigurverk-
inu.
Nú vænkaðist hagur strympu.
Stallone komst í hóp A-leikara, þar
sem hann hefur alið manninn linnu-
li'tið si'ðan, er orðinn forríkur og
frægur. Gömlu draumarnir hafa
ræst, og það þarf ekki lítið til. Svo
mikið er víst. Stallone á því sannar-
lega heiður skilinn fyrir einbeiting-
una og úl lialdið, það fara ekki allir í
fötin hans. í allri kvikmyndasög-
unni hafa fáir þurft að beijast við
slíka reginmúra félagslegrar ein-
angrunar, fátæktar og útskúfunar
sem hann.
Stallone mun jafnan verða
kenndur við tvö hlutverk; Rocky og
Rambo. Hnefaleikamyndiniar urðu
alls 5. Avildsen stýrði þeirri fyrstu
og síðustu, hinar voru meira og
minna hugar-
smíð stjömunn-
ar. Allar nutu
umtalsverðra
vinsælda þótt
þær döluðu jafnt
og þétt.
Myndimar
um hinn ofbeld-
isfulla og ódrep-
andi Rambo,
Víetnamher-
manninn sem
lætur ekki bjóða
sér niðurlæg-
ingu samfélags-
ins, urðu þijár.
Sú fyrsta ber af
þeim einsog gull
af eiri. Önnur í
röðinni var ágæt
afþreying, þar
sem berserkur-
inn heldur aftur
til Víetnam til að
frelsa stríðs-
fanga. Sú þriðja,
hctjusaga frá
Afganistan, er dæmigert kalda-
stríðsgrobb.
Síðan hefur Stallone leikið í ein-
um tveim tugum mynda sem eiga
það sameiginlegt að vera heldur
einsleitar og ómerkilegar átaka-
myndir og dýrar í framleiðslu. Mun-
ar mest um þau hrikalegu laun sem
stjarnan hefur getað sett upp til
skamms tíma; 20 milljónir og rúm-
lega það fyrir hverja mynd. Margar
eru bærilegasta skemmtun, einsog
Tango and Cash (’89), Demolition
Man (’93), Cliffhanger (’94) og Dayl-
ight (’96). Fleiri fara beinustu leið í
glatkistuna. Hver á að muna fim-
bulfamb á borð við Over the Top
(’87), Lock Up (’89), The Specialist
(’94), Judge
Dredd (’95), eða
Assassins (’95)?
Þessar átaka-
myndir voru all-
ar slærnar en
botninn á ferlin-
um var líkt og
hjá kollega
hans, Arnold
Schwarzenegg-
er, gaman-
myndafeilspor-
ið. Það stóð
blessunarlega
stutt, samanstóð
af hörmunginni
Oscar(’91), og
hinni enn verri
Stop! Or My
Mom Will Shoot
(’92), einni
verstu mynd
sögunnar.
Ljósasti
punkturinn á
erfiðum 10. ára-
tugnum er Cop
Land (’97), ádeila og hasarmynd,
gerð fyrir smámynt, þar sem garp-
urinn leikur heilaskemmdan lög-
reglumann og gerir það trúverðug-
lega. Framtíð Stallone gæti legið í
slíkum myndum. Hætt er þó við að
hann verði jafnan í huga kvik-
myndashúsgesta hin sanna ímynd
karlrembunnar.
Þrátt fyrir misjafnt gengi er Stall-
one enn upptekinn og eftirsóttur og
verður a.m.k. í tveimur myndum að
ári. Önnur er Driver, nýjasta mynd
Rennys Harlin, hin Eye See You,
Warner-mynd þar sem hann leikur
á móti Miröndu Richardson og risa-
eðlunni Mickey Rourke, hvers ferill
maður taldi útbrunninn.
Rocky III frá 1982 jók enn á vin-
sældir Stallones. Hér lumbrar
hann á andstæðingnum, sem Mr.
T. lék af slíkri fólsku að jafnvel
hrafnsvartir Harlembúar héldu
með næpuhvítum ftalanum.
Sígild myndbönd
ROCKY (1976) ★★"★★
Klassíska sagan um lítílmagnann
sem verður hetja, færð í fjarska áhrifa-
ríkan búning í frásögn um útbrunninn
hnefaleikakappa (Stallone) sem fær
tækifæri til að kljást við heimsmeistar-
ann í hnefaleikum í einstæðri keppni.
