Morgunblaðið - 15.11.2000, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 2000 57
FRETTIR
Snerruútgáfan
gefur út 6 almanök
SNERRUÚTGÁFAN ehf, hefur sent
frá sér 6 ný almanök fyrir árið 2001.
Komandi ár er 19. útgáfuárið. Alm-
anök og náttúruljósmyndun eru sér-
grein Snerruútgáfunnar.
Almanökin eru:
íslenska almanakið, 12 síðna alm-
anak með myndum vítt og breitt af
landinu. Þar má nefna myndir af-
Fjallabaksleið nyrðri, Heklugosinu í
febrúar s.l, Akureyri, Atlavík og víð-
ar. Myndatextar auk íslensku,
sænska, enska, þýska og franska.
Nítjánda útgáfuár almanaksins.
Breiða náttúrualmanakið, 12 síðna
breiðmyndaalmanak. Myndefnið að
þessu sinni er Kleifarvatn, Rauði-
sandur, Furulundurinn á Þingvöllum,
Kálfafellsdalur og víðar. Myndatext-
ar eru, auk íslensku, á sænsku, ensku,
þýsku, frönsku og spænsku. Sjötta
útgáfuár almanaksins.
Islenska náttúrualmanakið, 12
síðna almanak. Valdar myndir úr
náttúru landsins. Myndimar eru allar
teknar úr lofti að þessu sinni, þar má
nefna Langasjó, Hvalvatn, Þumal í
Vatnajökli og víðar. Myndatextar á
íslensku og ensku. Þrettánda útgáfu-
ár almanaksins.
Erindi um
þroskaheftar
mæður og
börn þeirra
RANNSÓKNASTOFA í kvenna-
fræðum gengst fjTÍr rabbi fimmtu-
daginn 16. nóvember í Odda, stofu
201, kl. 12-13. Hanna Björg Sigur-
jónsdóttir uppeldis- og menntunar-
fræðingur heldur fyrirlesturinn
>,Þroskaheftar/seinfærar mæður og
börn þeirra".
Fjölskyldur þar sem foreldrarnir
eru þroskaheftir/seinfærir hafa fram
á síðustu ár verið bæði fáar og lítt
sýnilegar í samfélaginu. Enginn veit
hversu margar þær eru og lítið er
vitað um þær og börn þeirra. Fyrir-
lesturinn byggir á íslenskri rann-
sókn um 10 þroskaheftar/seinfærar
mæður á aldrinum 26-83 ára og börn
þeirra. Gagna var aflað með opnum
viðtölum og þátttökuathugunum. í
fyrirlestrinum verður lögð áhersla á
hvemig reynsla mæðranna endur-
speglar hvemig breytt viðhorf,
stefna og þjónusta á síðustu fimmtíu
árum hefur haft áhrif á réttindi, að-
stæður og möguleika þeirra til að ala
upp börn sín, segir í fréttatilkynn-
ingu.
------------------
Hátíðarfundur
FUF í
Reykjavík
í TILEFNI af 70 ára afmæli Félags
ungra framsóknarmanna í Reykja-
vík á þessu ári verður haldinn sér-
stakur hátíðarfundur nk. fimmtu-
dagskvöld 16. nóvember að
Hverfisgötu 33. Fundurinn hefst kl.
20.
A hátíðinni mun Svava H. Frið-
geirsdóttir, núverandi formaður
FUF-R, flytja ávarp og einnig Hall-
ur Magnússon, fyrrverandi formað-
ur FUF-R. Því næst flytur Steing-
rímur Hermannsson, fyrrverandi
ráðherra og seðlabankastjóri, hátíð-
arræðu og að því loknu verða al-
mennar umræður.
Boðið verður uppá framsóknar-
kaffi og afmælistertu.
Barnavagnar
OD
m
Hlíðasmára 17
s. 564 6610
Stúra náttúrualmanakið, 12 síðna
almanak. Valdar ljósmyndir m.a. frá
Herðubreið, Dettifossi í vetrarbún-
ingi, Ásbyrgi og víðar. Myndimar em
með skuggalakki. Myndatextar, auk
íslensku, sænska enska, þýska,
franska og spænska. Tíunda útgáfuár
almanaksins.
íslenska hestaalmanakið, 12 síðna
almanak, sem kemur nú út í áttunda
skipti. Með myndum af íslenska hest-
inum m.a. frá heimsmeistaramótinu í
Þýskalandi í fyrra, Landsmótinu að
Melgerðismelum í Eyjafirði og víðar.
Myndatextar, auk íslensku, danska,
þýska og enska.
Breiða borðalmanakið, breið-
mynda-almanak með myndum m.a.
frá Svartafossi, toppi Heklu, Norð-
firði og víðar.
,Almanökin eru vinsæl meðal er-
lendra ferðamanna sem sækja ísland
heim. Auk þess tengja þau burtflutta
íslendinga við föðurlandið,“ segir í
fréttatilkynningu frá útgáfunni.
Fundur um
framtíð Þjóð-
minjasafnsins
NÝRÁÐINN forstöðumaður Þjóð-
minjasafns íslands, Margrét Hall-
grímsdóttir, verður gestur á fé-
lagsfundi Sagnfræðingafélagsins
fimmtudaginn 16. nóvember.
