Morgunblaðið - 28.12.2000, Side 69
CtlttA.iaWKMIOM
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Þitt framlag skiptir sköpum!
Á HVERJU ári fá
björgunarsveitir okkar
1.200-1.500 beiðnir um
leit, aðstoð og/eða
björgun. Því eru að
jafnaði um þrjár björg-
unarsveitir að störfum
á hverjum degi ársins.
Þetta er ekki lítið;
kannski mun meira en
þú, lesandi góður, gerð-
ir þér grein fyrir.
Björgunarmál
á Islandi
Það eru 105 björgun-
arsveitir starfandi í
landinu. Þeim hefur
fækkað nokkuð á síð-
asta ári en það helgast fyrst og
fremst af sameiningu sveita í kjölfar
sameiningar Landsbjargar og Slysa-
varnafélags Islands í Slysavarna-
félagið Landsbjörg í október 1999.
Sú sameining hefur víða skilað sér í
öflugra starfí og aukinni hagræðingu
eins og stefnt var að.
Það fyrirkomulag björgunarmála
sem við Islendingar búum við er
bæði mjög öflugt og hagkvæmt, og
til sanns vegar má færa að það sé um
margt betra en gengur og gerist hjá
mörgum grannþjóðum okkar. Enda
er það svo að margir erlendir aðilar
hafa horft til okkar og sýnt þessu
fyrirkomulagi mikinn áhuga.
Ein af forsendum þess, að hægt er
að reka öflugt sjálfboðastarf björg-
unarsveita, er að skilningur og áhugi
á því sé til staðar, bæði hjá ráða-
mönnum og almenningi. Það er
nokkuð sem við íslendingar höfum
átt láni að fagna og með réttu má
segja að þessi áhugi og skilningur sé
samofínn íslensku þjóðarsálinni. Því
það er eklá sjálfsagt að fjöldi ein-
staklinga sé tilbúinn að nóttu sem
degi til að bregðast við
þegar einhver er í
nauðum eða þarfnast
aðstoðar? Að taka
hagsmuni náungans
fram yfir eigin hags-
muni? Sá áhugi og vilji
þarf að koma innan í
frá, því líkt og lands-
menn þekkja þiggja
björgunarsveitir lands-
ins ekki laun fyrir störf
sín. Engin rukkun eða
reikningur er sendur
þó svo að fjöldi einstak-
linga með mikið af
tækjum og búnaði vinni
um langa hríð að leit,
björgun eða aðstoð.
Það yrði jafnfámennu samfélagi og
ísland er, ógerlegt ef greiða ætti fyr-
ir þjónustu sem þessa.
Fólkið í
björgunarsveitunum
Fólk sem kemur til starfa í björg-
unarsveitum gerir það af einhverri
innri þörf. Þörfmni fyrir félagsskap,
ævintýraþrá, tækifærum til að
þroska sig og mennta o.s.frv. Sumir
hverfa fljótt úr starfi. Finna sér ekki
farveg sem eðlilegt er. Aðrir ílengj-
ast í starfinu og brátt verður það lífs-
stfll. Eftir stærri áfoll verðum við oft
fyrir mikilli blóðtöku, þegar hæft
fólk treystir sér ekki til frekara
starfs. Við höfum af biturri reynslu
lært að bregðast við þeim aðstæðum
með áfallahjálp, sem hefur gert
mörgum kleift að komast yfir erfiðan
hjalla og halda áfram björgunar-
sveitastai’finu.
Það að afla fjár til starfsins er okk-
ur ákaflega mikilvægt. Það er okkur
nauðsynlegt að geta endumýjað
tæki og búnað sveitanna, samfara
því að efla menntun og þjálfun björg-
Björgunarstörf
Að jafnaði, segir Jón
Gunnarsson, eru um
þrjár björgunarsveitir
að störfum á hverjum
degi ársins.
unarsveitamannsins. Þetta hefur
gengið ágætlega, fyrst og fremst fyr-
ir skilning almennings á okkar starfi.
Góður skilningur stjórnvalda á þessu
starfi skiptir okkur einnig miklu
máli.
Flugeldasalan
Nú fer í hönd stærsta fjáröflun
björgunarsveita landsins, flugelda-
salan. Það hefur skapast sú hefð á
mörgum heimilum að kaupa flugelda
hjá björgunarsveitunum til að
styrkja starf þeirra. Undanfamar
vikur hafa verið annasamar hjá
björgunarsveitafólki og fjölskyldum
þeirra, við pökkun á flugeldum og
annan undirbúning flugeldasölunn-
ar. Flugeldasalan stendur stutt yfir
og því þarf allt að vera til reiðu.
Lesandi góður! Ég vil hvetja þig
til að hugsa til þess fómfúsa starfs
sem sjálfboðliðar í björgunarsveitum
landsins leggja til samfélagsins. Með
því að beina flugeldakaupum þínum
til björgunarsveitanna leggur þú þitt
af mörkum við björgun mannslífa.
Að lokum vil ég hvetja alla lands-
menn til að sýna aðgát í meðferð
flugelda. Megum við eiga slysalaus
áramót.
Höfundur er formaður
Slysavamafélagsins Landsbjargar.
Jón
Gunnarsson
12 >I3UMri8HCI .82 HUOAtt! ITMMIU 8a
FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2000 fiá
Fæst í Apótekinu, Lyfju, Lyf og heilsu, Heilsuhúsinu og apótekum landsins.
Morning Fit’ timburmannataflan dregur úr og getur komið í veg
fyrir hin þekktu heilsufarslegu eftirköst áfengisneyslu og slegið
„timburmennina"af. (töflunni er auk
vítamína, sérstök gertegund sem
nefnist KR9 og er einungis þekkt
af framleiðanda Morning Fit*.
irhíz Gleðilegtár
með Morning Fit
Vantar þi§ vinnu?
www.radning.is
/ leirkrukku
Kertastjaki
úr glerí með
gelkerti f
Gull kúlukerti eða 2 stk.
„Athena“ kerti