Morgunblaðið - 28.12.2000, Síða 1
STOFNAÐ 1913
298. TBL. 88. ÁRG. FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Neyðarástand
í serbneskum
orkumálum
Belgrad. AFP.
SERBNESKIR embættismenn
skoruðu í gær á almenning að spara
rafmagn með öllu móti vegna orku-
kreppunnar í landinu en tilkynnt
hefur verið, að landsmenn verði án
rafmagns í sex klukkustundir á sól-
arhring á næstunni.
Zoran Djindic, verðandi forsætis-
ráðherra í Serbíu, sagði í gær, að
ástandið í orkumálum landsins væri
skelfilegt en hvatti fólk til að taka því
með æðruleysi. Sagði hann, að það
yrði upplýst vel um rafmagns-
skömmtunina til að enginn efaðist
um, að allir sætu við sama borð.
Raunar er ekki nóg með, að raf-
magn sé af skomum skammti í Ser-
bíu, heldur verða margir að hírast í
köldum húsum vegna skorts á gasi til
upphitunar. Er bæði um að kenna
fjárskorti Serba og einhverjum
truflunum á gasflutningi frá Rúss-
landi en þaðan kemur helmingur
gassins.
Þetta ástand í orkumálunum er
mjög erfitt lýðræðisöflunum í Ser-
bíu, sem unnu mikinn sigur í kosn-
ingunum 23. þessa mánaðar. Evr-
ópusambandið hefur þó nú þegar
lagt fram hátt í sjö milljarða ísl. kr.
til að endurbæta raforkukerfið og
von er á framlagi frá Bandaríkjun-
um.
„Náttúruhamfarir"
Raforkukerfið í Serbíu er meira
eða minna í lamasessi vegna við-
haldsleysis og óstjórnar og auk þess
skemmdist það í loftárásum NATO.
Srboljub Antic, orkumálaráðherra
Serbíu, sagði hins vegar í gær, að
meginástæða fyrir ástandinu væri
„náttúruhamfarir", óvenjulega mikl-
ir þurrkar sl. níu mánuði. Hefur ekki
mælst áður jafn lítið vatn í Dóná en
við hana er mesta raforkuverið í
Serbíu. Þar er nú sáralítil rafmagns-
framleiðsla og svo er einnig um flest-
öll önnur vatnsorkuver í landinu.
Sums staðar hefur komið til mót-
mæla vegna rafmagnsskortsins og í
einum bæ var lýst yfir neyðarástandi
þegar þar hafði verið rafmagnslaust
í sólarhring. Svo vel vill til, að hlýtt
hefur verið í veðri að undanfomu en
nú er spáð frosti og köldu veðri.
■ Sækja til saka/33
Reuters
Haft eftir Egyptum að fundi Arafats og Baraks hafí verið aflýst
Palestínumenn hafna í
raun tillögum Clintons
Jerúsalem, Washington. AFP, Reuters.
Un<lcr
Palestínsk börn við húsvegg í Dheishe-flóttamannabúðunum rétt við
Betlehem á Vesturbakkanum. Á vegginn hefur verið skrifað „50 ár í
tjaldi“. Framtið palestínsku flóttamannanna, næstum fjögurra milljóna
manna, er eitt erfiðasta málið 1 viðræðunum um frið í Miðausturlöndum.
HAFT var eftir ónefndum, egypsk-
um embættismönnum í gær, að fyr-
irhuguðum fundi þeirra Yassers
Arafats, leiðtoga Palestínumanna,
og Ehuds Baraks, forsætisráðherra
ísraels, hefði verið aflýst en hann
átti að vera í Egyptalandi í dag.
Þótti ljóst, að hann myndi engan ár-
angur bera. Palestínumenn svöruðu
í gær tillögum Bills Clintons, forseta
Bandaríkjanna, um friðarsamning
við ísraela og haft var eftir hátt-
settum, palestínskum embættis-
manni, að í raun hefði tillögunum
verið hafnað. Hafði hann eftir Yass-
er Arafat, leiðtoga Palestínumanna,
að þær væru verri en þær, sem rætt
hefði verið um á Camp David-fund-
inum í sumar.
Jafnt ísraelskir sem palestínskir
embættismenn sögðu, að óvíst væri
hvort nokkuð yrði af fundi Yassers
Arafats, forseta heimastjórnar Pal-
estínumanna, og Ehuds Baraks, for-
sætisráðherra ísraels, með milli-
göngu Hosnis Mubaraks Egypta-
landsforseta í Egyptalandi í dag,
þar sem ræða átti tillögur Clintons.