Fundurinn verður haldinn í hús-
næði Sögufélags í Fisehersundi og
hefst klukkan 20.30 og er opinn
öllu áhugafólki um sögu og menn-
ingu.
Þjóðminjasafnið var stofnað 1863
og framan af bjó það við þröngar
aðstæður á lofti Dómkirkjunnar í
Reykjavík. Árið 1952 voru svo
fyrstu sýningarnar opnaðar í nýju
húsi safnsins á horni Hringbrautar
og Suðurgötu. Nú standa yfir mikl-
ar endurbætur á húsinu en áætlað
er að opna safnið að nýju í lok árs
2002. Margrét Hallgrímsdóttir,
sem er fornleifa- og sagnfræðingur
að mennt, mun á fundinum ræða
um yfirstandandi breytingar á
safninu og kynna hugmyndir sínar
um framtíð þess.
osa góð vei^ð!
Glös:18 kristalsglös í gjafakassa Kr. 2.990.-
Hnífapör: Kassi fyrir 6 manns kr. 4.900.-
Matarstell: 6 manna stell Kr. 3.990.-
Kaffistell: 6 manna stell Kr. 3.600.-
lLl6o>»
fvKRISTALL
Kringlunni - Faxafeni
Húsbréf
Utdráttur
húsbréfa
Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa í
eftirtöldum flokkum:
1. flokki 1991
3. flokki 1991
1. flokki 1992
2. flokki 1992
1. flokki 1993
3. flokki 1993
1. flokki 1994
1. flokki 1995
1. flokki 1996
2. flokki 1996
3. flokki 1996
-36. útdráttur
- 33. útdráttur
-32. útdráttur
-31. útdráttur
-27. útdráttur
- 25. útdráttur
- 24. útdráttur
- 21. útdráttur
-18. útdráttur
-18. útdráttur
- 18. útdráttur
Koma þessi bréf til innlausnar 15. nóvember 2000.
Öll númerin verða birt í Lögbirtingablaðinu. Auk þess
eru númer úr ijórum fyrsttöldu flokkunum hér að ofan
birt í DV miðvikudaginn 15. nóvember. Upplýsingar um
útdregin húsbréf liggja frammi hjá íbúðalánasjóði, í
bönkum, sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum.
íbúðalánasjóður
Borgartúni 21 105 Reykjavík Simi 569 6900 Fax 569 6800
V
INNKÖLLUN VEGNA RAFRÆNNAR SKRÁNINGAR
HLUTABRÉFA í HÚSASMIÐJUNNI HF.
Mánudaginn 4. desember 2000 veröa hlutabréf í Húsasmiðjunni hf. tekin til rafrænnar skráningar hjá
Verðbréfaskráningu íslands hf. í samræmi við ákvörðun stjórnar Húsasmiðjunnar hf. þar að lútandi. Þar af leiðandi
verða engin viðskipti með hlutabréf félagsins þann dag. Frá þeim tíma ógildast hin áþreifanlegu hlutabréf í
fyrirtækinu í samræmi við ákvæði laga og reglugerðar um rafræna eignarskráningu verðbréfa.
Nánar tilgreint verða öll hlutabréf í Húsasmiðjunni hf. tekin til rafrænnar skráningar en þau eru öll í einum flokki,
auðkennd nr. 1-15, og gefin út á nafn hluthafa. Útgáfudags er ekki getið á bréfinum.
Hér með er skorað á alla eigendur ofangreindra hlutabréfa sem telja nokkurn vafa leika á að eignarhald þeirra
sé réttilega fært í hlutaskrá Húsasmiðjunar hf. hf. að staðreyna skráninguna með fyrirspurn til hlutaskrár
Húsasmiðjunnar hf., Súðarvogi 3-5, 104 Reykjavík, sími 525 3000. Komi í Ijós við slíka könnun að eigendaskipti
hafi ekki verið skráð ber eigendum að færa sönnur á þau gagnvart félaginu fyrir nefndan dag.
Enn fremur er skorað á alla þá sem eiga takmörkuð réttindi til ofangreindra hlutabréfa, s.s. veðréttindi, að koma
þeim á framfæri við fullgilda reikningsstofnun, þ.e. banka, verðbréfafyritæki eða sparisjóð sem gert hefur
aðildarsamning við Verðbréfaskráningu íslands hf., fyrir skráningardag.
Athygli hluthafa er vakin á að hin áþreifanlegu hlutabréf félagsins verða ógild sjálfkrafa og því er ekki þörf á að
skila þeim til félagsins. Jafnframt er vakin athygli á að ferli rafrænnar skráningar hefur engin áhrif á möguleika
hluthafa til að eiga viðskipti með hluti sína í félaginu að undanskildum sjálfum skráningardeginum.
Að lokinni rafrænni skráningu þurfa hluthafar að fela reikningsstofnun umsjón með eignarhlut sínum í félaginu
með stofnun VS reiknings. Hluthöfum félagsins verður kynnt þetta nánar með bréfi ásamt upplýsingum um
stofnun VS reikninga.
Stjórn Húsasmiðjunnar hf.
...allt frá grunni að góðu heimili
HÚSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is