Morgunblaðið - 29.12.2000, Síða 34
34 FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Ljóðræn kaldhæðni
BÆKIJR
Skáldsaga
SAGAN AF HEILAGA
DRYKKJUMANNINUM
Höf. Joseph Roth.
Þýð. Jóhannes Helgi. 72 bls.
Arnargrip.
Reykjavík, 2000.
JÓHANNES Helgi kveður svo að
orði í inngangi að þessi stutta skáld-
saga Josephs Roth lýsi ljóðrænni
kaldhæðni. Það eru orð að sönnu. Jó-
hannes Helgi minnir einnig á að
Roth, sem lá gleymdur í gröf sinni
frá því er hann lést 1939, hafi skyndi-
lega verið dreginn fram í dagsljósið
þegar ítalinn Ermanno Olmi gerði
kvikmynd sem hann byggði á sög-
unni. En Sagan af heilaga drykkju-
manninum segir frá daglegu lífi -
eða réttara sagt fjölbreytilegri lífs-
reynslu - útigangsmanns í París. Jó-
hannes Helgi telur að Roth sé þar að
segja frá eigin reynslu.
Andreas heitir aðalsögupersónan
og er frá Slésíu. Hann hefur verið
dæmdur fyrir glæp í Frakklandi,
setið inni - í stuttan tíma þó þar sem
hann taldist eiga sér málsbætur, en
vísað úr landi þegar hann slapp úr
fangelsinu. Hann hefur því ekkert
leyfi til að dveljast í landinu. Eigi að
síður láta yfirvöldin hjá líða að rag-
ast í málum hans þar sem hann hefur
ekkert heimilisfang. Þannig er hann
ekki til fyrir laganna bókstaf en sef-
ur undir Signubrúnum eins og aðrir
hans líkar. Sú var tíð að dægurtext-
inn Sous les ponts de Paris - Undir
Parísarbrúnum - var sunginn um
alla Evrópu. Undir brúnum njóta
heimilislausir skjóls fyrir sól og
regni. Clochard heitir slíkur úti-
gangsmaður á máli þarlendra. Orðið
dregur slóða til þess er utangarðs-
menn létu fyrir berast í kirkjuturn-
um, uppi undir klukkunum. Langt er
nú liðið frá því er þeir stigu niðiu- úr
turnunum og komu sér fyrir á Signu-
bökkum. En Andreas er einmitt
dæmigerður clochard.
Allt um það er róninn undir Par-
ísarbrúnum hvorki sálarlaus né
sinnulaus þótt svo kunni að virðast ef
horft er úr fjarlægð. Hitt er sönnu
nær að hann gengur fyrir áfengi sem
leiðir til firringar og flótta frá um-
hverfinu. Líf hans líður í vímu eins
og á mörkum svefns og vöku. Þrátt
íyrir allt er heiðarleiki og skilvísi
runnin honum í merg og bein. Þess
vegna vill hann ekki með nokkru
móti taka við tvö hundruð frönkum
úr hendi góðborgara - sem var nú
talsverð fjárhæð í þá daga - nema
endurgreiða þá síðar. Góðborgarinn,
sem tekið hefur sinnaskiptum í líf-
inu, fellst þá á að frankarnir megi
heita lán sem hann endurgreiði til
heilagrar Theresu frá Lisieux, eða
með öðrum orðum til kirkjunnar.
Annar góðborgari, sem er að flytja
úr fína húsinu sínu í annað fínna,
ræður hann til búslóðarflutninga.
Það hlutverk rækir Andreas af
stakri kostgæfni. Gömul ástmær
rekst á hann skömmu síðar og vill
fyrir hvern mun taka hann á arma
sína. Hún nær taki á honum um
stund þar til honum tekst að flýja frá
henni sofandi. Fleiri gerast ævintýr-
in þótt ekki verði rakin hér.
Saga þessi lýsir með ágætum því
frjálslega andrúmslofti sem París-
arbúar af öllum stigum nutu á ár-
unum milli styrjaldanna. Frönsk
tunga var enn í hávegum höfð um all-
ar jarðir sem alþjóðamál mennta-
manna. Listamenn hvaðanæva úr
heimi settust að í París og nutu þar
næðis og friðhelgi. Og sá háttur
Paríasarbúa að hittast á kaffihúsum,
oft undir beru lofti, brá svip léttleika
og frjálsræðis yfir borgarlífið. Allt
um það urðu sumir undir í barátt-
unni um athygli og viðurkenningu og
hurfu heiminum undir Signubrýr
eins og Joseph Roth og söguhetja
hans, Andreas. Það var hin skugga-
lega bakhlið borgarlífsins.
