Morgunblaðið - 28.12.2000, Síða 96
A næstu leigu 4. janúar
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNJ 1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
"T s S MorgunDlaðið/Jim ömart
Leikur a ís
SJÓRINN var ísilagður í fjöruborðinu í Reykjanesbæ í gær og var upplagt þotumar alvanur skautahlaupari, en vel dúðaðir farþegarnir þurfa lítið að
að bregða á leik. Hér brunar lest eftir ísnum og virðist sá sem dregur snjó- hafa fyrir lífinu. í fjarska sjást skip í Keflavíkurhöfn.
Tölvukerfí TR geymir ekki upplýsingar um bætur öryrkja frá 1994
Sumir öryrkjar sóttu
aldrei um tekj utry ggingu
Bann við
hundum og
köttum í
Hveragerði
BÆJARSTJÓRN Hveragerðis
hefur samþykkt að banna hunda-
og kattahald í bænum. Eigendur
þessara dýra geta sótt um und-
anþágur og verða þá að greiða
, .^ýeyfisgjald og uppfylla ákveðin
skilyrði, að því er frá er greint á
vef Sunnlenska fréttablaðsins.
Nokkra athygli vekur að eigend-
ur bæði hunda og katta verða að
tryggja dýrin gagnvart tjóni sem
þau kunna að valda. Petta er vænt-
anlega nýmæli hvað kettina áhrær-
ir því tryggingafélög á íslandi hafa
ekki tryggt ketti fram til þessa og
tryggingar á hundum ná aðeins til
þess að þeir séu í bandi en falla
niður ef hundur gengur laus.
Þá er í kattareglugerð Hvera-
gerðisbæjar gert ráð fyrir að allir
högnar séu geltir og allar læður
séu gerðar ófrjóar, nema sérstak-
lega sé sótt um leyfi fyrir undan-
.^eldisdýr. Þeir gæludýraeigendur
ekki hlíta umræddum reglum
mega búast við að dýrin séu hand-
sömuð og þeim lógað sé þeirra
ekki vitjað innan tveggja sólar-
hringa.
MITSUBISHI
IE
/tyýxtfisia
á henni miðað við gildandi reglur,
þ.e. vegna þess að tekjur makans
voru það miklar. Sú spurning hefur
vaknað hvort þetta fólk eigi rétt á
endurgreiðslum aftur í tímann.
Einnig er óljóst hvað bætur verða
greiddar langt aftur í tímann. í dómi
Hæstaréttar er bent á að við greiðslu
bóta verði að „huga að“ 48. gr. al-
mannatryggingalaga þess efnis að
tryggingabætur skuli aðeins greidd-
ar tvö ár aftur í tímann. Aimennt
gildir að kröfur fymast á fjórum ár-
um, en Hæstiréttur telur að ekki hafi
verið lagastoð fyrir skerðingu vegna
tekna maka frá því í ársbyrjun 1994.
Verulegir tæknilegir annmarkar
munu vera á að kalla fram upplýs-
ingar úr tölvukerfi TR um greiðslur
sjö ár aftur í tímann. Talið er að ef
endurgreiðslurnar verði látnar ná til
ársins 1994 verði að fletta upp í út-
prentuðum gögnum stofnunarinnar
fyrir hvern og einn öryrkja.
Samkvæmt skýrslu forsætisráð-
herra um kjör öryrkja frá síðasta ári
fengu árið 1998 2.335 öryrkjar
skerta tekjutryggingu vegna tekna
maka, sem eru 36,1% þeirra öryrkja
sem fengu tekjutryggingu það ár.
Árið 1995 fengu 1.664 öryrkjar
skerta tekjutryggingu vegna tekna
maka eða 28,1% af heildarfjöldanum.
Samkvæmt Staðtölum TR greiddi
stofnunin árið 1999 samtals 2,3 millj-
arða í tekjutryggingu til öryrkja.
Þetta ár fengu 8.673 öryrkjar
greiddan örorkulífeyri. Ef þeir fá all-
ir greidda óskerta tekjutryggingu í
samræmi við dóm Hæstaréttar
aukast útgjöld Tryggingastofnunar
og verða rúmlega 3,2 milljarðar á ári.
Ef greiða á tekjutryggingu til
allra ellilífeyrisþega sem fengu elli-
lífeyri á síðasta ári með sama hætti
og til öryrkja aukast útgjöld Trygg-
ingastofnunar úr 6,2 milljörðum,
eins og þær voru árið 1999, í 9 millj-
arða.
■ Eigum ekki/12
Fyrirtæki um vinnslu álgjalls hefur starfsemi innan árs
Arsframleiðsla í fyrsta
áfanga 2.500 tonn
NÝTT fyrirtæki á sviði endurvinnslu
áls, Alur, hefúr samið við ISAL um
kaup á öllu álgjalli sem fellur til við
framleiðslu áls í álverinu í Straums-
vík. Forsvarsmenn Als hafa fest kaup
á hátæknibúnaði til endurvinnslunnar
fyrir tæplega 300 milljónir króna og
er stefnt á að framleiðsla geti hafist
innan árs. Gert er ráð fyrir að árs-
framleiðsla verði í fyrsta áfanga um
2.500 tonn, eða um 5.000 tonn af ál-
gjalli, en umhverfismat á starfsem-
inni hefur hlotið jákvæðar undirtekt-
ir. Þar er gert ráð fyrir að starfsemin
verði á Reykjavíkursvæðinu eða í
Þoriákshöfn.
