Morgunblaðið - 28.12.2000, Page 67
MCHlUlJNBLAtHD
UMRÆÐAN
F1MM TLDAG 11H 28. DESE M,i? UH 2000 ,
Heilbrigðisþj ónusta
í skugga Kára
LÍFTÆKNI hefur sem annað
margar hliðar, sumar jákvæðar en
aðrar varhugaverðar eða neikvæð-
ar. íslensk erfðagreining og de-
CODE eru einn angi þróunar á
þessum meiði og hafa komið inn í
íslenskt samfélag eins og storm-
sveipur. Margt jákvætt má sjá við
nýsköpun sem fylgir fyrirtækjum
þessum en skuggahliðarnar eru
líka margar og verður hér horft til
þeirra og líklegrar framvindu.
á sveif með ráðherrunum að
hækka pundið í Kára. Þeir sem
keyptu hlutinn á gráa markaðnum
fyrir ígildi 50-60 dala hafa síðustu
vikur mátt horfa á hann rýrna fer-
falt eða meira. Nokkrir hafa þann-
ig tapað aleigunni. Af þessum
brunni eys nú íslensk erfðagrein-
ing til beggja handa og ráðherrar
sem aðrir mæna á kraftaverka-
manninn sem lætur peningana
vaxa á trjánum. Enginn veit hvort
þessi fengur ásamt aurunum frá
Hoffmann la Roche dugar til að
fleyta deCODE yfir taprekstur á
komandi árum. Hins vegar þurfa
bakmennirnir engu að kvíða því að
þeir hafa þegar lagt til hliðar sinn
lífeyri.
Langt í gagna-
grunninn
í þessu samhengi skiptir gagna-
grunnurinn litlu máli, bara að fjár-
festar telji að hann verði einhvern
tíma til. Einnig hann er hluti af
trúnni á deCODE og Kára. Aðal-
atriðið er að menn haldi að með
slíku veiðarfæri fiskist betur í
genamengi íslendinga en hjá
keppinautunum.
I þessu grugguga vatni sér
hvergi til botns. Læknar eru tví-
stígandi og eiga í stríði við sam-
visku sína og eiðstafi. Lagaum-
hverfið er rekstrarleyfishafa
gagnagrunnsins mótdrægt, m.a. að
því er varðar samtengingu sjúkra-
skráa og réttindi sjúklinga. Tölvu-
nefnd hefur ekki lagt blessun yfir
skráningu í grunninn og við nefnd-
inni blasa margar grundvallar-
spurningar. Eflaust reyna óprúttin
stjórnvöld að brjóta niður slíkar
hindranir jafnhliða því sem Kári
lætur glitta í gullið sem víðast.
Á meðan þessu vindur fram og
hlutabréfin í deCODE lækka stöð-
ugt flytja grafalvarlegir fjölmiðlar
okkur kraftaverkasögur á færi-
bandi frá seyði Kára. Einn daginn j
er tiltekið gen staðsett, þann
næsta er sýnt fram á samband
milli sjúkdóms og erfða. Höfundur
Reykjavíkurbréfs sér fyrir sér líf-
tæknina skáka sjávarútveginum á
nýrri öld [Mbl. 17. des. 2000]. Allt
geta þetta verið frómar óskir, en
það fer minna fyrir umræðu um
hvert stefni, hvaða siðræn gildi
beri að virða og hvort trúarjátning
markaðarins eigi að leysa af hólmi
það sem sumir tengja almáttugum
guði en aðrir við þróun lífs frá
örófi alda.
Höfundur er fyrrverandi
aIþingismaður.
Hjörleifur
Guttormsson
Líftækni
Tölvunefnd hefur ekki
lagt blessun yfír skrán-
ingu í grunninn, segir
Hjörleifur Guttorms-
son, og við nefndinni
blasa margar grund-
vallarspurningar.
