Morgunblaðið - 15.11.2000, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 2000 31
LISTIR
Morgunblaoio/Ami öæberg
Börnin í bókasöfnunum
NÚ STENDUR yfír norræna bóka-
safnsvikan „í ljósaskiptunum" og er
efni hennar norræn börn. Dagskrár
eru fluttar í bókasöfnum landsins
og þar kynntar norrænar bók-
menntir fyrir börn og unglinga. I
vikubyijun var fluttur sameiginleg-
ur texti í bókasöfnunum um
skammarstrik Emils í Kattholti;
Laugardagurinn 28. júlí. Þegar
Emil hvolfdi deiginu yfír föður sinn
og tálgaði hundraðasta spýtukarl-
inn. Myndin var tekin í Bókasafni
Seltjarnarness, þar sem félagar í
Leiklistarfélagi bæjarins leiklásu
kaflann.
Bach í Breið-
holtskirkju
JÖRG E. Sondermann flytur org-
elverk eftir Johann Sebastian
Bach í Breiðholtskirkju í kvöld,
miðvikudagskvöld, kl. 20.
Jörg E. Sondermann er fædd-
ur 1957 í Witten í Þýskalandi.
Hann stundaði kirkjutónlistar-
nám í Herford og Dortmund og
lauk þaðan A-prófi (lokaprófí)
1980. Eftir það fór hann til Ham-
borgar og lauk einleikaraprófí á
orgel 1982. Árin 1979-1997 starf-
aði hann sem organisti og kór-
stjóri í Westfalen og frá árinu
1985 stóð hann fyrir tónlistarhá-
tíð, er nefnist „Westfálische
Bach-Tage“.
Hann hefur haldið tónleika
víða um lönd, m.a. í Þýskalandi,
Hollandi, Sviss, Frakklandi, Pól-
landi og Finnlandi. Hér á landi
hefur hann haldið tónleika á Ak-
ureyri, ísafirði, Selfossi og í Hall-
grímsldrkju. Hann er einnig með
orgeltónlistarstundir í Hvera-
gerðiskirkju annan sunnudag
hvers mánaðar.
í efnisvali sínu hefur hann lagt
mesta áherslu á verk J.S. Bach
og jafnframt Max Regers og
samtímamanna hans auk verka
núlifandi tónskálda. Jörg Sonder-
mann flutti til Islands haustið
1997 og hefur síðan starfað sem
organisti í Hveragerðis- og Kot-
strandarsóknum. Hann hefur
einnig kennt kórstjórn og orgel-
leik við Tónskóla Þjóðkirkjunnar
frá hausti 1999.
Tilefni þessa tónleikahalds er
250. ártíð Johanns Sebastians
Bach. Asamt þekktari verkum
Bachs er hér um að ræða allar
þekktar frumgerðir og tilbrigði,
verk sem vafi er á að hann hafi
samið og verk sem upphaflega
voru ekki samin fyrir orgel, en
hæfa orgelinu (t.d. Kunst der
Fuge).
Tónleikarnir annað kvöld eru
þeir áttundu af alls 26 tónleikum
sem eru 60-65 mínútna langir
hver um sig.
Þetta mun í fyrsta sinn sem öll
orgelverk Bachs eru flutt hér á
landi af einum organista, en fyrir
hálfum öðrum áratug sameinuð-
ust íslenskir organistar um þetta
viðamikla verkefni.
Aðgangseyrir er 900 krónur og
rennur til Hjálparstarfs
kirkjunnar.
Islenski dansflokk-
urinn sýnir KIPPU
í Frakklandi
ÍSLENSKI dansflokkurinn sýnir
KIPPU, verk Camerons Corbetts,
við tónlist múm á tveimur sýning-
um í Frakklandi í þessari viku.
KIPPA er samin að frumkvæði
Batofar í París, gömlu slökkviliðs-
skipi sem liggur við akkeri í Signu
og breytt hefur verið í nokkurs
konar blöndu af menningarmiðstöð
og næturklúbbi. Batofar er áber-
andi í menningarlífi Parísar og lík-
ym-2000
15. nóvember
Unglist í Reykjavík:
GALLERÍ GEYSIR í HINU HÚSINU
Sýning á afrakstri Ijósmynda-
maraþons. Lýkur 23. nóvember.
lega best kynnti vettvangur nýlist-
ar og raftónlistar í Frakklandi.