Þrátt fyrir allt kom fyi’ir að molar
af borðum allsnægtanna hrytu í lófa
utangarðsmannanna. Það er einmitt
heppni af því taginu sem léttir líf
Andreasar á síðustu ævidögum hans.
Hann hefur þá talsvert fé handa á
milli og er sífellt á leið að greiða heil-
agri Theresu þá tvö hundruð franka
sem henni ber. En það ferst einnatt
fyrir. Þar til loks er hann stendur
frammi fyrir henni sjálfri, að hann
álítur. En jafnskjótt sem hann ætlar
að reiða fram féð fellur hann í ómeg-
in, er borinn til kirkju og hlýtur
»hægan og fagran dauðdaga«.
Sagan af heilaga drykkjumannin-
um er stutt en samt nógu löng. Eng-
ar málalengingar! Þetta er klassískt
verk; minnir um sumt á miðaldasög-
ur sem menn settu saman af ástríðu
án minnstu vonar um þakklæti eða
upphefð; drógu hvern staf með list
og alúð og urðu jafnvel að blanda
blek sitt sjálfii-! Þökk sé þýðanda að
snúa henni til íslensks máls.
Erlendur Jónsson
Margs að minnast
BÆKUR
Endurminningar
BERNSKUBROT
eftir Bjarna Eirík Sigurðsson.
Teikningar: Árni Elfar. 119 bls.
Mál og mynd.
Prentun: Steinholt ehf. 2000.
BERNSKUBROT Bjarna Eiríks
Sigurðssonar munu reist á endur-
minningum. En að forminu til líkjast
þau allt eins ljóðrænum smásögum.
Það eru einkum smámyndir úr skauti
náttúrunnar og minningabrot ungs
drengs í sveitinni sem höfundur gerir
sér far um að lýsa. Stundum lýsir
hann í þaula einhverju sem kalla má
smávægilegt eða jafnvel óverulegt.
Hann leitast við að sjá það allt með
augum drengsins sem er innan við tíu
ára aldur í fyrstu þáttunum. Dreng-
urinn er í vist hjá afa og ömmu vegna
þess að móðirin er fráskilin og vinn-
andi annars staðar. Lífið í sveitinni er
fábrotið og einfalt. Drengurinn nýtur
skjóls og ástúðar en hann nýtur ekki
samvistar við jafnaldra og ríslar sér
mest einn. Þannig kemur veröldin
honum fyrir sjónir, friðsæl, hrein og
óspillt, eins og í árdaga fyrir synda-
fallið.
Höfundur leggur mikið í þessar
kyrrlífsmyndir. En það er vandasamt
að útmála einfaldar náttúrulýsingar í
löngu máli með þeim áhrifum að les-
BÆKUR
fslensk fræði
SKAFTFELLINGUR
Þættir úr Austur-Skaftafellssýslu.
13. árg. 144 bls. Ritstj. og
ábyrgðarm. Zophonías Torfason.
Útg. Sýslusafn Austur-Skaft. Prent-
un: Prentsmiðja
Hornafjarðar. Höfn, 2000.
SKAFTFELLINGUR er árs-
rit. Höfundar eru allmargir að
vanda. Efnið er allt helgað hér-
aðinu, mannlífi þess, sögu og nátt-
úrufari. Hið síðast talda vegur
þyngst. Jarðfræðin liggur þarna í
loftinu ef svo má segja. Ekki vegna
þess að landslag sé þarna stór-
brotnara en annars staðar - sem
það auðvitað er - heldur sakir hins
að landið er einatt í örri mótun.
