Morgunblaðið - 28.12.2000, Page 88
88 FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLKí FRÉTTUM
MYNDBOND
Fjör á
framabraut
í fremsta flokki
Center Stage
Dansnny n <1
★★
Leikstjóri: Nicholas Hytner. Hand-
rit: Carol Heikkinen. Aðalhlutverk:
Anianda Schull, Zoe Saldana. (111
mín.) Bandarikin 2000. Skífan. Öll-
um leyfð.
Á NÍUNDA áratugnum varaði síð-
blómaskeið dansmyndanna. Myndir
eins og Flashdanœ, Footloose og
Dirty Dancing
tröllriðu þá öllu og
allar ungar stelpur
létu sig dreyma um
að vinna Freestyle-
keppnina í Tónabæ.
Sú mynd sem um-
íram aðrar kveikti
þetta dansæði (fyr-
ir utan Travolta-
myndir áttunda áratugarins) var
Fame Alans Parkers, saga um nem-
endur í listaskóla sem voru tilbúnir að
j-leggja allt í sölumar til þess að kom-
ast áfram í lífinu og verða að stjöm-
um. Vinsælli mynd fylgdu vinsælir
þættir og nú, meira en áratug síðar,
er komin svona hálfgerð Fame fyrir
nýja kynslóð. Eins og í tilfelli Fame er
Breti í leikstjórastólnum, Nicholas
Hytner, sem átti sína bestu spretti
með fyrstu mynd sinni um Geðveiki
Georgs konugs. Og það er eins og
Hytner hafi verið í einhverjum nost-
algíugír þegar hann gerði I fremsta
flokkiþví hún er svo innilega í anda ní-
unda áratugarins að hún gæti allt eins
verið jafnaldri Fame. Hún er eigin-
lega bara gamaldags. Sögumennska
Hytners er aftur á móti ágæt og held-
ur manni við efnið, a.m.k. þar til að
löngum dansatriðunum kemur en að
þeim loknum segir mér svo hugur að
einungis harðir dansáhugamenn séu
enn með hugann við efnið.
Skarphéðinn Guðmundsson
Sjóslys
Perfect Storm
(Stormurinn)
Drama
★
Leikstjóri: Wolfgang Petersen.
Handrit: Bill Wittliff. Aðalhiutverk:
George Clooney, Mark Wahlberg,
Diane Lane, William Fichtner, Kar-
en Allen. (125 mín) Bandaríkin.
Sam myndbönd, 2000. Myndin er
bönnuð börnum innan 12 ára.
ATHUGA ber að hér er gagnrýnd-
ur DVD-diskurinn af Storminum og
sumt 'af því sem talað er um fylgii-
ekki með á myndbandinu. Stormur-
inn segist segja
sanna sögu af sjó-
slysi einu sem átti
sér stað árið 1991.
Það eru sjómenn-
imir á Andreu Gail
sem sjá um að koma
áhorfendum í kynni
við hættur hafsins
(George Clooney,
Mark Wahlberg,
John C. Reilly, William Fichtner
o.fl.). En þeir og aðrir sem komu við
gerð þessarar myndar (að höfundi
bókarinnar undandskildum) hafa
greinilega aldrei migið í saltan sjó.
Hvert veruleikafirrta atriðið tekur við
af öðru og leiðinlega skrifaðar persón-
ur haga sér heimskulega í öllum gusu-
ganginum. DVD-diskurínn er hlaðinn
af aukaefni og allt af því miklu betra
— en myndin sjálf. Sérstaklega er um-
sögn Sebastian Junger, sem er höf-
undur bókarinnar um Storminn, at-
hyglisverð en hana er hægt að finna á
4-hljóðrás disksins. Myndgæðin eru
góð en sýna allt of vel fram á tölvu-
leikslegar tæknibrellumar. Eins og
sjá má fyrir ofan fær myndin aðeins
eina stjömu en aukaefni hennar á
'*'* íyllilega skilið 3 og hálfa.
