Morgunblaðið - 28.12.2000, Page 41
Hafnarfjörður -fjölskyidan í fyrirrúmi
Leikskóli við Háholt: Hönnuður: Albtna Thordarson. Byggingarform: Einkaframkvæmd. Byggingaraðili og eigandi: Ístak/Nýsir
Nýr leikskóli í Hafnarfir&i
Leikskólakennarar óskast
I Hafnarfirði búa um 20 þúsund
manns. Bærinn stendtír í
einstaklega fallegu umhverfi hrauns
og kletta þar sem stutt er milli fjalls
og fjöru, Bærinn státar af einstakri
sögu sem höfudstaður verslunar á
Islandi fyrr á ti'mum og einhverjum
bestu hafnarskilyrðum sem völ er
á frá nátturunnar hendi.
Hafnarfjörður hefur þá bæjarsál
sem einkennir búsetu við sjó og
státar um Ieið af hagkvæmni
stærðarinnar. Bæjarbúar njóta
nálægðar við höfuðborgina eins
og best verður á kosið.
Það er gott að búa og
starfa t Hafnarfirði.
í byrjun næsta árs verður nýr og glæsilegur fjögurra deilda leikskóli við Háholt tekinn í notkun.
Leikskólinn er byggður eftir verðlaunateikningu Albínu Thordarson og er staðsettur nálægt
grunnskóla hverfisins.
í daglegu starfi leikskólans verða Framfarastefna johns Deweys og kenningar Caroline
Pratt lagðar til grundvallar. Haft verður að leiðarljósi að börnin fái tækifæri til að endurskapa
reynslu sína og fái útrás fyrir hugmyndaflug og sköpunargáfu, í gegnum leikinn.
Sem leið að þessu markmiði má m.a. nefna:
notkun á einingakubbum og opnum efniviði til leikja og sköpunar.
heimspekilegar vangaveltur í samskiptum barna og fullorðinna.
áhersla á umhverfi og endurvinnslu í daglegu starfi.
samstarf leik- og grunnskóla.
Leitað er eftir áhugasömum leikskólakennurum sem vilja taka þátt í að byggja upp lærdómsríkt,
skapandi og aðlaðandi umhverfi fyrir bæði börn og fullorðna.
Óskað er eftir að ráða:
aðstoðarleikskólastjóra
leikskólakennara m/deildarstjórn
leikskólakennara
Nánari upplýsingar veitir Inga Líndal, leikskólastjóri í síma 585-5800 milli kl. 12 og 14.
Einnig veita leikskólafulltrúi og leikskólaráðgjafi upplýsingar í síma 585-5800.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar, Strandgötu 31.
Jafnframt er hægt að nálgast umsóknareyðublöð á www. hafnarfjordur.is. Umsóknarfrestur er
til 15. janúar nk. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum launanefndar sveitarfélaga og FÍL/STH.
Vakin er athygli á því að ef ekki tekst að ráða leikskólakennara
í stöðurnar kemur til greina að ráða fólk með aðra
uppeldismenntun eða reynslu.
Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar er
þjónustumiðstöð í þágu menntunar
í bæjarfélaginu. Þar starfa sérhæfðir
starfsmenn sem veita faglega
ráðgjöf og þjónustu til leik- og grunnskóla.
Skólafulltrúinn \ Hafnarfirði