Varð í leiðinni sönn saga um óþekktan
leikara sem gerðist stjama á einni
nóttu. Stallone skrifaði sjálfur handrit-
ið og var útnefndur tíl Oskarsins fyrir
leik sinn í fyrsta og eina skiptið. Hrá-
slagalegt yfirbragðið og æsispennandi
lokaslagurinn ættí enn að hrífa hin
mestu dauðyfli. Slagurinn er virkilega
vel gerður og áhrifamikill. Með Taliu
Shire, Buit Young, Carl Weathers,
Burgess Meredith.
FIRST BLOOD (1982) ★★★%
Úi’valshei-maður (Stallone) úr Víet-
namstríðinu kemur í lítið bæjarfélag
þai' sem hann er tekinn höndum fyrir
flæking og þegar lögreglan sýnir hon-
um hörku brýst hann út og heldur út í
óbyggðimar og verst þar öllum
árásum með þeirri þekkingu sem hann
hefúr úr stríðinu. Vemlega góð hasar-
mynd með mörgum frábærlega gerð-
um áhættuatriðum og alvöm spennu í
skóglendinu þai’ sem hermaðurinn
setur upp hveija, banvæna gildruna á
eftir annarri. Stallone hentar mjög í
hlutverkið, sem í seinni myndum varð
að hálfgerðri teiknimyndafigúm. Með
Richard Crenna, Brian Dennehy,
Darid Cai-uso, Jack Starrett.
ROCKYII (1979)
★★★
Ekkert sérlega frumlegui- samsetn-
ingui' en þétt og ósvikið framhald og
besta mynd Stallone sem leikstjóri.
Það er þó ekki fyrr en garpurinn fer að
æfa hnefaleika á nýjan leik að Rocky
II, gerist virkilega ásjáleg, og það fer
ekki á milli mála að lokaslagurinn í
hringnum - með prýðisgóðum Dolby-
effektum - er með æsilegri atriðum
hvíta tjaldsins. Hér fær mannskepnan
svalað ofbeldiskenndum sínum og
hefndarþorsta um stund. Það þykir
flestum notalegt, inni við beinið. Með
Talia Shire, Burt Young, Cai’l Weath-
ers, Burgess Meredith.
Sæbjörn Valdimarsson
ÞAÐ er grafalvarlegur vandi
sem indverskir og pakistanskh’
innflytjendur á Bretlandi eiga við
að etja - hversu
ríkulega eiga þeir
að halda í gömlu
hefðirnar úr
austri og hversu
mikið eiga þeir að
aðlagast frjáls-^
legri siðum síns'
nýja heimalands.
Þetta er vandi
sem allir nýbúar
þurfa að horfast í augu við og
vandinn er því ríkulegri sem
menningarárekstrarnir eru meiri.
Allt er gott að austan tekur þeim
vanda pakistanskra innflytjenda -
þeirri hefð að feður geti valið
börnum sínum maka - nokkuð sem
lengi vel hefur ekki tíðkast í hin-
um vestræna heimi. Pakistanska
innflytjandanum George Khan crim
mikið í mun að halda í hefðir sínar.
Hann er stoltur faðir sex sona og
einnar dóttur en móðir þeirra er
ensk að uppruna. Eftir eina mis-
heppnaða tilraun til þess að neyða
brúður upp á elsta soninn er hann
staðráðinn í að tveir hinir næstu
muni giftast inn í virðulega pakist-
anska fjölskyldu, svo heiðrinum
verði bjargað. En það sem hann
gerir sér ekki grein fyrir er að
krakkarnir eru fæddir og uppaldir
í Englandi, líta á sig sem Englend-
inga og sætta sig ekki við minna
en það frelsi sem þeirra jafnaldrar
á Vesturlöndum taka sem vísu.
Efnistök þessarar áhugaverðu
háðsádeilu eru á léttum og,
skemmtilegum nótum. Adeilu-
broddurinn kemst fyllilega til skila
og myndin snertir mann sérlega
djúpt, þökk sé frábærum leik og
styrkri leikstjórn. Ein allra fersk-
asta myndin sem Bretar hafa sent
frá sér um langa hríð - allt í senn
holl, þörf og bráðskemmtileg.
Skarphéðinn Guðmundsson
V/SA
YAKORT
Eftirlýst kort nr.
4543-3700-0029-4648
4543-3700-0036-1934
4543-3700-0034-8865
4507-4100-0006-6325
4548-9000-0056-2480
4543-3700-0027-8278
Afgreiöslufólk, vinsamlegast takiö
ofangreind kort úr umferð og
sendið VISA Islandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000
fyrir að klófesta kort
og vísa á vágest
VISA ÍSLAND
Álfabakka 16,
109 Reykjavlk.
Sími 525 2000.
VISA