Morgunblaðið - 28.12.2000, Blaðsíða 38
38 FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2000
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Litskrúðugt skógarlíf
Morgunblaðið/ Sverrir
„Bergur Þór Ingólfsson hefur skapað íjörlega sýningu sem börn á öllum
aldri ættu að geta skemmt sér konunglega á“ .
LEIKLIST
L e i k f c1 a g
Itey kjavfkur
MÓGLf
Höfundur leikgerðar: Illugi Jökuls-
son eftir sögum Rudyards Kipling.
Leikstjóri: Bergur Þór Ingólfsson.
Leikarar: Edda Björg Eyjólfsdóttir,
Ellcrt A. Ingimundarson, Friðrik
Friðriksson, Gunnar Hansson, Hall-
dór Gylfason, Jóhann G. Jóhanns-
son, Jóhanna Vigdís Arnardóttir,
Katla Margrét Þorgeirsdóttir og
Theodór Júlíusson. Hljóðfæraleik-
arar: Jón Elvar Hafsteinsson,
Kjartan'Valdimarsson og Óskar
Einarsson. Leikmynd: Stígur Stein-
Jþórsson. Búningar: Linda Björg
Arnadóttir. Leikgervi: Sójey Björt
Guðmundsdóttir. Lýsing: Ögmund-
ur Þór Jóhannesson. Tónlist og
tónlistarstjórn: Óskar Einarsson.
Danshöfundur: Guðmundur
Helgason. Stóra svið Borgarleik-
hússins, 26. desember.
SAGAN AF mannsbaminu Móglí,
sem elst upp hjá úlfum, á skóg-
arbjöminn Balú og hlébarðann Bag-
híra að vinum en er ofsóttur af tígr-
isdýrinu Shere Khan, hefur löngum
heillað börn á öllum aldri - ekki síst
fræg og ágætlega lukkuð útgáfa
Disney-samsteypunnar sem gefin
hefur verið út á myndbandi, m.a. á
íslandi.
Leikgerð Illuga Jökulssonar er
unnin upp úr sögum nóbelshafans
Rudyards Kiplings, Skógarlíf, og er
að ýmsu leyti frábragðin áður-
nefndri Disney-útgáfu, enda fylgir
Illugi söguþræði Kiplings en að
venju breyta þeir Disneymenn sög-
unni eftir eigin geðþótta. Leikgerð
Illuga er heilsteypt og í alla staði vel
gerð. Helst mætti finna að því
hversu hlutverk Móglí sjálfs er í
raun og vera lítið. Illugi hefur einn-
ig samið nokkra söngtexta fyrir
sýninguna en Óskar Einarsson á
heiðurinn af tónlistinni sem er í
flesta staði grípandi og áheyrileg.
Leikurinn gerist inni í framskóg-
inum og Stígur Steinþórsson á heið-
urinn af einfaldri og fallegri leik-
mynd sem gefur ágætis tilfinningu
fyrir sögusviðinu.
Hér era það dýrin, frekar en
Móglí sjálfur, sem era í aðalhlut-
verki, eins og áður er getið. Átök
verksins era á milli dýranna og snú-
ast um völd og yfirráð í skóginum.
Velferð Móglí er þó vissulega undir
því komin að þeir sem völdin hafa
séu honum hiiðhollir. Kannski er
það í takt við þá skoðun sem sett er
fram í verkinu, að maðurinn sé aum-
astur dýranna, nema þegar hann
hefur byssu í hendi eða getur beitt
hinu „rauða blómi (eldinum) fyrir
sig, hversu lítið fer fyrir Móglí í
verkinu. Átökin standa á milli úlfa-
foringjans Akela (Halldór Gylfason)
og tígrisdýrsins Shere Khan (Jó-
hann G. Jóhannsson). Og átökin
snúast um yfirráðin yfir manns-
barninu (Friðrik Friðriksson) sem
hefur villst vamarlaust inn í skóg-
inn. Úlfaforinginn og þó sérstaklega
hin röggsama úlfamamma Raksja
(Katla Mai-grét Þorgeirsdóttir) vilja
ala mannsbarnið upp og vernda það
fyrir ógnum skógarins, en Shere
Khan vill éta það. Shere Khan er í
túlkun Jóhanns G. Jóhannssonar
minna ógnvekjandi en tilefni er til -
ef til vill er það meðvituð leið leik-
stjórans (Bergs Þórs Ingólfssonar)
að stilla ógninni í hóf til að skelfa
ekki hina ungu áhorfendur um of -
hann virðist ekki skelfa neinn nema
fylgisvein sinn og þjón, sjakalann
Tabaskví (Gunnar Hansson) sem þó
gerir grín að honum og leið og hann
snýr við honum baki. Það er frekar
með undirróðri, mútum og smjaðri
sem Shere Khan vinnur meðlimi
úlfahjarðarinnar á sitt band. Hér er
kannski komin raunsönn mynd af
valdinu. Gunnar Hansson er frábær
í hlutverki Tabaskvi og er túlkun
hans sú eftirminnilegasta í sýning-
unni.