„Við getum ekki fallist á þessar
tillögur vegna þess, að þær stefna
framtíð barna okkur í tvísýnu, fram-
tíð margra kynslóða og vonum okk-
ar um sjálfstæði," sagði Yasser
Abed Rabbo, upplýsingaráðherra
palestínsku heimastjórnarinnar, í
gær. Sagði hann, að í tillögum Clint-
ons væru alþjóðlegar ályktanir ekki
nefndar, til dæmis ályktanir örygg-
isráðs Sameinuðu þjóðanna.
Saeb Erekat, aðalsáttafulltrúi
Palestínumanna, sagði í gær að Pal-
estínumenn hefðu sent Bandaríkja-
mönnum lista yfir mál sem þyrftu
nánari útskýringa við áður en Pal-
estínumenn gætu tekið endanlega
ákvörðun um viðbrögð við tillögum
Clintons. Vonuðust þeir eftir svari
sem fyrst.
„Það er betra fyrir okkur að hafa
smáatriðin á hreinu, ef allt er skýrt
og báðir aðilar skilja hvað við ná-
kvæmlega erum að gera til að ná
nauðsynlegum samningum - og það
samkomulag krefst umfram allt
smáatriða, smáatriða, smáatriða,"
sagði Erekat í viðtali við CNN.
Þegar fréttamenn spurðu Erekat
í gær hvort yrði af fundi Arafats og
Baraks í dag sagðist hann ekki vera
viss. „Ég útiloka ekki þann mögu-
leika, en ég held að ég myndi ekki
búast við miklu.“
Bandaríkjastjórn
bíður enn
Barak sagði í gær, að það færi eft-
ir svörum Palestínumanna við til-
lögum Bandaríkjastjórnar hvort af
fundi hans og Arafats yrði. Philip
Reeker, talsmaður bandaríska utan-
ríkisráðuneytisins, sagði það eitt um
svarbréf Palestínumanna, að í því
væru í raun engin svör við tillög-
unum og því væri enn beðið eftir
þeim. Sagði hann þetta skömmu eft-
ir að Clinton hafði lýst yfir, að
ágreiningur ísraela og Palestínu-
manna væri nú minni en nokkru
sinni fyrr og því riði á að ná sam-
komulagi.
■ Tillögur Clintons/28
Rússnesku
jólin að koma
BÖRN að leik fyrir framan stóra
mynd af Frosta afa á Dvortsovaja-
torgi í Sankti Pétursborg í Rúss-
landi. Þar er nú jólaundirbúning-
urinn í hámarki en jólahátíðin er 13
dögum siðar þar en hér.
Kúariðan
Hvatt til
prófana
á sauðfé
Mainz. AFP.
KARL-Heinz Funke, landbúnaðar-
ráðherra Þýskalands, sagði í gær, að
hann teldi rétt að kanna ítarlega
hvort sauðfé hefði smitast af kúa-
riðu.
„Ef vísindamenn mæla með því, þá
mun ég styðja það,“ sagði Funke í
viðtali við þýsku ríkissjónvarpsstöð-
ina ZDF og bætti við, að best væri að
Evrópusambandið beitti sér fyrir
slíkum prófunum á sauðfénu. Hann
kvaðst þó telja það heldur ólíklegt,
að því væri hætta búin, þar sem því
hefði ekki verið gefið kjötmjöl eins
og nautgripunum. Talið er, að smit-
efnið, sem kúariðunni veldur, hafi að
langmestu leyti borist með mjölinu.
Funke lýsti þessu yfir eftir að
Reinhard Kurth, yfirmaður Robert
Koch-smitsjúkdómastofnunarinnar í
Berlín, hvatti til prófana á öllu
sauðfé, sem væri slátrað. Sagði
hann, að það gengi oft innan um
kýmar og því væri ekki útilokað, að
það gæti smitast.
Japansk-
ar konur
áreittar
Tíkýó.AP.
NÆSTUM 70% kvenna í opin-
berri þjónustu í Japan hafa orð-
ið fyrir kynferðislegri áreitni á
vinnustað. Þetta kemur fram í
nýrri könnun sem ríkisstjórnin
létgera á árinu.
Areitnin er með ýmsu móti
en alvarlegri áreitni og líkams-
snertingum hefur þó fækkað
mjög og er lögum sem banna
kynferðislegan yfirgang á
vinnustöðum þakkaður sá ár-
angur. Þau tóku gildi á síðasta
ári.
Þrátt fyrir það líður enn
mörgum konum sem vinna í
ráðuneytunum illa vegna
spurninga um aldur og útlit
þeirra og grófra brandara.
Kærum vegna kynferðislegr-
ar áreitni hefur fjölgað mjög.
Könnun sem ríkisstjórnin lét
gera í vor sýndi að þeim hefur
fjölgað um 35%.
MORQUNBLABW 28. DESEMBER 2000