Morgunblaðið - 29.12.2000, Side 54

Morgunblaðið - 29.12.2000, Side 54
54 FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 2000 A..... ...... MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ SIGURÐUR SIG URÐSSON + Sigurður Sig- urðsson var fæddur 16. ágúst 1935 í Reykjavík. Hann lést 16. des- ember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Sigurður Einar Stef- ánsson, bifreiða- stjóri, f. 19. septem- ber 1914 í Péturs- koti, Garðahreppi, d. 13. september 1974, og Vilborg Sigurðar- dóttir, f. 5. ágúst 1909, d. 15. júní 1942. Sigurður kvæntist 19. september 1959 Ernu Lár- entsíusdóttur, f. 20. janúar 1935. Foreldrar hennar eru Lárentsius Dagóbertsson, húsvörður í Reylqavík, f. 22. sept. 1907 á Hell- issandi, d. 18. apríl 1987 og kona hans Jóhanna Guðmundsdóttir, f. 3. júlí 1913 á Arnarstapa. Börn Sigurðar og Jóhönnu eru: Vil- borg, maki Trausti Nóason. Lárus Jóhann, maki fris Ingvarsdóttir. Sig- rún, maki Haukur Árnason. Sigurður Stefán, sambýlis- kona Anna Svavars- dóttir. Laufey, maki Axel Kristján Ein- arsson. Sigurður lauk námi frá Héraðs- skólanum á Laugar- vatni 1951, sveins- prófi frá Iðnskól- anum í Reykjavík í trésmíði árið 1960. Lögregluskóla ríkis- ins, fyrri önn, 1966 og síðari önn 1971. Námskeið frá sama skóla í meðferð táragass og skotvopna og fl. 1975 og 1980. Áður en Sig- urður hóf störf í lögreglunni 1. nóv. 1965 vann hann við sjó- mennsku og trésmíðar. Útför Sigurðar fer fram frá Kópavogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 10.30. Ég á erfitt með að sætta mig við þá tilhugsun að þú sért farinn frá okkur, elsku pabbi. Farinn að eilífu ■XQg komir aldrei aftur. Mér finnst eins og þú sért bara ennþá úti á Kanaríeyjum og hljótir að fara að koma heim. Á þessari stundu á ég erfitt með að koma hugsunum mínum í orð. Margar góðar minningar koma fram og alltaf ertu þar umhyggju- samur og glaður, traustur og rétt- látur. Ég mun alltaf muna hvað þú sagðir við mig þegar ég var 10 ára og langaði í íþróttagalla. Þá kom ég til þín og spurði þig hvort þú gætir .^jrefið mér svona galla og þú ságðir: lElsku Laufey mín, ef ég ætti pen- inga til þess, þá myndi ég kaupa handa þér allan heiminn. Eg man hvað ég var ótrúlega sátt við þetta svar og hef hugsað mikið um þetta síðan. Þetta er alveg dæmigerð lýs- ing á þér, pabbi, því þú vildir allt fyrir okkur gera ef þú mögulega gast. Ég man aldrei eftir því að þú hafir neitað mér um greiða. Elsku pabbi, þú munt alltaf lifa í minningum mínum og okkar systk- inanna, því hluti af þér lifir í okkur öllum. Guð geymi þig. Þín dóttir, Laufey. Hinn 16. desember sl. lést Sig- urður Sigurðsson, mágur og svili. Góður vinur er genginn, og til baka leitar hugurinn til liðinna stunda sem við áttum saman gegnum tíð- ina. Siggi var tryggur og góður drengur og mátti ekkert ekkert aumt sjá og kom það best í ljós gagnvart börnum sem minna máttu sín og hefur það sjálfsagt komið til, vegna þess að sjálfur missti hann móður sína á unga aldri. Aldrei urðum við vör við að hann hallmælti nokkrum manni eða að okkur hafi orðið sundurorða öll þau ár sem við þekktumst. Kynni okkar Sigga hófust þegar þau Erna systir fóru að skjóta sér saman, en hjá henni gisti ég þegar ég kom til Reykjavíkur. Oftar en ekki var mér komið fyr- ir í öðru herbergi þegar hann var í heimsókn og var ég ekki alltaf ánægður með það. Mér er minn- isstætt þegar við tókum á leigu trillu og rerum eitt sumar saman, það var ekkert slorfæði þar um borð enda var Siggi mikill matmað- ur og hafði gaman af að fást við matargerð. Við fengum okkur nokkuð oft saman í glas á þessum árum og var það ekki alltaf til gleði, enda vorum við kannski ekki þeir ■ Vesfurhlíð 2 Fossvogi Sfmi 551 1266 www.utfor.is '■y 1 Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar. Við Útfararstofu kirkjugarð- anna starfa nú 14 manns með áratuga reynslu við útfaraþjónustu. Stærsta útfararþjónusta landsins með þjónustu allan '4* sólarhringinn. Prestur Kistulagning Kirkja Legstaður Kistur og krossar Sálmaskrá Val á tónlistafólki Kistuskreytingar Dánarvottorð Erfidrykkja ^jgavS^ ¥ UTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA EHF. ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga er andlát verður Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við útfararþjónustu. Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni. Sverrir Einarsson útfararstjóri, sími 896 8242 Sverrir Olsen útfararstjóri. Baldur Frederiksen útfararstjóri, sími 895 9199 Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi. Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is alskemmtilegustu undir slíkum kringumstæðum. Siggi var rammur maður að afli og hamhleypa til allr- ar vinnu og er mér minnisstætt þegar hann stóð í að byggja húsin þeirra. Fyrst vestur á Sandi og síð- an í Kópavogi. Þarna vann hann öll- um stundum þegar færi gafst frá mjög krefjandi starfi sem lögreglu- starfið er, en fyrir vestan vann hann jafnframt við sjómennsku og beitningar. Siggi og Erna voru mjög sam- hent og hvergi leið þeim betur en í sumarbústaðnum sem þau og börn- in höfðu komið sér upp við Eyr- arvatn, þar voru þau eins oft og þau mögulega gátu og nutu þess að vera úti í náttúrunni. Okkur fannst Sigga ekkert vanta þar nema ef til vill nokkrar rollur, en hann hafði mjög gaman af öllum störfum sem lutu að búskap. Elsku Erna, börn, tengdabörn og bamabörn, ykkar missir er mikill, megi Guð styrkja ykkur og blessa, og góðu minningarnar um eigin- mann, föður, tengdaföður og afa ylja ykkur á þessum erfiðu tímum. Við kveðjum Sigga með söknuði og þökkum honum innilega fyrir samfylgdina. Brynjólfur og Jóhanna. Þegar nákomnir ættingjar falla frá leitar hugurinn ósjálfrátt í sjóð minninganna og upp rifjast margt sem tengist lífi og starfi. Þannig er nú þegar föðurbróðir minn Sigurð- ur Sigurðsson féll skyndilega frá hinn 16. desember sl. Sigurður fæddist hinn 16. ágúst 1935 og var eldri sonur hjónanna Vilborgar Sig- urðardóttur frá Vík í Eyrarsveit og Sigurðar Einars Stefánssonar frá Nýjabæ í Garðahverfi. Yngri bróðir Sigurðar er Stefán Jóhann í Ólafs- vík. Þeir bræður misstu ungir móð- ur sína og var Sigurður þá aðeins sjö ára gamall. Það hefur verið erf- ið lífsreynsla fyrir svo ungan dreng að standa skyndilega móðurlaus og án efa hefur það á sinn hátt mótað lífshlaup hans. Sigurður átti góða að og við fráfall móður sinnar var hann fyrst tekinn í fóstur til móð- ursystur sinnar Sigrúnar Lilju og Magnúsar Arngrímssonar á Hellis- sandi. Mestan hluta barns- og ung- lingsaldurs ólst Sigurður upp hjá móðurfólki sínu í Vík og í Grund- arfirði. Alla tíð voru mjög sterk tengsl milli Sigurðar og móður- fólksins frá Vík og ber það vott um þann kærleika og vináttubönd sem sköpuðust milli hans og skyld- menna hans á þeim tíma þegar hann sem barn og unglingur naut samvista við þau. Sigurður faðir Sigurðar hélt einnig góðum tengslum við syni sína alla tíð, allt til þess er hann lést árið 1974. Sama er um ættfólkið í föðurætt- ina, það hefur ræktað góð tengsl við þá bræður og síðast í haust hitti Sigurður föðurfólk sitt í afmæli einnar föðursystra sinna. Sigurður var sterkbyggður og hraustur maður, myndarlegur á velli. Á sínum yngri árum var hann íþróttamaður góður og tók þátt í fjölmörgum frjálsíþróttakeppnum, þar sem hann sýndi styrk sinn í ýmsum keppnisgreinum. Á ung- lingsárum varð hann íslandsmeist- ari í frjálsum íþróttum, sem er til marks um hans gjörvileika. Á yngri árum vann Sigurður ým- is störf, eins og vanalegt var á þeim tíma. Síðar lærði hann húsasmíði og starfaði hann lengi við þá iðn. Síðari hluta ævinnar starfaði hann sem lögreglumaður, fyrst á Hellis- sandi og síðar í Reykjavík. Eiginkona Sigurðar var Erna Lárentsíusdóttir frá Görðum í Beruvík undir Jökli. Þau byggðu upp heimili á Hellissandi, fluttust síðar til Kópavogs og síðustu árin