Morgunblaðið - 09.11.2000, Page 65
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2000 65'
sér grein fyrir þeirri sorg og því
tómarúmi sem myndast hefur í lífi
Sölva eiginmanns Guðrúnar og son-
um þeirra Einari, Svavari, Lárusi og
Daníel þegai’ eiginkona, móðir og fé-
lagi í blóma lífsins er tekin frá þeim.
Á þessari stund eiga margir um
sárt að binda, móðir mín missir ekki
bara systur sína heldur einnig sinn
besta vin. Sjálfur er maður að takast
á við sorgina um frænkumissinn.
Þegar dauðinn ber að dyrum
vakna ótal spurningar í huga manns;
af hverju hún? Af hverju núna þegar
svo margt er ógert? Hver er ástæð-
an fyrir því að fjögurra bama móðir
er tekin frá börnum sínum? Við
hljótum að lifa í þeirri trú að allt
þetta hafi sinn tilgang og í sorginni
leitum við huggunar í faðmi fjöl-
skyldunnar og vina. Einnig opnum
við hugann fyrir þeim góðu stundum
sem við áttum með Guðrúnu.
Þegar andlát verður með svo
snöggum og ósanngjömum hætti
eins og varð með hana Guðrúnu okk-
ar getum við ekki annað en hugsað
um okkar kveðjustund, hvernig?
hvenær? og þá hvar hún muni verða?
En sem betur fer veit enginn sinn
tíma fyrr en hann kemur.
Nú er Guðrún frænka farin og
kannski á vit einhvers sem betra er,
allavega er hún nú við hlið Karlottu
ömmu og Einars afa og horfir bless-
unaraugum yfir okkur. Biðjum við
þau að vaka yfir Sölva, Einari, Svav-
ari, Lámsi og Daníel á þessum erf-
iðu tímum og biðjum guð að veita
þeim, sem eiga um sárt að binda,
styrk til að takast á við þá uppbygg-
ingu sem fram undan er í lífi þeirra
feðga.
Vertu blessuð Guðrún mín og
þakka þér fyrir allt sem þú hefur
veitt okkur í lífinu.
Þinn frændi,
Stefán Öm Þórisson.
Nú þegar Guðrún er fallin í valinn,
langt um aldur fram, langar mig til
að minnast hennar með nokkrum
orðum.
Ég kynntist Guðrúnu fyrst er fjöl-
skyldur okkar tengdust og síðan enn
betur þegar Sófus kom til sögunnar.
Nágrannar mínir þurftu að láta Sóf-
us frá sér og Guðrún og Sölvi fréttu
af honum, heilsuðu upp á hann og
tóku hann að sér. Það væsti ekki um
Sófus á nýja heimilinu enda leið hon-
um afburða vel og mátti með sanni
segja hann væri dekurhundur og tók
hann miklu ástfóstri við hina nýju
húsbændur en mig vildi hann ekki
þekkja lengur.
Guðrún var smávaxin, nett, fríð og
fíngerð kona en hún leyndi á sér því
hún var mikill skörungur og dugnað-
arforkur sem hið fagra heimili, er
hún bjó manni sínum og sonunum
fjórum, er til vitnis um. Hún var
ákaflega handlagin og allt lék í hönd-
unum á henni, matargerð, sauma-
skapur og önnur verk sem til falla á
stóru heimili og mátti segja að hún
væri hin fullkomna húsmóðir.
En hún lét ekki þar við sitja því
hún var afburða talnaglögg og stóð
einnig við hlið manns síns í starfi
hans, þar sem hún sá um bókhaldið,
tilborðsgerð o.s.frv. Ekki mátti hún
heyra af nokkru vandamáli í fjöl-
skyldunni, að ekki væri hún boðin
og búin að aðstoða ef hún mætti og
voru þau Sölvi mjög samhent á
þessu sviði sem öðrum. Guðrún var
ákaflega vinsæl kona og mikil fé-
lagsvera, studdi drengina sína á alla
lund í þeirra íþróttastarfi og lá
hvergi á liði sínu í félagsstörfunum
enda voru henni falin mörg trúnað-
arstörf.
Kæri Sölvi, Einar, Svavar, Lárus
og Daníel. Ég samhryggist ykkur
innilega. Þið hafið misst mikið en ég
vona að minningin um yndislega eig-
inkonu og móður muni lýsa ykkur
veginn fram á við. Ég þakka fyrir
þau forréttindi að hafa fengið að
kynnast henni því hún var einstök.
