Morgunblaðið - 28.12.2000, Page 71
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2000
UMRÆÐAN
Einelti eða
ósanng’irni
ÉG MÁ til með að láta nokkur orð
falla í sambandi við ríkisstjórn
Davíðs Oddssonar, ótrúlegar að-
gerðir hans manna gagnvart minni
máttar í þjóðfélaginu, t.d. öryrkj-
um. Davíð virðist ekki ætla að taka
mark á æðsta dómstól í landinu,
Hæstarétti. Davíð ætti að vita
sjálfur, að aðgerðir ríkisstjórnar-
innar hafi verið mjög vafasamar,
þegar lögin um öryrkja voru sett.
(Össur Skarphéðinsson benti
fréttamönnum á að á sínum tíma
Bjami V.
Bergmann
hefði ríkisstjórnin verið vöruð við
að setja þessi lög því í þeim væru
brot á mannréttindum og öðrum
lögum).
En ríkisstjórn Davíðs hélt áfram
og samþykkti samt lögin í krafti
meirihluta á þingi. Svo loks þegar
fólkið í landinu er að missa trúna á
réttarkerfið kemur Hæstiréttur á
óvart. Með dómi sínum um öryrkja
(Hæstiréttur hefði mátt setja út á
ríkisstjórnina fyrir að setja á þvílík
ólög, svipað og þeir gera þegar
þeir senda dóma frá Héraðsdómi
aftur heim í hérað þegar Héraðs-
dómur hefur ekki unnið sína vinnu
nægilega vel) svo fara skósveinar
Davíðs af stað, ekki til að reyna að
réttlæta lögin um öryrkja, heldur
til að segja Hæstarétti til synd-
anna rétt eins og eggið færi að
kenna hænunni. Fremstur í flokki
fer Jón Steinar Gunnlaugsson, sem
má muna sinn fífil fegri, eftir að
hann fór með mál fyrir Mannrétt-
indadómstólinn í Haag, en virðist í
dag einn aðalmaðurinn i að stuðla
að því að mannréttindi séu tekin af
fólki. Það eru minnimáttar hópar í
þjóðfélaginu sem hafa orðið fyrir
einelti og eða ósanngirni af hálfu
stjórnvalda. Ellilífeyrisþegar sem
eru margir hverjir með lífeyri sem
er til háborinnar skammar fyrir
stjórnvöld, sem segja alla hafa það
gott. Mér skilst að Pétur Blöndal
alþingismaður hafi komið sér svo
vel fyrir fjárhagslega að hann hafi
farið út í pólitík af hálfgerðri hug-
sjón. En eftir að hafa hlustað og
horft á hann tala um gamla fólkið
okkar í sjónvarpinu vona ég bara
að ég hafi misskilið hann. Eg segi
að þetta eldra fólk sumt hvað lifir á
sultarfæði til að eiga t.d. fyrir jóla-
gjöfum handa barnabörnunum og
er af þeirri kynslóð sem bæði hefur
{ Nýtt - nýtt
Mörkinni 3, sími 588 0640
Opið mán.-fös. frá kl. 12-18.
Lau. frá kl. 11-16
byggt upp þjóðarauðinn og lifað
kreppuna en vill samt ekki að ætt-
ingjarnir hafi áhyggjur af því.
Þetta fólk á að líta á sem hetjur
þessa lands og heldri borgara og
lífeyririnn ætti að duga fyrir fleiru
en nauðsynlegustu lyfjum, sem
flestir þurfa þegar þeir eldast.
Þetta fólk er réttilega reitt út í
stjórnvöld. Peningar eiga að mínu
áliti að vera hjálpartæki lífsins en
því miður þegar fólk lifir ekki í
jafnréttisþjóðfélagi og fær ekki að
Lífskjör
Peningar, segir Bjarni
V. Bergmann, eiga að
mínu áliti að vera hjálp-
artæki lífsins.
njóta sín breytist fólkið, verður bit-
urt og reitt, þau örlög hafa ráða-
menn þjóðarinnar á samviskunni.
En það er betra seint en aldrei að
snúa blaðinu við sérstaklega hjá
stjórnmálamönnum sem telja sig
gáfaða og vilja láta bera virðingu
fyrir sér og sínum störfum.
