Morgunblaðið - 28.12.2000, Qupperneq 85
MORGUNBLAÐIÐ
DAGBOK
FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2000 85
BRIPS
I nisjiin Uuðmiimliir IMIl
Arnarson
SUÐUR veit af tíu spilum
a.m.k. í laufí og tígli á
hendi vesturs og það ætti
að hjálpa honum til að
flnna bestu leiðina í fjórum
hjörtum:
Suður gefur, enginn á
hættu.
Norður
A K642
» R10987
♦ A2
* 54
Suður
aDG3
VÁDG65
♦ D8
+D76
Vestur Norður Austur Suður
1 hjarta
2 grönd * 4 hjörtu Pass Pass
Pass
* láglitir
Vestur kemur út með
laufkóng og skiptir síðan
yfír í tromp. Hver er besta
áætlunin?
Það lítur út fyrir að
vestur sé með ÁKG í iaufi
og tígulkóng (ella myndi
hann spila tígli í öðrum
slag). Varla er vestur með
einspil í spaða, því þá væri
freistandi fyrir hann að
spila spaða, svo líklegasta
skipting hans er 2-1-5-5. Á
hann spaðaásinn? Það er
ómögulegt að segja, en þó
á móti líkum. Austur á
greinilega fleiri spaða
(minnst fjóra) og ásinn er
líklegri til að vera í flokki
fjögurra spila en tveggja -
og svo doblaði vestur ekki
lokasögnina, sem hann
hefði getað gert með
sjaðaásinn til viðbótar við
ÁK í laufi og tígulkóng.
Norður
A K642
v K10987
♦ A2
♦ 54
Vestur Austur
+ 108 +Á975
V2 v43
♦ KG943 ♦ 10765
+ÁKG83 +1092
Suður
aDG3
VÁDG65
♦ D8
+D76
Ef þetta er legan er best
að taka fyrsta hjartaslag-
inn í borði og spila spaða
að litlu hjónunum. Austur
má ekki drepa, því þá frí-
ast fjórði spaði blinds.
Suður fær því á spaða-
drottningu og fer næst inn
í borð á tromp til að spila
aftur spaða. Enn verður
austur að dúkka og spaða-
gosinn á slaginn.
Þá er spaðinn gefínn
upp á bátinn og vestur
sendur inn á lauf - lauf-
drottningu spilað að heim-
an. Vestur kemst tíma-
bundið út á þriðja laufinu,
sem er trompað í borði. En
nú er sviðið sett fyrir inn-
kastið. Tígulás er tekinn
og tígli spilað aftur. Vestur
fær á kónginn en verður
að spila út í tvöfalda eyðu
og þá hverfur tapslagurinn
á spaða heima.
Árnað heilla
P A ÁRA afmæli. í dag,
O U fimmtudaginn 28.
desember, verður fimmtug-
ur Ómar Hauksson, skrif-
stofusljóri, Hólavegi 41,
Siglufirði. Eiginkona hans
er Kristín Jónasdóttir en
hún varð fimmtug 1. maí sl. í
tilefni tímamótanna bjóða
þau hjónin til móttöku nk.
föstudag, 29. desember, í
Ráðhúsinu á Siglufirði frá
kl. 20-23.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 26. ágúst sl. í Þing-
vallakirkju af sr. Sigurði
Árna Þórðarsyni Sigríður
Dögg Auðunsdóttir og
Edward John Williams.
Heimili þeirra er i London.
SKAK
IJinsjiín llelgi Ass
(irétarsson
Heimsmeistarakeppni
FIDE er lokið. Viswanath-
an Anand varð heims-
meistari í opnum flokki, en
Xie Jun (2567) varði
heimsmeistaratitil sinn í
kvennaflokki. Anand sigi’-
aði Alexei Shirov örugg-
lega, 3Vz vinningur gegn 'h
vinningi í 6 skáka einvígi,
en Xie Jun sigraði kín-
verska löndu sína Qin
Kanying (2484) 2V4-1V4.