Nanna Dóra Ragnarsdóttir skrifar
um uppgræðslu í sýslunni. Því
verkefni verður aldrei lokið þar
sem eyðingaröflin eru sífellt að
verki. Jökullinn hefur víðast hvar
hopað eftir að framskrið hans
stöðvaðist um 1890. Land það, sem
hann skilur eftir sig, er auðvitað
gróðurlaust og lífvana þegar það
kemur undan freranum. Hvernig
svo sem veðráttu verður háttað í
framtíðinni er öruggt að jökullinn
mun ekki standa í stað. Hreyfingar
hans kalla á stöðug viðbrögð. Unn-
andanum sé haldið vakandi. Það fer
allt eftir því hversu höfundi tekst að
blása lífsanda í stfl sinn. Bjama Ei-
ríki tekst það misjafnlega, stöku
sinnum allvel, stundum
alls ekki. Dæmi um hið
síðar talda er fyrsti
þátturinn, Óyndi, þar
sem sögupersónan er
raunar orðin fulltíða
maður og rifjar upp
vetrarstemminguna frá
Salzburg í Austun'íki.
Þar hefur höfundurinn
sannarlega lagt sig
fram um að skrifa langt
mál um lítið. En frá
Austurrfld flýgur hann
á vængjum hugans yfir
hafið og árin heim á
bernskuslóð í sveitinni
þar sem þættimir ger-
ast síðan að mestu leyti
sem fyrr greinir. Einn
þátturinn segir frá því er hann fellur í
vatn og er lengi að koma sér upp á
bakkann. Að lesa frásögnina af því
getur reynt á þolinmæði lesandans. í
öðram kafla segir frá brúðkaups-
veislu í sveitinni. Giftingin kemur
óþægilega við tilfinningalíf drengs-
ins. Hann hefur þvi takmarkaða lyst
á veisluréttunum og nýtur þess lítið
að horfa á dunandi dansinn. Minning-
arnar um brúðkaupið og veisluna
verða því nokkrum trega blandnar.
Ur sveitinni flyst drengurinn til
Hveragerðis, en Hveragerði var þá
ur Kristjánsdóttir útskýrir í þætti
sínum, Vatnsdalur og Vatnsdals-
hlaup, hvernig jökulhlaup breyta
um farvegi og styrk eftir því hvort
jökullinn skríður fram eða hopar.
Kristján Benediktsson lýsti jökul-
hlaupunum eins og þau komu hon-
um fyrir sjónir á unglingsárum
skömmu fyrir aldamótinl900. Lýs-
ing hans er að finna í afar
skemmtilegu erindi sem hann flutti
1954. »Jökulsporðarnir lágu þá
sem næst á fremstu jökulöldum al-
veg fram á grasigróna sléttuna og
skriðjökulstangarnir bunguðu svo
hátt milli fjallanna að fjöllin sýnd-
ust smá til samanburðar,« segir
þar.
Jökulárnar voru löngum helsti
farartálmi í héraði. Þrúðmar Sig-
urðsson segir frá aðdraganda þess
að Hornafjarðarfljót var brúað.
Þáttur hans varpar auk þess ljósi á
merkilegan kafla í samgöngusögu
héraðsins. Sigurður Björnsson rit-
ar stutta þætti, meðal annars hug-
leiðingu um þá miklu gróðureyð-
landsfrægur staður vegna skálda
sinna og listamanna. Þar var Gunnar
Benediktsson, frændi höfundar, Jó-
hannes úr Kötlum, Kristmann Guð-
mundsson, séra Helgi
Sveinsson sem sendi
frá sér kvæðabók og
Höskuldur Björnsson
listmálari, auk þess
sem Kristján frá
Djúpalæk átti þar
heima um skeið. Árný
Filippusdóttir setti
ekki minni svip á stað-
inn þótt hún væri á
öðra sviði. En hún var
svo ómissandi í sínu
hlutverki að hún gat
sem best leyft sér að
ganga fram fyrir bið-
raðir og láta afgreiða
sig á undan öðram.
Höfundur tók eftir
þessu fólki sem gerði
garðinn frægan og kynntist því ef til
vill meira en fram kemur í frásögn
hans. En þama fer hann því miður
allt of fljótt yfir sögu og lætur þar
með ónotað merkilegt frásagnarefni.
Höfundur nefnir bók sína
Bemskubrot. Það er réttnefni. Hann
hefur margs að minnast, býr yfir auði
endurminninga sem era með ýmsum
hætti sérstæðar. En það er ekki nóg.