hafa þau búið í Reykjavík. Þau eignuðust fimm börn. Sigurður og hans fjölskylda endurguldu Sig- rúnu Lilju móðursystur hans þá ást og umhyggju sem hún veitti honum á barnsaldri við fráfall móður hans og á hans uppvaxtarárum. Þegar Magnús eiginmaður Sigrúnar Lilju féll frá árið 1965 tóku Sigurður og hans fjölskylda hana til sín og bjó hún í húsi þeirra þar til þau fluttust í Kópavoginn, en þá fluttist Sigrún Lilja til Stefáns Jóhanns bróður hans í Ólafsvík. Alla tíð voru miklir kærleikar milli Sigurðar og Sigrún- ar Lilju, hún lést árið 1981. Sigurður var eftirtektarverður persónuleiki og hann átti marga góða vini. Margs er að minnast þegar hugsað er til baka, sérstak- lega til þess tíma er þau fjölskyldan bjuggu á Hellissandi og samgangur bræðranna og fjölskyldna þeirra var mikill. Þrátt fyrir að bræðurnir tveir hafi ekki alist upp saman sem börn og unglingar nema að tak- mörkuðu leyti, voru bræðraböndin sterk og kærleikar miklir þeirra í milli. Að leiðarlokum þökkum við fjöl- skyldan Sigurði Sigurðssyni sam- ferðina á lífsins vegi, Guð blessi minninguna um góðan bróður og frænda. Við vottum Emu, börnum þeirra Sigurðar og þeirra fjölskyld- um innilega samúð og biðjum al- góðan Guð að veita þeim styrk í þeirra sorg við fráfall Sigurðar Sig- urðssonar. Magnús Stefánsson. Hann var sofandi í rúmi sínu við hlið konu sinnar í góðu hótelher- bergi á fagurri sólarströndu þegar andlát hans bar að. Það er nú þann- ig að allt sem lifir deyr og við vitum ekki hvenær stundin er komin. Hann Sigurður hefur verið til taks þegar stundin kom. Hann var þaul- vanur og vel þjálfaður og því vanur að sinna kalli þegar það barst. Hann gekk til liðs við lögregluna í Reykjavík í nóvember 1970. Hafði áður verið lögregluþjónn úti á landi í fimm ár. Var reyndar lærður tré- smiður. En löggæslustörf heilluðu hann og þar naut hann sín. Eftir að hann hóf störf hér í borginni kynntumst við fljótlega enda urðum við vaktfélagar. Hann var góður félagi, léttur í lund og spaugsamur ef því var að skipta. Það er nú þannig að starf lögreglu- þjónsins býður uppá kynni af því besta og því versta í fari manna og því brýnt að sjá það góða, það hjálpar í dagsins önn. Sigurður var vandvirkur lögregluþjónn og gætti þess að allt það er málið varðaði kæmi fram í hverju máli. Hann var mikið snyrtimenni og háttvís og því oft valinn í heiðursvörð og við mót- tökur erlendra þjóðhöfðingja. Lagni, athygli og samviskusemi skiluðu árangri í starfi eins og þeg- ar hann og félagi hans komu með tvo menn á stöðina. Höfðu staðið þá að verki við innbrotstilraun. Þetta var rétt fyrir miðnætti og í morg- unsárið höfðu þessir menn játað á sig á þriðja hundrað innbrota og þjófnaða. Það er stutt síðan við hittumst á Miðborgarstöðinni og hafði Sigurð- ur þá við orð að hann væri að hugsa um að rifa seglin og að minnka við sig störf fyrir hugsanleg starfslok. Það var gott að hafa Sigurð við hlið sér þegar nokkuð lá við, traust- an og yifirvegaðan. Ég veit að ég mæli fyrir hönd okkar vaktfélaga hans þegar ég þakka allt sem hann var okkur félögum sínum í meira en þrjá áratugi. Þessum kveðjum okkar og þökk- um fylgja innilegar samúðarkveðj- ur til eiginkonu og fjölskyldu. Magnús Einarsson, yflrlögregluþjdnn. Núna er sá tími í voru ástkæra landi, íslandi, sem svartasta skammdegið ríkir með viðeigandi norðan kuldagjóstri, sem oft nístir inn í merg og bein á okkur mann- fólkinu, sem megum okkar lítils gegn náttúruöflunum, gegn al- mættinu, gegn þeim sem ræður og öllu stjórnar. Mitt í öllu þessu myrkri reynum við mennirnir að lýsa upp í kringum okkur með jóla- ljósum af öllum litum og gerðum, jafnt innandyra sem og að utan. Það eru að koma jól, fæðingarhátíð frelsarans, Jesú Krists. Margir ganga enn lengra og bregða sér til sólarlanda á þessum árstíma og dvelja þar í sól og hita um tíma, sjálfum sér til upplyft- ingar og heilsubótar. Það gerði einn vinnufélagi minn, Sigurður