Alur er í eigu dr. Þorsteins I. Sig-
fússonar prófessors og dr. Helga
Þórs Ingasonar, auk Nýsköpunar-
sjóðs atvinnulífsins og fleiri aðila.
Unnið er að frekari fjármögnun verk-
smiðjunnar, en áætlanir gera ráð fyr-
ir umtalsverðri stækkun hennar á
næstu árum í takt við stækkun álvers-
ins á Grundartanga og byggingu nýs
álvers á Reyðarfirði.
Þorsteinn I. Sigfússon segir að
hugmyndir um förgun spilliefna hér á
landi hafi verið í mótun um nokkurt
skeið, en í félagi við AGA og Hoogo-
ven í Hollandi, sem rekur sams konar
verksmiðju þar í landi, hafi þeir Helgi
Þór nú þróað nýja aðferð með hlið-
sjón af eldri aðferðum til að brenna
álgjall í hreinu súrefni án nituroxíða,
en sú aðferð sé mun umhverfisvænni
en þær sem beitt hefur verið hingað
til. Um 50% þess álgjalls sem fellur til
við hefðbundna álframleiðslu er
hreint ál. Auk þess eru uppi hug-
myndir um að ná aftur súráli við
framleiðsluna og koma því í nýtanlegt
form og er það eitt helsta nýmælið við
hina fyrirhuguðu verksmiðju.
„Það hefur komið fram í fréttum að
undanfömu að við íslendingar verð-
um líklega mestu álframleiðendur
Evrópu innan tíu ára,“ segir Þor-
steinn. „Það er því kominn tími til að
huga alvarlega að endurvinnslumögu-
leikum þessa málms, en þeir eru fjöl-
margir. Hér á landi eru kjöraðstæður
til þessarar starfsemi, ekki síður en til
álframleiðslu.“
Ekki aðeins verður álgjall hreinsað
og unnið úr því hreint ál í hinni nýju
verksmiðju fyrirtækisins, heldur
verður þar einnig teldð á móti brota-
áli til endurvinnslu.
Að sögn Þorsteins má gera ráð fyr-
ir að starfsmenn í verksmiðjunni
verði innan við tuginn í fyrsta áfanga,
enda verði hún afar tæknivædd.
Starfsmönnum muni svo fjölga nokk-
uð eftir því sem starfseminni vaxi
fiskur um hrygg.
TALIÐ er að einhver hluti öryrkja
sem eiga samkvæmt dómi Hæsta-
réttar rétt á fullri tekjutryggingu
hafi aldrei sótt um tekjutryggingu,
m.a. vegna þess að þeir hafi gert sér
grein fyrir að miðað við gildandi
reglur ættu þeir ekki rétt á bótun-
um. Það liggur einnig fyrir að veru-
legir tækniörðugleikar eru við að
kalla fram upplýsingar úr tölvukerfi
Tryggingastofnunar um greiðslu
bóta sjö ár aftur í tímann. Flest
bendir til að fletta verði upp útprent-
uðum upplýsingum aftur í tímann.
Nefndin sem ríkisstjórnin skipaði
á ríkisstjórnarfundi fyrir viku
fundaði um jólin, en ekki liggur fyrir
hvenær hún skilar niðurstöðum.
Verkefni hennar er að semja frum-
varp sem lagt verður fyrir Alþingi.
Ef unnt á að vera að greiða trygg-
ingabætur eftir nýjum lögum 1.
febrúar nk. verður Alþingi að hafa
samþykkt frumvarpið eigi síðar en
22.janúar.
Ymis álitamál eru til skoðunar
varðandi greiðslu tekjutryggingar til
öryrkja sem hefur verið skert vegna
tekna maka. Það liggur t.d. fyrir að
einhver hópur öryrkja hefur ekki
sótt um tekjutryggingu vegna þess
að hann hefur ekki talið sig eiga rétt
HEKLA
-Iforyttuánj/rrl&Ul
A
MITSUBISHI
demantar í umferö
Verðbreytingar
um áramót
Verð á
bensíni
og olíu
lækkar
ÚTSÖLUVERÐ á bensíni og
olíu lækkar hjá íslensku olíu-
félögunum um áramót. Ekki
liggur fyrir hversu mikil lækk-
unin verður.
Samúel Guðmundsson, for-
stöðumaður áhættustýringar
hjá Olís, segir að miðað við þró-
un heimsmarkaðsverðs á olíu
og dollar liggi fyrir að útsölu-
verð hjá olíufélögunum lækki
talsvert um mánaðamótin.
Geir Magnússon, forstjóri
Olíufélagsins hf., segir enn ekki
ljóst hversu mikið útsöluverð
hjá Olíufélaginu lækki. Hann
segir að minnkandi eftirspum í
desember hafi oft leitt til lækk-
unar á heimsmarkaðsverði sem
síðan gangi til baka eftir ára-
mót en vonandi haldist verð-
lækkunin að þessu sinni.
■ Verðið 6 kr./48