Dís.
Mig langar til að segja nokkur orð
um yndislega mágkonu. Guðrún
kom í okkar fjölskyldu fyrir rúmum
27 árum. Okkur leist strax mjög vel
á hana og hún var svo sannarlega
samþykkt af öllum í fjölskyldunni.
Guðrún var myndar húsmóðir og
eiginkona, enda ber heimili þeirra
Sölva gott vitni um það. Hún var sér-
staklega góð móðir og hugsaði vel
um drengina sína.
Guðrún mín, ég mun sakna þess
mikið að hafa samband við þig á
Netinu og eins samtala okkar í síma.
Mig langar að þakka þér fyrir allt
sem þú gerðir fyrir mig og okkur öll.
Þú gast alltaf fundið lausn á hinum
og þessum vandamálum. Frankie,
Svava og Dennis biðja fyrir innileg-
ar kveðjur og þakklæti fyrir góðar
móttökur sl. sumar. Þú sýndir þeim
alltaf svo mikla umhyggjusemi. Við
söknum þín óendanlega.
Elsku mágkona, farðu í friði, Guð
geymi þig og varðveiti. Elsku Sölvi,
Einar, Svavar, Lárus og Daníel, ég
bið Guð að styðja ykkur og styrkja í
þessari miklu sorg, sem þið hafið
orðið fyrir. Haldið í allar góðu minn-
ingarnar um yndislega eiginkonu og
móður.
Bárdís Cushing.
Vaktu minn Jesú, vaktu í mér,
vakaláttumigeinsíþér.
Sálinvaki, þá sofnarlíf,
sé hún ætíð í þinni hlíf.
(Hallgr. Pét.)
Kær samfylgdarkona okkar, Guð-
rún Einarsdóttir, eiginkona vinnufé-
laga míns Sölva Egilssonar, er fallin
frá, langt um aldur fram. Það er sárt
að kveðja vinkonu okkar á besta
aldri horfna á braut frá eiginmanni
og börnum sem voru ekki öll vaxin
úr grasi. Það er mikil lífsreynsla fyr-
ir Sölva og börnin að horfa upp á
sína heittelskuðu eiginkonu og móð-
ur skilja svo við. En það er svo
margt sem við ekki skiljum og verð-
um að lúta vilja þess sem ræður,
Drottins vors.
Guðrún var einstök kona að
mannkostum. Hún eignaðist traust-
an og góðan eiginmann og þau eign-
uðust fjögur börn sem voru stolt
þeirra og yndi. Þau lifðu í farsælu
hjónabandi og voru alla tíð samhent
hjón. Heimilið var þeirra helgireitur
og þau sköpuðu sér innihaldsríkt og
ánægjulegt heimilislíf. Guðrún tók
virkan þátt í vinnu og áhugamálum
Sölva og var honum traustur og góð-
ur bakhjarl.
Eitt af því dýrmætasta sem við
öðlumst í lífinu eru góðar minningar,
minningar sem við geymum í huga
okkar og ylja okkur. Við hjónin átt-
um því láni að fagna að eiga með
þeim ánægjulegar stundir saman og
við fengum að njóta glaðværðar
hennar og vináttu og fyrir þær
stundir viljum við þakka.
Sölvi minn, þér og fjölskyldu þinni
svo og öðrum aðstandendum vottum
við dýpstu samúð og biðjum ykkur
Guðs blessunar í ykkar þungu sorg.
Megi hann vera ykkur styrkur og
stoð í missi ykkar.
Drottinn Guð, himneski faðir, um-
vef Guðrúnu okkar birtu þinni og
ljósi í ríki þínu og með þessum orð-
um kveðjum við þig, Guðrún mín.
Statt upp og tak birtunni
því þitt ljós kemur og dýrð
Drottins rennur upp yfir þér.
(Jes.60,1.)
Þorgeir Vaidimarsson,
Sigurbjörg Norðfjörð.
Mannsævin er undarleg. Sagt er
að mennimir ráðgeri en Guð ráði.