Fyrri sýningin á KIPPU fer
fram í Batofar fimmtudaginn 16.
nóvember, en sama kvöld sýnir
Gjörningaklúbburinn, Sjón og Ás-
gerður Júníusdóttir koma fram,
hljómsveitin múm heldur tónleika
og plötusnúðurinn Borko spilar.
Síðari sýningin verður í Theatre
de Caen í Normandie föstudaginn
17. nóvember á opnun Les Boréal-
es-hátíðarinnar sem helguð er list
og bókmenntum úr norðri.
KIPPA var frumsýnd á Trans
Dance Europe 2000, danshátíð
Menningarborganna, sem íslenski
dansflokkurinn stóð að í Borgar-
leikhúsinu um síðustu mánaðamót.
Tónlistin við KIPPU er eftir
hljómsveitina múm en hún tekur
þátt í flutningi verksins.
Glæsileg raðhús Gott verð
p ^ ö . _ r Endaraðhús: 12,9 millj.
viö ouðurtun 1-35 Miðjuhús: 10,9 miiij.
Útsýni frá byggingarstað á ÁLFTANESI
Mynd: Þorlákur ó. Einarsson.
Afar vel staðsett raðhús á einni hæð með inn-
byggðiim bílskúr. Um er að ræða tvær stærðir
húsa, 145 fm og 115 fm, og eru ýmist þrjú
eða fjögur hús í lengju. Húsin afhendast fok-
held að innan, fullbúin að utan um nk. ára-
mót. Lóð verður grjófjöfnuð. Endahús: Verð
12,9 millj. Miðjuhús 10,9 millj.
Frábær staðsetning í fallegri nátt-
úruperlu fyrir fólk sem vill njóta
útivistar.
Teikningar á skrifstofú.
SELJANDI TEKUR Á SIG
ÖLL AFFÖLL HÚSBRÉFA.
f^i FASTEIGNA <f 1
P MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500 FAX 570 4505
V____________________ J
Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali.
Málþing á vegum
Samtaka ferðaþjónustunnar
Menntun í ferðaþjónustu
Staður: Menntaskólinn í Kópavogi. Hótel-og matvælaskólinn.
Stund: Föstudagur 17. nóvember 2000 kl. 13:00-17:00
Setning og kynning dagskrár
Hildur Jónsdóttir, form. frœðslunefndar SÁF.
Kynning á námi í Hólaskóla
Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, deildarstjóri ferðamálabrautar Hólaskóla.
Kynning á IATA-UFTAA námi og nýjum námsleiðum
Una Eyþórsdóttir, Ferðaskóla Flugleiða.
Nám í Háskóla íslands og Háskólanum á Akureyri
Anna Dóra Sæþórsdóttir, umsjónarm. ferðamálanáms Háskóla íslands.
Arnar Már Ólafsson, lektor við Háskólann á Akureyri.
Kynning á námi í Ferðamálaskólanum - ferðafræði, leiðsögunám
Sigríður Þrúður Stefánsdóttir, forstöðumaður Ferðamálaskólans.
Kynning á námi í Hótel - og Matvælaskólanum
Baldur Sœmundsson, forstöðumaður Hótel- og matvælaskólans.
Kaffihlé - skólar kynna og sýna námsefni.
Pallborðsumræður: Skiptir menntun máli
við ráðningu starfsmanna?
Umræður og fyrirspumir.
Málþingsslit
Erna Hauksdóttir framkvæmdastjórí SAF.
Þátttakendur í pallborði verða frá eftirtöldum skólum og fyrirtækjum:
Fulltrúi frá Háskóla Islands - ferðamálanám, viðtökur við nýju námi.
Fulltrúi frá Hótel- og matvælaskólanum, nemar - árangur - eftirspum.
Fulltrúi frá PriceWaterhouseCoopers - ráðningarþjónustu.
Fulltrúi frá Ferðaskrifstofu íslands - er verið að ráða fólk með menntun?
Fulltrúi frá Félagi háskólamenntaðra ferðamálafræðinga - við hvað starfa þeir?
Umræðustjóri: Þorleifur Þór Jónsson, hagfræðingur SAF.
Allir eru velkomnir á málþingið. Samtök ferðaþjónustunnar
hvetja stjómendur fyrirtækja í ferðaþjónustu svo og aðra þá,
sem fást við starfsmanna- og gæðamál, að mæta.
kl. 13:00
kl.l3:10
kl. 13:30
kl. 13:50
kl. 14:10
kl. 14:30
kl. 15.00
kl. 16:00
kl. 17:00