Þá vil ég benda á að mikilvægur
hluti uppeldis barna okkar liggur
hjá kennurum þessa lands en þeg-
ar þetta er skrifað er ekki enn búið
að semja um laun við þá. Eins og
bent hefur verið á í dagblöðunum
eru ekki mörg ár síðan þingmanna-
laun og kennaralaun fylgdust að og
vil ég benda kennaraforustunni á
að fara fram á að kjaradómur
ákvarði laun þeirra eins og þing-
manna á sínum tíma, þá ætti sú
deila vonandi að leysast. Ég vil
jafnframt benda á þá staðreynd, að
þeir sem eru að semja fyrir verka-
lýðinn verða að vera verkalýðurinn
þá meina ég að kjarasamningafólk
sem er með margfaldar tekjur
verkafólks veit ekki hvað það er að
vera á verkamannalaunum það
sýnir sig best í, að enn eru pró-
sentuhækkanir við lýði, en eins og
allir sjá ef laun hækka um 10% þá
fær maðurinn sem er með 80 þús.
kr. á mánuði 8.000 kr. hækkun, á
meðan maðurinn sem er með 800
þús. kr. á mánuði fær 80 þúsund
kr. hækkun.
Að lokum vil ég skjóta fralP
þeirri spurningu hvort rétt sé að,
þegar fyrsta ríkisstjórn Davíðs
Oddsonar tók við völdum 1991 hafi
nettó staða erlendra skulda verið
167 milljarðar en séu í dag 402
milljarðar, því vil ég ekki trúa en
ég bið um svar.
Þjóðin dáðist réttilega að Davíð
Oddssyni þegar hann sagði: „Svona
gerir maður ekki,“ þegar skatt-
leggja átti blaðburðarbörnin okk-
ar. Þess vegna langar mig að vita
hvort þetta allt sé Davíð Oddssyni
að kenna eða hvort Davíð hafi bara
lent í slæmum félagsskap? •*-
Höfundur er ;t tvin n u bílstjóri.
Ætlar þú að gera samning
um lífeyrissparnað
fyrir áramót?
Hjá VÍB getur þú valið á milli
eftirtalinna ávöxtunarleiða.
ALVÍB, séreignarsjóður (aldurstengd verðbréfasöfn)
Ævileiðin. Inneign sjóðfélaga færist milli
aldurstengdra verðbréfasafna eftir aldri
Ævisafn I (hentar fyrir 44 ára og yngri)
Ævisafn II (hentar fyrir 45 ára til 64 ára)
Ævisafn III (hentar fyrir 65 ára og eldri)
Eftirlaunareikningur VÍB
Sjóður 1 - innlend markaðsskuldabréf
Sjóður 5 - innlend ríkisskuldabréf
Sjóður 6 - innlend hlutabréf
Sjóður 10 - úrval innlendra hlutabréfa
A.Stra - Grunnsafnið ALVlBerfjölmennastiséreignarsjóðurinnmeðrúmlega
Astra - Heimssafnið 13.250 sjóðféiaga.
* \/ r A Eftirlaunareikningi geta sjóðfélagar búið til
/\Stra ' Vaxtarsarnio sinneiginséreignasjóðmeðinnlendumog/eðaerlendum
Astra -21 öldin verðbréfum, eftir því sem hentar hverjum og einum.
Hlutabréf, einstök félög skráð á aðallista Verðbréfaþings Islands sem
hafa verið rafvædd.
ZZ'
Hvað á að gera?
Ef þú vilt gera samning um lífeyrissparnað þarft þú
bara að fylla út eyðublað sem fylgir með bæklingi
um lífeyrissparnað sem þú getur fengið hjá VfB, eða
i næsta útibúi íslandsbanka. Pú getur líka sótt
samningseyðublaðið á vib.is eða hringt til okkar og við
sendum þér það. Svona einfalt er þao!
• Þú fyllir út samning um lífeyrissparnað og sendir hann til VÍB
á Kirkjusandi.
• Við sjáum um að tilkynna launagreiðanda um samninginn.
• Launagreiðandi greiðir viðbótariðgjöldin til V(B.
Tækifærisem
enginn má missa af!
©
Ijjgjgp
irT
VIB
VÍB er hlutí af Íslandsbanka-FBA hf.
Kirkjusandi • Sími 560-8900 • www.vib.is • vib@vib.is