Staðan kom
upp í einvígi
kvennanna og
stýrði heims-
meistarinn
hvítu mönn-
unum. 29.
Hxe5! hvítur
verður tíma-
bundið manni
yfir sem
tryggir hon-
um léttunnið
peðsendatafl.
29... Kxe5 30.
Rf7+ Kf6 31.
Rxh8 g5 32.
Kf2 Kg7 33.
e4 Kxh8 34.
Ke3 Kg7 35. g4 Kf6 36.
Kd4 Ke7 37. e5 Kd7 38.
Kc5 a5 39. Kb5 a4 40. a3
h6 41. h3 og svartur gafst
upp. Skákin tefldist í heild
sinni: 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3.
Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. 0-0
Rxe4 6. d4 b5 7. Bb3 d5 8.
dxe5 Be6 9. Rbd2 Rc5 10.
c3 Be7 11. Bc2 d4 12. Re4
d3 13. Rxc5 dxc2 14.
Dxd8+ Hxd8 15. Rxe6
fxe6 16. Be3 Hd5 17. c4
bxc4 18. Hacl Bc5 19.
Hxc2 Bxe3 20. fxe3 Hc5
21. Rg5 Rd8 22. Hd2 Hd5
23. Hfdl Hxd2 24. Hxd2 c3
25. bxc3 Ke7 26. Hd4 Rc6
27. Hf4 Rxe5 28. He4 Kf6
UOÐABROT
GÆÐIÍSLANDS
Heilagan anda hjartað mitt
af himnum bið eg nú fræða,
að mildiverkið mætti þitt
fyrir mönnum gerla ræða,
þvi oftlega hefir mig angrið hitt,
að ísland margir hæða,
en móðurjörð er mér svo kær,
mig hefír langað, guð minn skær,
að geta þess allra gæða.
Jökull, sandur, aur og grjót
er hér mestur á landi,
blásin öll í burtu rót,
þó byggðin víða standi.
Eg kann þar ekki mæla í mót,
þó margar nauðir gi'andi.
Því angrar mig það oft til sanns,
að enginn talar um gæðin lands;
það er hinn mesti vandi.
Góðum mönnum gef eg það svar
(því gott er satt að ræða),
Isaland að aldrei bar
við önnur líkt til gæða,
þar málmur, korn og vínið var
og villibráðsins fæða.
Þó skiptir því svo skaparans náð,
hér skortir ekki á ísaláð
kost eða nóg til klæða.
Einar prestur Sigurðsson
STJÖRNUSPÁ
eftir Franres Drake
STEINGEIT
Afmælisbarn dagsins: Þú
hefursterka sannfæringu og
mikinn metnað oggetur gert
það sem þú einbeitir þér að.
Hrútur
(21. mars -19. apríl)
Haltu ró þinni hvað sem á
dynur því þeir sem baktala
þig eru litlir kallar og munu
sjálfir hafa skömm af en þú
stendur jafnréttur eftir.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það er margt í sambandi
tveggja manneskja sem þarf
að snyrta og snurfusa. Það á
ekki bara við um annan að-
ilann heldur báða.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) AA
Nú er rétti tíminn til þess
að láta sig dreyma um fram-
tíðina en jafnframt draum-
unum er rétt að setja sér
takmörk sem eru innan seil-
ingar.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Láttu þér ekki leiðast þótt
einhver þér nákominn virð-
ist fjarlægur þessa dagana.
Virtu einkalíf hans þvf allir
hafa þörf fyrir einveru.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það getur reynst þrautin
þyngri að vera stöðugt alltaf
auðmjúkur svo þú skalt fara
þér hægt og ekki gleyma því
að þú ert þinn eiginn gæfu
smiður.