Friðrik Friðriksson fer ágætlega
með hlutverk Móglís en hlutverkið
gefur þó lítið færi á blæbrigðaríkum
leik. Halldór Gylfason er ágætur í
hlutverki Akela en þó betri í hlut-
verki apa, þar vora taktar hans
skemmtilegir og skar hann sig mjög
úr apahópnum hvað túlkun varðar.
Leikgervi Sóleyjar Bjartar Guð-
mundsdóttur og búningar Lindu
Bjargar Árnadóttur setja mikinn og
skemmtilegan svip á sýninguna.
Sérstaklega skemmtilegir era apa-
búningarnir og í heild einkennast
gervi dýranna af framleika og
hvergi er fallið í klisjukenndar út-
færslur. Gervi kyrkislöngunnar Kaa
(Jóhanna Vigdís Arnardóttir) er
gott dæmi um snjalla útfærslu á
gervi sem ef til vill er erfitt að raun-
gera á sviðinu. Jóhanna Vigdís var
ágæt í hlutverki Kaa og söng af ör-
yggi eins og við var að búast.
I hlutverki Balús, hins brjóstgóða
bangsa, er Theodór Júlíusson og
smellpassar hann í gervið. Ellert A.
Ingimundarson leikur svarta hlé-
barðann Baghíra og gaf hann hon-
um tragískan tón sem kom
skemmtilega á óvart. Edda Björg
Eyjólfsdóttir var skemmtileg í apa-
hlutverki, en hún var einnig í hlut-
verki úlfahvolps, úlfadómara og
stúlkunnar sem leiðir Móglí aftur til
mannanna. Það er kannski ágætt
dæmi um sterka nærvera Eddu
Bjargar að 5 ára dóttir mín vissi
alltaf hvar hún var á ferðinni, þrátt
fyrir ólík gervin.
Það er í hópsenunum (t.d. þar
sem aparnir koma við sögu) sem
sýningin er skemmtilegust og tón-
listin skiptir hér einnig miklu máli.
Bergur Þór Ingólfsson, sem leik-
stýrir hér atvinnuieikhópi í fyrsta
sinn, hefur skapað fjörlega sýningu
sem börn á öllum aldri ættu að geta
skemmt sér konunglega á. Sýningin
er mikið fyrir augað; það gerir fal-
leg leikmynd og sniðug og vel út-
færð leikgervin.
Soffía Auður Birgisdóttir
Meðlagsgreiðendur!
Vinsamlegast gerið skil hið fyrsta
og forðist vexti og kostnað
Innheimtustofnun sveitarfélaga
• Lágmúla 9 • sími 568 6099
• fax 568 6299 • pósthólf 5172
• 125 Reykjavík • kt. 530372 0229
• Landsbanki íslands 139-26-4700
Handskornu „2001" kristalsglösin komin aftur!
Útsölustaðir:
Akranes
Akureyri
Bíldudalur
Blönduós
Bolungarvík
Borgames
Búðardalur
Egilsstaðir
Eskifjörður
Fáskrúðsfj.
Grindavík
Grandarfj
Hella
Húsavík
Hólmavík
Hveragerði
Höfn
Isafjörður
Keflavík
Kópavogur
Ólafsfjörður
Ólafsvík
Óspakseyri
Patreksfj
Raufarhöfn
Verslunin Módel
Blómabúðin Akur,
Kristalsbúðin
Vegamót
Bæjarblómið
Laufið
Blómabúð Dóra
Verslun Einars Stefánss.
Raftækjav. Sveins Guðm.
Verslunin Sjómann
Hin búðin
Blómabúðin Sóldögg
Verslunin María
Vörafell
Verslunin Tamara
Kf. Steingrímsfjarðar
Blómaborg
K.Á., bókabúð
Skrínið
Stapafell
Kristall & postulín
Verslunin Valbúð
Verslunin Vík
Kf. Bitrafjarðar
Geirseyjarbúð
Verslunin Urð
Reykjavík
Sauðárkrókur
Selfoss
Siglufjörður
Stykkishólmur
Tálknafjörður
Vestmannaeyjar
Vík
Þorlákshöfn
Þórshöfn
Antikb. Laugavegi 101,
Gull & silfursm. Mj.,
Villeroy&Boch,Kringl.
Blóma & gjafavörab.
Úrav. Karl R. Guðm.
Bólsturgerðin
Heimahomið
Pokahomið
Gullsm. Steingr. Ben.
Klakkur
Hjá Jóhönnu
Verslunin Lónið.
afsláttur
af öllu jólaskrauti