Því persónulegri sem minningamar
era því erfiðara getur reynst að gefa
öðram hlutdeild í þeim.
Erlendur Jónsson
ing, einkum skóga og kjarreyðing,
sem herjað hefur á landið jafnt og
þétt allar götur frá landnámi. Sig-
urður fellst á að sauðkindin eigi
nokkra sök. En hún eigi alls ekki
alla sökina. Hitt muni rétt vera að
þar sem skógur er þegar eyddur
komi fjárbeit í veg fyrir að hann
vaxi á ný. Sigurður fer ekki með
getgátur. Þáttur hans byggist á
nákæmum athugunum sem hann
gerði á áram áður.
Tveir þættir fjalla um andlát og
greftranir. Annar birtist í þýsku
blaði fyrir stríð, hinn ritar Kristín
Gísladóttir. Ritgerð sína, sem hún
nefnir Þegar dauðann ber að garði,
byggir hún á könnunum meðal
héraðsbúa. Margt athyglisvert
kemur fram í þætti hennar. Hún
upplýsir hvernig útfararsiðir hafa
breyst með breyttum þjóðfélags-
háttum. Ennfremur getur hún þess
að prestur nokkur hafi trúað sér
fyrir því að hann hafi eitt sinn
jarðsungið sama manninn tvisvar.
Ástæðan hafi verið sú að aðstand-
endurnir skiptust í tvo andstæða
hópa sem ekki gátu ræðst við. Út-
förin hafi svo verið auglýst eftir á
þar sem sagt var að hún hefði farið
fram í kyrrþey. Kristín tekur fram
að þetta hafi ekki gerst í héraði
hennar heldur á Reykjavíkursvæð-
inu.
Fróðlegur er líka þáttur Sigurð-
ar Bjarnasonar um selveiðar á
Skaftafellsfjöru. Það var vorkóp-
urinn sem þeir, Skaftafellsmenn,
veiddu þar í net, stundum svo
hundruðum skipti. Verð á selskinn-
um var þá alltaf viðunandi. Veiðin
taldist því til verulegra hlunninda.
Frá og með árinu 1978 lauk þess-
um veiðum. Skinnaverðið hafði þá
hrapað svo mjög að þetta var ekki
lengur arðbært. »Þegar ég og fleiri
líta um öxl,« segir Sigurður, »þá
slær gullroðnum blæ á þessi 19 ár
sem við stóðum í þessu ævintýri.
5.000 kópar lágu í valnum og var af
því góð búbót. En meira um vert
var að lifa og hrærast með öllum
þessum góðu félögum. Þessir tímar
koma aldrei aftur.«
Öld tímaritanna er að sönnu lið-
in eins og selveiðarnar á Skafta-
fellsfjöra. Því ánægjulegra er að
enn skuli þó unnt að halda úti
svona vönduðu ársriti með blönd-
uðu efni. Skaftfellingur er ekki vís-
indarit. Margt hvað, sem þar hefur
birst, mun þó koma vísindunum að
góðu gagni í nútíð og framtíð.
Erlendur Jónsson
AP
Píanó-
snillingur
LI Yundi, sem hér leikur á píanó,
vann á dögunum fyrstu verðlaun í
hinni virtu Frederic Chopin-
keppni í píanóleik.
Li, sem er átján ára gömul og
nemur tónlist við Shenzhen-
listaskólann í Kfna, er fyrsti
keppandinn frá því árið 1985 til
að hljóta gullmedalíu fyrir leik
sinn í keppninni.
Námskeið
í Alexand-
ertækni
NÁMSKEIÐ í Alexandertækni fyrir
söngvara verður haldið í Sal Tónlist-
arskóla FÍH 3., 4. og 5. janúar nk.
Kennari verður Angela Spohr en
hún er söngkona og Alexander-
tæknikennari og kennir við Tónlist-
arháskólann í Freiburg im Breisgau
í Þýskalandi.
Angela Spohr hélt tónleika á ís-
landi árin 1992 og 1999 og hélt hér
námskeið sl. sumar.
Kennslan fer fram í hóptímum.
Upplýsingar og skráning fer fram
hjá Þóra Fríðu Sæmundsdóttur.
Vísindi við
jökuljaðar
Bjarni Eiríkur
Sigurðsson