Morgunblaðið - 28.12.2000, Síða 32
32 FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2000
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Mymiirmir
mímir
Deildu minningunum
með vinum þínum á
hanspetersen.is
etaum CD
Fáðu filmuna
geisladisk.
FáSu hágæðaútprentun á
Ijósmyndapappír í gegnum
hanspetersen.is
ansperersen.is
www
s m
Oeirðir
í Nepal
ÞÚSUNDIR Nepal-búa hafa geng-
ið berserksgang um götur Kat-
mandu, höfuðborgar Nepals, síð-
ustu þrjá daga til að mótmæla
meintum ummælum indverska
kvikmyndaleikarans Hrithiks Ros-
hans. Leikarinn er sagður hafa
lýst því yfir í sjónvarpsviðtali,
sem hefur ekki enn verið sýnt, að
hann hati Nepal og íbúa iandsins.
Roshan neitaði þvf í gær að hafa
látið þessi orð falla.
Innanríkisráðuneytið í Nepal
sagði að fjórir menn hefðu beðið
bana í óeirðunum í Katmandu og
30 særst. Kveikt var í verslunum í
eigu Indverja og ráðist var á
kvikmyndahús sem sýnir eina af
kvikmyndum Roshans. Vinstri-
sinnaðir námsmenn, sem tóku
þátt í óeirðunum, segja að rúm-
Iega 120 hafi særst.
---------------
Skipsstrand í
Norður-Noregi
Talið erfítt
að bjarga
John R
TALIÐ er að erfitt verði að bjarga
vöruflutningaskipinu John R sem
strandaði vestan við Grptpy í
Troms-héraði í Norður-Noregi, að
því er sagði á fréttavef Aítenpost-
en. Skipið strandaði á jóladag en
þyrlur björguðu allri áhöfninni, 26
manns, og mun enginn hafa slas-
ast.
Norskir embættismenn sögðu að
olíuflekkur, þrír sinnum þrír km að
stærð, væri á sjónum í grennd við
skipið og ræki norður á bóginn.
Ekki var ljóst hvers konar olíu um
var að ræða en líklegt að það væri
dísilolía. Byrjað var á því í gær að
dæla um 620 tonnum af olíu úr
skipinu en óljóst var hve langan
tíma það myndi taka. Síðan átti að
þétta göt í vélarrúmi og lestum áð-
ur en reynt yrði að koma skipinu á
flot. Ekki var talin nein hætta á að
skipið sykki, að sögn Reuters.
John R er um 52.000 tonn að
stærð og er í eigu grísks skipa-
félags en skráð á Kýpur. Skipverj-
ar eru frá Filippseyjum, Togo,
Rússlandi og Úkraínu. John R var
á leið frá Liverpool í Bretlandi til
Múrmansk í Rússlandi þar sem
það átti að taka kolafarm og sigla
með hann til Italíu. Enginn farmur
var í skipinu á norðurleiðinni.
íþróttir á Netinu
0 mjbjjs
SKLL.TAf= e!TTH\SA£J rJÝTT