Morgunblaðið - 29.12.2000, Síða 31

Morgunblaðið - 29.12.2000, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 2000 31 ERLENT Palestínumenn vilja samn- ing en ekki almenna áætlun PALESTINUMENN vilja gera ná- kvæmt samkomulag við Israela, sem tryggir að palestínsk land- svæði verði samtengd, og þeir vilja ekki almenna áætlun á borð við þá sem Bandaríkjaforseti hefur lagt fram. Þetta segir aðalsáttafulltrúi Palestínumanna, Saed Erekat, í viðtali við fréttastofuna AFP í gær. „Við viljum ekki yfirlýsingu um grundvallaratriði, heldur samning ... um smáatriðin," sagði Erekat í gær eftir að Yasser Ai'afat, forseti heimastjórnar Palestínumanna, og Hosni Mubarak, forseti Egypta- lands, áttu fund. Erekat sagði að í veði væri „sögulegt samkomulag sem myndi ákvarða stöðu mála í þessum heimshluta að minnsta kosti næstu tvo áratugi. „Bandaríkjamenn fara fram á að við samþykkjum fyrst al- menn atriði og höldum viðræðum áfram eftir það.“ Sagði Erekat að þessu skrefið hefðu Palestínumenn hafnað. Þeir vilji vita hvaða áhrif tillögur Bandaríkjamanna muni hafa á „landfræðilegt samhengi" land- svæða undir stjórn Palestínu- manna, og hver áhrifin verði „á vatnsból Palestínumanna og palest- ínsku þjóðina." Samkvæmt ísraelskum fjölmiðl- um fela tillögurnar, sem Bill Clint- on Bandaríkjaforseti lagði fram í síðustu viku, m.a. í sér að Palest- ínumenn fái einhvers konar yfirráð yfir Austur-Jerúsalem, 95% af Vesturbakkanum og allt Gaza- svæðið, í skiptum fyi'ir að hverfa frá kröfunni um rétt palestínskra flóttamanna til að snúa heim. „Þeg- ar Clinton segir 95% landsvæða, hvað með hin fimm prósentin?" sagði Erekat. Fréttaskýrandi ísraelska blaðs- ins Jerusalem Post segir í gær, að Palestínumenn hafni algerlega þeirri hugmynd að tíu til fimmtán km breiður gangur verði frá Jerú- salem að Dauðahafinu. Geti þeir ekki samþykkt þetta, því að með þessu móti myndi Vesturbakkinn skiptast í tvennt með landi undir stjórn ísraela, og myndi auk þess þýða að meira land yrði leigt til Israela. Palestínumenn hafi farið fram á að Bandaríkjamenn leggi fram kort Boðuðum leiðtogafundi þeirra Ehud Baraks og Yasser Arafat í Sharm el-Sheik í Egyptalandi var aflýst aðfaranótt fímmtu- dagsins, nokkrum klukkustundum áður en ---------------------—------------------ hann átti að hefjast. Astæðan var fyrst og fremst andstaða Palestínumanna við að til- lögur þær sem lágu fyrir voru of almennar. Reuters Arafat kemur til Gaza frá fundi með Mubarak í Egyptalandi í gær. sem sýni landamæri og þau svæði sem Israelar ætli að innlima, og einnig kort af þeim svæðum sem ísraelar myndu láta Palestínu- mönnum í té í skiptum fyrir land á Vesturbakkanum. „Arafat vill kort, kort, kort,“ er haft eftir palest- ínskum heimildamanni. Þá er í tillögum Bandaríkja- manna ennfremur gert ráð fyrir að Israel innlimi öll landnámssvæði gyðinga umhverfis Jerúsalem og að um 60 landnámssvæði á Vestur- bakkanum og Gaza verði lögð af, segir ennfremur í Jerusalem Post. Palestínumenn vilji fá að vita Fjölskyldan sögð hafa dæmt 16 ára stúlku til dauða Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. TVEIR karlmenn af tyrkneskum uppruna hafa verið dæmdir í tveggja og þriggja mánaða fang- elsi í Assens í Danmörku fyrir að reyna að myrða 16 ára frænku sína. Stúlkan hafði kallað yfir sig reiði fjölskyldunnar er upp komst að hún átti danskan kærasta. Þetta er fyrsta málið af þessu tagi sem kemur fyrir rétt í Danmörku en fullyrt er að fjöldi slíkra mála komi