Með tilkomu íslenskrar erfða-
greiningar er allt í einu komið fjár-
magn í áður óþekktum mæli í
hendur einkaaðila á íslandi. Fyr-
irtækið lýtur einum vilja, fer mik-
inn og sáldrar fé á báðar hendur.
Allt er það hugsað út frá hags-
munum eigandans sem kaupir op-
inbera aðila, rannsókna- og sjúkra-
stofnanir, einstaklinga og fjölmiðla
til að þjóna fyrirtæki sínu.
Ráðherrar upp á punt
Hugmynd Kára Stefánssonar
um einkaleyfí á heilbrigðis- og
erfðaupplýsingum íslendinga var
djörf og um leið ófyrirleitin á við-
tekinn mælikvarða um persónu-
vernd og mannréttindi. Til að þoka
henni áfram þurfti hann stuðning
ríkisstjórnar og meirihluta Aiþing-
is og fékk hann, þrátt fyrir mikla
andstöðu í vísindasamfélaginu og
sterkar aðvaranir, m.a. erlendis
frá. í þessu efni lagði Davíð Odds-
son sig að veði og framsóknarráð-
herrarnir sem stjórnarfarslega
ábyrgð bera á heilbrigðismálum
gerðu ekki annað en hneigja sig.
Niðurstaðan er grímulaus sam-
þætting yfirstjórnar heilbrigðis-
mála í landinu og einkafyrirtæk-
isins Islenskrar erfðagreiningar.
Eftir þetta er nánast formsatriði
hver situr í stóli heilbrigðisráð-
herra. Háskólasamfélagið er á
sama hátt beygt undir hagsmuni
fyrirtækisins og þess iðnaðar .sem
það ætlar að reka. Hvergi í riálæg-
um löndum myndi stjórnvöldum
líðast að standa þannig að verki.
Margur rúinn
að skinni
Auglýsing stjórnvalda á gull-
greftri íslenskrar erfðagreiningar
og bandaríska móðurfélagsins de-
CODE hefur þegar haft víðtækar
afleiðingar. Fyrirtækinu tókst, áð-
ur en það fór í skráningu á hluta-
bréfamarkaði, að sækja í formi
hlutafjár ómældar upphæðir í vasa
einstaklinga og sjóða. Verðbréfa-
salar trúðu á kraftaverk og lögðust
Ný8-vikna námskeið
hefjast 8. janúar
Mifro 2001
LIFSSTILLJ
Notaðu tækifærið og breyttu
þfnum lífsstíl til hins betra. Láttu
Hreyfingu hjálpa þér við að ná
þínu takmarki.
Hretffing
HREYFINC FAXAFENI 14 548 »915 533 3355 WWW.HREYFXNC.XS
HREYFING
ER HLUTI AF
MINU LIFI
Erna Torfadóttir, 34 ára grunnskólakennari.
Gift tveggja barna móðir.
Hefur æft í Stúdíóinu og síðan Hreyfingu síðan 1994. Fór á þrjú
námskeið síðasta vetur. Á námskeiðunum losnaði hún við 18 kg.
Ég hef verið í Bónusklúbbnum í 3 ár en hann bæði er hagstæður
kostur og heldur manni við efnið.
Það sem mér finnst gott við Hreyfingu er fjöldi kennara sem mér
líkar vel við, það er notalegt og gott að koma í stöðina og
félagsskapurinn skiptir miklu máli.
Ég hef mjög góða reynslu af námskeiðunum hjá Hreyfingu.
Fræðslan er gagnleg og matardagbækurnar hjálpa mjög mikið,
sérstaklega til að átta sig á ómeðvituðu mynstri í matarvenjum.
Tímarnir sjálfir eru mjög góðir á námskeiðunum, góður andi
myndast innan hópsins og gott að koma í tíma. Fitumælingarnar
veita gott aðhald og ég nota þær til að fylgjast með því hvernig
mér gengur.
Núna er það vellíðanin sem hvetur mig áfram, ég hef meira úthald,
er sprækari og þreytist síður.
Ég mæli með Hreyfingu!
A.
ft-
s%
4