Sigurðsson, lögregluflokksstjóri. Hann, ásamt konu sinni, tók sig á loft og flaug til Kanaríeyja, nú í byrjun desember og ætlaði að dvelja þar í tvær vikur í sólinni og hitanum og koma endurnærður heim, beint inn í jólahátíðina og jólaljósin og njóta friðarhátíðarinn- ar í faðmi fjölskyldu sinnar. Margt fer öðruvísi en ætlað er og mörg ferðin hefur endað á annan hátt en upphaflega var gert ráð fyrir og við stöndum og horfum á og enginn fær við neitt ráðið. Atburðirnir ger- ast oft hratt og óvænt, dynja yfir eins og þrumur úr heiðskíru lofti. Margar spurningar vakna upp í hugum okkar en engin viðeigandi svör fást. Hann Siggi Sig., eins og hann venjulegast var kallaður af vinum og félögum, átti ekki aft- urkvæmt úr þessari ferð til sólar- stranda Kanaríeyja. Hans ferðalag varð lengra en það sem ferðaskrif- stofan stóð fyrir og leiðarendi hans enn lengra í burtu. Siggi var á leið í þá för, sem við öll á endanum þurf- um að taka okkur á hendur, fyrr eða síðar, hvort sem okkur líkar betur eða verr, það er ekkert val. Já, Siggi mun njóta jólanna að þessu sinni, afmælishátíðar frels- arans, í hans eigin húsum og vist- arverum á himninum. Þar er ef- laust enn meiri sól og meiri hiti og ennþá fleiri jólaljós en við eigum að venjast, meiri friður og meiri gleði. Það var hringt í mig af einum vinnufélaga okkar Sigga, laugar- daginn 16. desember sl. og tilkynnti hann mér að Siggi hefði látist þá um morguninn á hótelherbergi sínu á Kanaríeyjum. Siggi ætlaði að gera breytingar á sínum högum um næstkomandi áramót. Þá ætlaði hann að hætta í fullu starfi í lög- reglunni, eftir rúmlega þrjátíu ára puð og hefja svokallaða tímavinnu. Hann ætlaði að vinna hálfan dag- inn, eða fjórar klukkustundir á dag. Hann var nýbúinn að ganga frá öll- um endum til að þetta mætti gerast og hann talaði oft um það við okkur félagana hversu hann hlakkaði til að fá meiri tíma fyrir sjálfan sig og fjölskyldu sína. Hann kvaðst ætla að njóta þess að verða gamall mað- ur í meiri ró og næði, en verið hafði hingað til. Ég ætla ekki að rekja lífshlaup Sigga í þessum fáu línum, það munu aðrir gera, mér kunnugri þeim málum. Okkar leiðir lágu saman árið 1970 á gömlu lögreglustöðinni við Pósthússtræti, þegar ég hóf störf hjá lögreglunni í Reykjavík, ungur og óreyndur maður, en Siggi var nýfluttur til höfuðstaðarins frá Hellissandi, þar sem hann hafði verið starfandi sem lögreglumaður til nokkurra ára. Það var ekki hverjum sem er gerandi að starfa einn sem lögreglumaður í litlum plássum úti á landi á þessum árum. Það þurfti dug, kjark og hreysti til að leysa það starf vel af hendi. Þessir menn máttu ekki láta sér allt fyrir brjósti brenna. Siggi var góður og traustur lögreglumaður, vel fær og gerður, jafnt andlega sem og líkamlega og var það æv- inlega gott og traustvekjandi að vinna honum við hlið við þau marg- breytilegu og oft erfiðu og átak- anlegu störf, sem lögreglumenn þurfa að takast á við í sinni vinnu. Sem ungur og reynslulaus lög- reglumaður á þessum tíma var hollt og gott að taka Sigga sér til fyr- irmyndar við starfið, hann var góð- ur leiðbeinandi. Siggi var einnig góður félagi og vinur utan starfs- ins, oftast léttlyndur og glaður og hafði skemmtilega kímnigáfu og gaman að öllu góðlátlegu gríni og glensi. Góður félagi er horfinn af sjón- arsviðinu, við hittumst ekki í bráð, en vonandi aftur síðar hressir og kátir að vanda. Ég vil þakka Sig- urði Sigurðssyni innilega samstarf- ið síðastliðin þrjátíu ár, kynninguna og vinskapinn og óska honum góðr- ar heimkomu og bjartrar framtíðar í nýju heimkynnunum. Hjartanleg- ar samúðarkveðjur sendi ég eftirlif- andi eiginkonu hans, börnum og öðrum aðstandendum. Megi góður Guð líkna þeim öllum og hjálpa í gegnum sorgina og missinn og gefa þeim gleðileg jól og bjarta framtíð. Lífið heldur áfram, ferðinni er ekki lokið. Minningin um góðan dreng

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.