Svo sannarlega vorum við óþyrmi-
lega minnt á þessi orð og þá stað-
reynd hve tilvera okkar er stundum
óvægin við fráfall Guðrúnar Einars-
dóttur. Á örskotsstund er kær vin-
kona í blóma lífsins hrifin brott frá
eiginmanni og fjölskyldu og skilur
eftir sig hóp ástvina sem eiga um
sárt að binda. Margs er að minnast
t
Eiginmaður minn,
GUÐMUNDUR ÞORSTEINSSON,
áður bóndi á Syðri-Grund
í Svínadal,
Hnitbjörgum, Blönduósi,
andaðist á Héraðssjúkrahúsinu að kvöldi mánu-
dagsins 6. nóvember.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Guðrún Sigurjónsdóttir.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma
RANNVEIG KRISTJÁNSDÓTTIR,
frá Tunguvöllum
á Tjörnesi,
verður jarðsungin frá Húsavíkurkirkju laugar-
daginn 11. nóvember klukkan 13.00.
Jón Jóhannesson,
Rannveig Jónsdóttir,
Ómar Örn Ragnarsson, Guðrún Kristjánsdóttir,
Hulda Jóhannesdóttir, Hermann Guðmundsson,
Jóhannes Hermannsson, Guðrún Ágústa Jóhannsdóttir,
Fanney Kr. Hermannsdóttir, Guðmundur F. Sigurjónsson,
Guðmundur M. Hermannsson, Sigrfður Kristjánsdóttir
og langömmubörn.
t
Elskulegur eiginmaður minn og faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
BENEDIKT BJARNASON
frá Tjörn á Mýrum,
sem lést laugardaginn 4. nóvember, verður
jarðsunginn frá Hafnarkirkju laugardaginn
11. nóvember kl. 14.00.
Steinunn Aradóttir,
Bjarney Pálína Benediktsdóttir, Sævar Kristinn Jónsson,
Sigurgeir Benediktsson,
Arnborg Sigríður Benediktsdóttir, Þorgeir Sigurðarson,
Karl Benediktsson, Gerður Sif Hauksdóttir,
Eydís Sigurborg Benediktsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
SIGRÍÐUR KRISTÍN INGJALDSDÓTTIR,
lést á elliheimilinu Grund miðvikudaginn
25. október.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Sérstakar þakkir til starfsfólksins á Grund og
allra þeirra, er sýndu okkur samúð og hlýhug.
Guð blessi ykkur öll.
Ólöf Guðleifsdóttir, Gunnsteinn Sigurjónsson,
Laufey (BíbQ Andersson, Harmond Andersson,
Georg Valentínsson, Elísabet Árný Tyrfingsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
+
Systir okkar og frænka,
STEFANÍA K. BJARNADÓTTIR,
Kópavogsbraut 1A,
áður til heimilis
í Skólagerði 65,
Kópavogi,
verður jarðsungin frá Kópavogskirkju föstu-
daginn 10. nóvember kl. 13.30.
Fyrir hönd systkina og annarra ættingja,
Gréta Ingvarsdóttir.
+
Eiginkona mín,
GUÐRÚN RÓSA JÓNSDÓTTIR,
Túngötu 18,
Grenivík,
verður jarðsungin frá Grenivíkurkirkju laugar-
daginn 11. nóvember kl. 14.00.
Jóakim Guðlaugsson.
+
Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát
og útför sambýlismanns míns, vinar og bróður
okkar,
ÁSGEIRS PÁLS ÚLFARSSONAR
frá Seyðisfirði,
Amtmannsstíg 6,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 11E,
Landspítala, Hringbraut, og líknardeildar Kópavogi.
Ellen H. Sighvatsson,
Ágústa Guðrún Sigfúsdóttir,
Valdís Vífilsdóttir,
Brynja X. Vífilsdóttir
og systkini hins látna.
+
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur vináttu
og hlýhug við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu, langömmu og langalang-
ömmu,
KRISTÍNAR BJÖRNSDÓTTUR
frá Ytri-Vík,
Árskógsströnd.
Frímann Hauksson, Þorbjörg Elíasdóttir,
Anna Hauksdóttir, Ingvar Níelsson,
Jóhann Hauksson, Kolbrún Geirsdóttir,
ömmubörn, langömmubörn
og langalangömmubarn.
+
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð
og hlýhug við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
ÁGÚSTU ÁGÚSTSDÓTTUR
húsfreyju í Svínadal,
Skaftártungu.
Sigurdís Erla Eiríksdóttir, Pétur Kristjónsson,
Björn Eiríksson, Kolbrún Þórarinsdóttir,
Ágúst Eiríksson, Þuríður Erla Sigurgeirsdóttir
og ömmubörn.