Meyja ««
(23. ágúst - 22. sept.) <SSL
Leggðu eyrað við hjálpar-
beiðnum annarra og leggðu
þitt af mörkum sem þú
framast getur. Að gera sitt
besta er allt sem beðið er
(23. sept. - 22. okt.) m
Þessi tími er þér gagnlegur
til sköpunar svo þú skalt
reyna að fá sem mest tóm til
þeirra starfa. Farðu varlega
í allri áhættu.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það er alltaf betra að miða
málin við sjálfan sig heldur
en einhverja samkeppni við
aðra. Skemmtilegt tilboð
kemur þér á óvart.
Bogmaður m ^
(22. nóv. - 21. des.) Aky
Þú hefur fengið meira út úr
óvæntu fríi en þú áttir von á
og kemur því aftur til starfa
fullur af orku og athafna-
þrá. Vertu samstarfsmönn-
um þínum ljúfur.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar) 4MP
Það er allt í lagi að láta til-
finningar sínar í ljósi við þá
sem maður treystir og eru
líklegir til þess að skilja þær
og virða. En úthelltu ekki
hjarta þínu yfir ókunnuga.
Vatnsberi f .
(20. jan. -18. febr.)
Þú ættir að fara þér hægt
um breytingar í vinnunni
því það er vandlega fylgst
með þér og margir bíða eftir
því einu að þér mistakist
eitthvað.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú hefur verið óvenju at-
hafnasamur að undanfórnu
og ættir því í raun og veru
að taka þér stutt hlé til þess
að hlaða þig orku að nýju.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindaiegra staðreynda.
Ámmótafatnaður
Gleðilegt nýtt ár
Hiá Svönu
Opið mán.-laugard.
frá kl. 10-18.
Kvenfataverslun, Garðatorgi 7, Garðabæ, sími 565 9996.
O
Sálfræðistöðin
Námskeið
Sjálfsþekking -
Sjálfsöryggi
Á námskeiðinu kynnast þátttakendur:
• Hvaða persónulegan stíl þeir hafa í samskiptum
• Hvernig má greina og skilja samskipti
• Hvernig ráða má við gagnrýni
• Hvernig finna má lausnir í árekstrum
• Hvernig læra má samskipti sem auka sjálfsöryggi
Leiðbeinendur eru sálfræðingarnir
Álfheiður Steinþórsdóttir og Guðfinna Eydal._____
Innritun og nánari upplýsingar í símum
Sálfræðistöðvarinnar 562 3075 og 552 1110 frá kl. 11-12.
|r '
Stökktu
16. janúar til
Kanarí
frá kr. 29.985
Út 16. janúar "
Heim 23. eða 30. jan.
Aðeins 24 sæti í boði
Heimsferðir bjóða nú einstakt tækifæri til
að komast í sólina eftir áramótin á verði
sem ekki hefur sést fyrr. Það er 20-25
stiga hiti á Kanarí, frábært veðurfar og þú
getur notið nýársins á Kanarí. Þú bókar ferðina núna og tryggir þér síð-
ustu sætin. Fjórum dögum fyrir brottfor hringjum við í þig og látum þig
vita hvar þú gistir. Meðan á dvölinni stendur nýtur þú þjónustu reyndra
fararstjóra okkar.
Verðkr. 39.930
Verð fyrir mann, m.v. 2 í íbúð,
gisting, skattar.
16. janúar - vika.
Ferðir til og frá flugvelli,
kr. 1800,-
Verð kr.
29.985
Verð fyrir manninn, m.v. hjón
með 2 böm, 2-11 ára, flug og
skattar. 16. janúar - vika.
Verð kr.
52.930
Verð fyrir mann, m.v. 2 í ibúð,
gisting, skattar.
16. janúar - 2 vikur
Ferðir til og frá flugvelli,
kr. 1800,-
Heimsferðir
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
eru tollfrjáls!
Hjá úrsmiönum
íód7rám\ ;
1 \ (SLA®