Morgunblaðið - 29.12.2000, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 29.12.2000, Blaðsíða 1
299. TBL. 88. ÁRG. FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Lögreglan rannsakar tilræðisstað í Tel Aviv í gær. Reuters Tveir látnir og fímmtán særðir í gær í fsrael og á Gaza Dregur úr frið- arhorfum á ný Jerúsaiem. AP, AFP. TVEIR ísraelar létust og að minnsta kosti fimmtán særðust í sprengjutilræðum í Tel Aviv og á Gaza-svæðinu í gær. Hryðjuverkin þykja draga enn frekar úr horfum á því að friðarsamkomulag náist en fá- einum klukkustundum áður en sprengjan sprakk tilkynnti Ehud Barak, forsætisráðherra ísraels, að ekki yrði af fyrirhuguðum leiðtoga- fundi sínum og Yassers Arafat, leið- toga Palestínumanna sem stóð til að halda í Egyptalandi í gær. Barak fyrirskipaði að Vesturbakk- inn og Gaza-svæðið yrðu lokuð af í kjölfar tilræðanna. Fyrri sprengjan sprakk í rútu sem stödd var á einni af mestu umferð- argötum í Tel Aviv. Þrettán farþegar um borð í rútunni slösuðust. Mikil skelfing greip um sig meðal farþega í rútunni þegar sprengjan sprakk. Enginn lýsti ábyrgð sinni á tilræð- inu en Hamas, hryðjuverkasamtök Palestínumanna, sögðu það vera svar við árásum ísraela og sögðu ekki skipta máli hver hefði staðið fyrir því, svo lengi sem það væri son- ur palestínsku þjóðarinnar. Bleyðuleg árás á borgara Ehud Barak sagði tilræðið hins vegar vera „bleyðulega árás á sak- lausa borgara" og hét því að fínna þá seku. Hann sagði hins vegar að sprengjutilræðið myndi ekki draga úr vilja ríkisstjórnar sinnar til frið- arumleitana. Aðstoðarvarnarmálaráðherra Israel, Ephraim Sneh, sagði í gær að árásin væri merki um eindreginn vilja til að hindra að friðarsamningar næðust. Hann sagði að ísraelar biðu nú eftir næsta útspili Yassers Arafat en þeir hefðu það markmið að binda enda á átökin. „Arafat verður að segja þjóð sinni hvað hann leggur til ef hann vill ekki frið.“ Arafat fundaði í gær með Hosni Mubarak, forseta Egyptalands, þrátt fyrir að hætt hefði verið við leiðtogafundinn með Barak. ■ Palestínumenn vilja/31 Deilt um sjónvarpsstjóra í Tékklandi Utsendingar stöðvaðar í tæp- an sólarhring Prag. Reuters, AFP, AP. ÚTVARPS- og sjónvarpsráð Tékk- lands fyrirskipaði í gær að útsend- ingar ríkissjónvarps skyldu hefjast að nýju, tæpum sólarhring eftir að nýr sjónvarpsstjóri, Jiri Hodac, stöðvaði útsendingu til að mótmæla uppreisn fréttamanna stöðvarinn- ar. Þeir höfðu lagt undir sig frétta- stofuna til að mótmæla ráðningu hans. Ráðið, sem skipaði Hodac í stöðu sjónvarpsstjóra, sagði að ákvörðun Hodacs bryti í bága við lög og fyr- irskipaði ríkissjónvarpinu að hefja útsendingar að nýju. Þær hófust síðan skömmu fyrir klukkan sjö í gærkvöldi að stað- artíma en þegar einungis nokkrar sekúndur voru liðnar af aðalfrétta- tímanum, birtist skrifleg yfirlýsing sjónvarpsstjóra á skjánum: „Þessi þáttur var framleiddur af fólki sem ekki hafði til þess heimild." Jana Bobosikova fréttastjóri sagði að allt efni yrði sent út sam- kvæmt dagskrá nema fréttatím- arnir. Þeir yrðu settir saman af fréttamönnum, sem ekki hafa viljað viðurkenna tilnefningu Hodacs í embætti sjónvarpsstjóra. Aður en Hodac stöðvaði útsend- ingar sjónvarpsins hafði hann rekið uppreisnarmennina og krafíst þess að lögreglan fjarlægði þá úr frétta- stofunni. Hann hefur einnig hótað að höfða mál gegn þeim. Fréttamenn segja Hodac vera hlutdrægan Fréttamenn ríkissjónvarpsins saka Hodac um að ganga erinda Borgaralegra demókrata (ODS), flokks Vaclavs Klaus, fyrrverandi forsætisráðherra. Þingið skipar út- varpsráðið