upp árlega og nokkur dæmi eru um múslimskar konur sem hafa verið myrtar vegna þess að þær vildu ekki giftast þeim sem fjölskyldan hafði valið eða áttu í sambandi við Dani. Móðir stúlkunnar komst að því fyrir ári að hún var í sambandi við danskan mann og brást ókvæða við. Stúlkan flúði að heiman en var í sambandi við systur sína, sem taldi hana á að hitta sig. Stúlkan gerði það en hitti þá fyrir frændurna sem höfðu í hótunum við hana, sögðust m.a. myndu drepa hana og búta niður. Stúlkan óttaðist um líf sitt og féllst því á að fara með fjölskyldunni heim. Leiðin lá yfir StórabeLtisbrúna og þar var bifreiðin skyndilega stöðvuð. Taldi stúlkan að frænd- urnir hefðu í hyggju að kasta henni fram af. Fjölskyldan segir hins vegar að bíllinn hafi bilað. Stúlkan komst undan og hefur farið huldu höfði síðan þá. Segist hún þess fullviss að hún verði drepin hafi fjölskyldan hendur í hári hennar. Mál af þessu tagi hafa ekki fyrr komið til kasta dómstóla en full- yrt er að á hverju vori flýi hópur unglingsstúlkna af innflytjenda- ættum að heiman til að komast hjá því að verða giftar mönnum sem fjölskyldan hefur vaiið. Þetta kemur m.a. fram í nýrri bók stjórnmálamannsins Naser Khad- er, sem er af sýrlenskum ættum og hefur tjáð sig opinskátt um þau vandamál sem upp hafa kom- ið við árekstra dansks og músl- imsks samfélags. hvernig Vesturbakkinn verði tengdur við Austur-Jerúsalem, ef öll hverfi gyðinga umhverfis Jerú- salem verði innlimuð í Israel. Hvað Jerúsalem varðar hafni Palestínumenn þeirri kröfu ísraela að armenski hluti borgarinnar verði áfram undir stjórn ísraela ásamt ísraelska hlutanum. Arm- enski hlutinn yrði eina leiðin fyrir gyðinga til að komast frá Vestur- Jerúsalem til gömlu borgarinnar. Þá segir fréttaskýrandi Jerusal- em Post að helsta ágreiningsefnið sé enn réttur palestínskra flótta- manna til að snúa aftur heim. Sam- kvæmt tillögum Bandaríkjamanna skulu Paiestínumenn að mestu falla frá þeirri kröfu að um fjórar millj- ónir flóttamanna, sem eru nú í ná- grannalöndunum og í búðum á Vesturbakkanum og Gaza, fái að snúa aftur til heimila sinna sem eru nú innan iandamæra Israels. Palestínumenn krefjist þess enn, að Israelar viðurkenni í meginat- riðum rétt flóttafólksins til að snúa aftur heim og axli alla ábyrgð á flóttamannavandanum. Aftur á móti segja palestínskir embættis- menn að þeir séu reiðubúnir til að vera sveigjanlegir hvað varðar þann fjölda flóttamanna sem fengi að fara aftur til síns heima. Hundr- að til hundrað og fimmtíu þúsund fengju að fara til heimila sinna í Israel, en hinum yrði komið fyrir á palestínskum yfirráðasvæðum. Þá hefur Jerusalem Post eftir ónefndum palestínskum embættis- manni, að ein ástæða þess að Pal- estínumenn hafi ekki viljað fallast á tillögur Clintons sé sú, að þeir hafi óttast að ísraelska þingið og al- menningur í ísrael myndi hafna þeim. Höfðu Palestínumenn áhyggjur vegna fregna af skoðana- könnunum í ísrael sem sýndu að meirihluti væri andvígur samningi sem myndi afsala yfirráðum ísraela yfir Musterishæðinni, og vegna fregna um að ísraelska þingið yrði að leggja blessun sína yfir samn- inginn. Palestínski samningamaðurinn Yasser Abed Rabbo sagði í gær áð- ur en hann hélt á fund í stjórn Frelsissamtaka Palestínu: „Það til- boð sem við höfum fengið er ekki tækifæri heldur gildra.