Ottó Geir Borg
Frumsýning íslensku myndarinnar Ikingút annan jóladag
Morgunblaðið/Jim Smart
Aðalleikaramir spenntir fyrir frumsýninguna að sjá hvernig hefur tek-
ist: Hans Tittus Nakinge, Pálmi Gestsson og Hjalti Rúnar Jónsson.
Friðrik Þór Friðriksson, einn eigenda íslensku kvikmyndasamsteyp-
unnar, sem framleiðir Ikingut, með kvikmyndagerðarmanninum Jó-
hanni Sigmarssyni.
Græn-
lenskur
vinur
ÍSLENSKA ævintýramyndin Iking-
útv ar frumsýnd í Háskólabíói á
annan í jólum. Myndin segir frá því
er ungan grænlenskan dreng rekur
á ísjaka á fjörur litils afskekkts
sjávarpláss við Islandsstrendur. Við
þessa óvæntu heimsókn verður
uppi fótur og fít í bæjarsamfélaginu
því í Ijós kemur að óttinn við hið
óþekkta er djúpstæður. Höfundar
sögunnar eru þeir Gísli Snær Erl-
ingsson Jón Steinar Ragnarsson og
hafa þeir lýst hugverki sínu sem
ævintýramynd fyrir alla fjölskyld-
una, svona í anda gömlu þijúbíó-
anna.
Það var margt góðra gesta á
frumsýningunni. Helstu frammá-
menn í íslenskri kvikmyndagerð
notuðu þar tækifærið til þess að
samfagna innilega starfsbræðrum
sínum og vinum, sem að myndinni
stóðu. Frumsýningargestir komu
líka mislangt að en tveir leikara
myndarinnar, þeir Hans Tittus
Nakinge og Ortu Ignatiussen, eru
Grænlendingar og lögðu á sig
ferðalag austur um haf til að geta
verið með í gleðinni.
1*0'V
Nokkrir af að-
standendum Iking-
út: Vilhjálmur
Guðjónsson höf-
undur tónlistar,
Gísli Snær Erlings-
son, leikstjóri og
handritshöfundur,
leikaramir Hjalti
Rúnar Jónsson og
Hans Tittus Nak-
inge, Hrönn Krist-
insdóttir framleið-
andi, Jón Steinar
Ragnarsson, leik-
myndasmiður og
handritshöfundur,
og Orto Ignatius-
sen leikari.
Björn Jörundur
Friðbjörnsson leikur
sýslumanninn.
Heitasta parið í dag, sjónvarpsstjórinn Ámi
Þór Vigfússon og söngstjarnan Svala Björg-
vinsdóttir, fékk sér vitanlega popp og kók.
Tinna Gunnlaugsdóttir og
Egill Ólafsson leika aldrei
þessu vant ekki í nýjustu ís-
lensku kvikmyndinni.
Guðrún Gísladóttir leikkona Leikhúsfólk á öllum aldri var samankomið til
var á meðal áhorfenda. að virða fyrir sér frumskógarbarnið Móglí.
I skóginum stóð
maður einn
JÓLASÝNING Borgarleikhússins er leikritið Móglí, verk byggt á hinni sígildu sögu
Rudyard Kipling, Skógariífí. Leikgerðin var í höndum Illuga Jökulssonar en með aðal-
hlutverk fer Friðrik Friðriksson og var frumsýningin á annan í jólum. Þetta sígilda æv-
intýri Kipling á erindi við konur jafnt sem karla á öllum aldri, enda viðfangsefnið sígildar
vangaveltur um máttarstólpa mannlegs lífs, s.s. vináttuna og kærleikann auk þess sem
tekið er á skuggahliðum þess: valdabaráttu, hroka og illdeilum.
Morgunblaðið/Jim Smart
Leikstjórinn, Bergur
Þór Ingólfsson, var að
sjálfsögðu á staðnum
ásamt fríðu föruneyti.
Friðrik
Friðriksson
leikur
Móglí.
Móglí í Borgarleikhúsinu