og Borgaralegir demó- kratar eru þar í meirihluta ásamt Sósíaldemókrötum sem hafa mynd- að ríkisstjórn með stuðningi ODS. Vaclav Havel forseti lýsti yfir stuðningi við uppreisnarmennina Fréttamaður tékkneska sjón- varpsins heilsar fóiksfjölda sem safnast hafði saman til stuðn- ings honum og félögum hans. og sagði að ráðning Hodacs væri í „andstöðu við anda laganna". Jafn- aðarmenn hafa einnig hvatt Hodac til að segja af sér til að hægt verði að koma starfsemi sjónvarpsins í eðlilegt horf. Flestir tékknesku fjölmiðlanna styðja fréttamennina en nokkrir fréttaskýrendur hafa sagt að upp- reisn þeirra sé ekki réttlætanleg þar sem lýðræðislega kjörið ráð hafi skipað sjónvarpsstjórann með löglegum hætti. ------•-+-*------ Boða mál gegn far- símafyrir- tækjum London. AFP. LEIÐANDI farsímafyrirtæki, þar á meðal breska stórfyrirtækið Voda- fone, eiga nú von á málshöfðun þar sem farið verður fram á milljarða dollara í skaðabætur vegna þess, sem staðhæft er, að farsímar valdi krabbameini í heila. Rumsfeld tilnefndur varnar- malaraðherra Bandar íkj anna Washington. AP. GEORGE W. Bush, verðandi forseti Bandaríkjanna, tilnefndi í gær Don- ald Rumsfeld í embætti varnarmála- ráðherra Bandaríkjanna. Rumsfeld er enginn nýgræðingur á sviði bandarískra stjórnmála. Hann hefur gegnt embættum í tíð fjögurra for- seta úr flokki repúblikana, fyrst í tíð Richard Nixons. Rumsfeld var varn- armálaráðherra í ríkisstjórn Ger- alds Ford um miðjan áttunda ára- tuginn. „Hann hefur góða dómgreind, er framsýnn og á eftir að standa sig vel í embætti varn- armálaráðherra, nú sem fyrr,“ sagði Bush í gær. Bush sagðist einnig vonast til þess að ríkisstjórn sín yrði fullskip- uð í lok næstu viku. Hann sagði að vel gengi að skipa í embættin, þrátt fyrir þá töf sem varð vegna mála- ferla að loknum kosningum. Margreyndur stjórnmálamaður Rumsfeld er 68 ára gamall. Meðal embætta sem hann hefur gegnt áður er embætti sendiherra Nixons hjá Atlantshafsbandalaginu, skrifstofu- stjóra Hvíta hússins hjá Ford og er- indreka Reagans í Mið-Austurlönd- um. Dick Cheney, varaforsetaefni Bush, var aðstoðarmaður Rums- felds er hann var skrifstofustjóri hjá Ford og tók síðar við af honum þar. AP George W. Bush og Donald Rumsfcld er útnefningin var til- kynnt £ gær. Rumsfeld var formaður nefndar repúblikana og demókrata sem fyrir tveimur árum komst að þeirri nið- urstöðu að bandarískir leyniþjón- ustumenn hefðu slakað of mikið á í seinni tíð. Rétt fyrir forsetakosning- arnar í nóvember skrifaði hann und- ir plagg ásamt öðrum fyrrverandi varnarmálaráðherrum þar sem Ai Gore er gagnrýndur fyrir að hafa lagt blessun sína yfir vopnasölu Rússa til íran. Von er á fleiri tilnefningum Bush á næstunni en hermt er að hann muni tilnefna Tommy Thompson, ríkisstjóra Wisconsin, í embætti heilbrigðisráðherra í dag. Greint var frá þessu 1' The Times í gær. Þar sagði að mörg mál yrðu höfðuð af Peter Angelos, lögfræð- ingnum sem fór fyrir málaferlum á hendur tóbaksfyrirtækjum. Mála- ferlunum munu fylgja ítarlegustu rannsóknir á áhrifum farsíma á heilsuna til þessa. Ef dómar falla Angelo í vil er næsta víst að fleiri mál munu fylgja í kjölfarið. Það gæti haft uggvæn- legar afleiðingar fyrir farsi'mafyr- irtæki sem eru meðal þeirra fyr- ii-tækja í heiminum sem eru í hvað örustum vexti. Talið er að allt að hálfur millj- arður manna f heiminum eigi far- síma og þrátt fyrir að margir óttist skaðleg áhrif farsi'ma hafa þau ekki verið sönnuð til þessa. MORGUNBLAÐIÐ 29. DESEMBER 2000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.