“ Þrýstingur frá palestínskum almenningi En það virðist ekki bara vera meðal Israela sem samkomulagið nýtur lítilla vinsælda. Fréttaskýr- andi ísraelska blaðsins Ha’aretz sagði í gær að þrýstingur palest- ínsks almennings á Arafat um að hafna samkomulagstillögum Clint- ons hafi verið slíkur, að Arafat hafi ekki átt margs úrkosti. Bæði pal- estínskir stjórnarandstæðingar og samstarfsmenn Ai’afats hafi hall- mælt samkomulagstillögunum. Abu Ala, sem sé einn hæst setti emb- ættismaðurinn í palestínsku stjórn- inni, hafi sagt að tillögurnar kæmu ekki til móts við grundvallarkröfur Palestínumanna. Ritstjóri blaðsins A1 Ayyam hafi líkt þeim við óætan skyndimat. Þá segir fréttaskýrandi Ha’aretz: „Það er augljóst að hinn djúpi fjandskapur sem Israelar mæta nú á Vesturbakkanum og Gaza er meginástæðan fyrir út- breiddri andstöðu Palestínumanna við frumkvæði Bandaríkjamanna. Og þessi fjandskapur er reyndar skiljanlegur í ljósi þess hve margir hafa fallið og særst.“ Haft er eftir blaðamanni í Aust- ur-Jerúsalem að palestínskur al- menningur hafi ekki áhuga á þvi um þessar mundir að ná samkomu- lagi við ísraela, heldur fremur að valda Israelum eins miklum þján- ingum og mögulegt er. Vilja ensku- kennslu í fyrsta bekk Kaupmannahöfn. Morgunbladid. MIKILL pólitískur þrýstingur er nú á danska menntamálaráðherrann að fallast á að enska verði kennd allt frá 1. bekk grunnskóla. Tillagan, sem viðruð var í haust, nýtur stuðnings mefrihluta þingmanna að því er virð- ist og hafa tveir flokkar lagt til á þingi að enskukennslan verði færð niður úr 4. bekk í þann 1. sem sjö ára gömul börn ganga í. Jafnaðarmenn hafa þegar lagt breytinguna til og Venstre mun feta í fótspor þeirra á næstu dögum. Þá nýtur tillagan stuðnings miðdemó- krata og Ihaldsflokksins. „Við lifum í heimi alþjóðavæðingar og mér finnst að við eigum að stefna að því að gera börnin tvítyngd. Við getum hafið enskukennsluna í fyrsta bekk eins og gert er í einkaskólum. Þar er reynslan sú að börn geta alist upp við bæði málin," segir Hans Pet- er Baadsgaard, talsmaður jafnaðar- manna í menntamálum, í samtali við Berlingske Tidende. Margarethe Vestager mennta- málaráðherra hafnar þessu hins veg- ar, segir danska skólanema tala ágæta ensku og því fari fjarri að kennslusérfræðingar séu sammála um hvenær sé réttast að hefja kennslu á erlendum tungumálum. Reuters Kaldur sveinn JOHN Fulton, frá St. Catherines í Kanada, brá sér í hlutverk jóla- sveinsins og sigldi á brimbretti á Niagara-fljóti á landamærum Kan- ada og Bandaríkjanna á dögunum. Hann var í blautbúningi undir jóla- sveinaklæðunum, og veitti áreið- anlega ekki af, því það var verulega kalt þarna, yfir 14 stiga frost og að viðbættri vindkælingu var það nær 30 gráðum. Með þessu kalsasama uppátæki var Fulton að safna áheit- um til styrktar heimilislausum. Rækjuverksmiðja til sölu Til sölu er eign þrotabús Nasco Bolungarvík hf., fasteignin Hafnarstræti 80, Bolungarvík, ásamt viðbyggingum og öllum vélum og tækjum til rækjuvinnslu. Um er að ræða eina fullkomnustu rækjuverksmiðju landsins með 6 pillunarvél- um og 2 laservélum. Æskilegt er að kauptilboð nái einnig til allra lausamuna í húsinu sem tilheyra rækjuvinnslu. Einnig eru til sölu fasteignir þrotabúsins í Hafnargötu 41, Hafnargötu 17-19 og Grundarstíg 10 í Bolungarvík. Óskað er eftir tilboðum í ofangreindar eignir, hverja fyrir sig eða allar saman, eigi síðar en föstudaginn 5. janúar 2001, kl. 16.00. Nánari upplýsingar gefur Tryggvi Guómundsson hdl., Hafnarstræti 1, ísafirði, sími. 456 3244, fax: 456 454, netfang: tryggvi@snerpa.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.