Morgunblaðið - 29.12.2000, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 29.12.2000, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Knútur Bruun kattareigandi í Hveragerði barðist gegn katta- og hundabanni með „kjafti og klóm“ Telur að bannið verði erfitt í fram- kvæmd KNÚTUR Bruun, fulltrúi Sjálf- stæðisflokks í minnihluta bæjar- stjórnar Hveragerðis og eigandi kattarins Hvera, lagðist gegn því að banna hunda- og kattahald í bæn- um. í samtali við Morgunblaðið sagðist hann hafa barist gegn bann- inu „með kjafti klóm“ líkt og kött- urinn Hveri hefði gert en ekki haft erindi sem erfiði. Knútur telur að reglugerð um bannið verði bæjaryf- irvöldum erfið í framkvæmd. Setja hefði mátt einhverjar reglur en gengið hefði verið of langt í þetta skiptið. Eigendur hunda og katta geta sótt um undanþágur frá banninu gegn greiðslu leyfisgjalda og að ákveðnum skilyrðum uppfyllltum. Meðal skilyrðanna er að hunda- og kattaeigendur í Hveragerði þurfa að tryggja dýrin gagnvart tjóni sem þau kunna að valda. Þá þurfa allir högnar að vera geltir og læður gerðar ófrjóar nema að sótt sé um leyfi fyrir undaneldi. Hálfdán Kristjánsson, bæjar- stjóri í Hveragerði, sagði við Morg- unblaðið að Hveragerði væri ekki fyrsta sveitarfélagið sem setti álíka reglur. Þær væru einnig í gildi á Akureyri, Egilsstöðum og ísafirði. Aðspurður um ástæður fyrir bann- inu sagði Hálfdán að erindi hefði borist frá nokkrum íbúum þar sem kvartað var yfir ónæði frá köttum í ákveðnum hluta bæjarins. Töluðu íbúarnir um „kattafár", að sögn Hálfdáns, og kröfðust þeir úrbóta. Óskuðu íbúarnir eftir viðlíka reglum um kattahald og gilt hefðu um hundahald í bænum undanfarin ár. „Þegar' menn höfðu farið yfir málin fannst þeim skynsamlegt að gera eftirlitsmönnum auðveldara um vik þannig að hægt væri að hafa betri stjórn á katta- og hunda- haldi í bænum. Þetta hefur tekið nokkurn tíma í meðferð en núna er þetta orðið að veruleika og fórum við að vinna eftir nýjum reglum á nýju ári,“ sagði Hálfdán. Varðandi tryggingarákvæði í Morgunblaðið/RAX Knútur Bruun, lögmaður og bæjarfulltrúi í Hveragerði, ásamt kettinum Hvera sem hann hefur átt í 12 ár. reglugerðinni sagði bæjarstjórinn dæmi vera um það í Hveragerði að kettir hefðu komist inn í hús og valdið þar tjóni. Hann sagði að tryggingar á köttum mætti fá hjá tryggingarfélögunum. Kanarífuglar bannaðir næst? Knútur Bruun sagði að í með- förum bæjarstjórnar hefði reglu- gerð um bann við hunda- og katta- haldi verið löguð til. í upphafi hefði reglugerðin verið „ennþá öfgafyllri og vitlausari“ og tryggingarupp- hæðin mun hærri. „Mér finnst í raun út í hött hvernig staðið er að þessu, þó ég sé reyndar inn á því að mjúkar og manneskjulegar reglur verði að gilda um þessa hluti. En þegar á að fara að tryggja ketti vegna ein- hvers tjóns sem þeir valda finnst mér það öfgar og vitleysa. Ég hélt því fram í mínum málflutningi, bæði í gamni og alvöru, að nú þyrft- um við að setja reglugerðir um kan- arífuglahald í Hveragerði. Þetta er ansi langt gengið og greiddi ég at- kvæði gegn banninu af þeim sökum, einkum að því er varðar kettina. Ég tel að margir íbúar séu óhressir með þetta,“ sagði Knútur. Hann hefur átt köttinn Hvera í 12 ár og sagði Knútur hann vera orðinn mikinn vin sinn og sinna gesta á gistiheimilinu Frosti og funa. Knútur býr í útjaðri Hvera- gerðis og hann veltir því fyrir sér hvort bannið nái til hans þar sem í reglugerðinni standi að bannið nái til þéttbýlis í Hveragerði. Breytingar verða gerðar á gestamóttöku Hdtel Sögu á nýju ári Dansgólfið á Mímisbar hverfur og barinn verður að hótelbar í beinum tengslum við gestamóttökuna. Christian Lundwall hannaði breytingarnar. Mímisbar breytt í píanóbar ÁKVEÐIÐ hefur verið að ráðast í breytingar á fyrstu hæð Itadisson SAS Hótel Sögu. Veitingasalurinn Skrúður verður stækkaður, gestamóttakan endurnýjuð og Mímisbar verður breytt úr dans- stað í píanóbar og koníaksstofu. Hrönn Greipsdóttir hótelstjóri á Sögu segir að lítið hafi verið hreyft, við fyrstu hæð hótelsins frá því það var opnað og því hafi vcrið kominn tími á andlitslyft- ingu og að færa húsnæðið í nú- tímalegra horf. Skrúður stækkaður Veitingastaðurinn Skrúður verður stækkaður. Segir Hrönn að morgunverður hótelgesta hafi verið fluttur þangað niður fyrir ári og þurfi staðurinn meira pláss, meðal annars þess vegna. Óll gestamóttakan verður end- urnýjuð og þar verða settar upp innritunareyjar í anda Radisson SAS. Christian Lundwall innan- húsarkitekt sem vinnur mikið við Radisson SAS hótelkeðjuna hann- aði breytingarnar. Þá verður Mímisbar lokað í nú- verandi mynd. I staðinn verður settur þar upp hótelbar sem verð- ur í beinum tengslum við gesta- móttökuna, eins og vinsælt er víða á hótelum erlendis. Barinn mun halda nafni sínu og verður áfram öllum opinn. Segir Hrönn að komið hafi til greina að breyta nafninu en það hafi ekki þótt rétt þar sem nafn Mímisbars hafi ver- ið svo lengi tengt skemmtana- menningu þjóðarinnar. Inn af barnum verður vindla- og koní- aksstofa þar sem gestir úr Grill- inu geta sest niður eftir matinn. Unnið verður að breytingunum í janúar og febrúar og verður starfsemi hótelsins á fyrstu hæð- inni flutt annað á meðan. Skrúð- ur verður fluttur upp á aðra hæð- ina og gestamóttakan vcrður í norðurenda hótelsins. Mímisbar verður kvaddur með viðhöfn um helgina Á sama tíma verður unnið að innréttingum fyrir heilsuiind Mecca Spa í kjallara hótelsins, þar sem nudd- og gufubaðsstofan er nú. Stefnt er að opnun þeirrar starfsemi í byrjun mars, um leið og fyrsta hæðin verður aftur tek- in í notkun eftir andlitslyft- inguna. I tilefni breytinganna verður glatt á hjalla á Mimisbar um helgina en það verður í síðasta skiptið sem þar verður stiginn dans. Mímisbar hefur um áratuga skeið verið fastur liður í skemmt- anamenningu höfuðborgarinnar. Þar hafa margir hljóðfæraleik- arar komið fram, t.d. Gunnar Ax- elsson, sem lék á píanó um árabil, og Ragnar Bjarnason söngvari, sem söng á Sögu um áratuga skeið. I kvöld og annað kvöld munu André Backmann og Stefán Jök- ulsson leika og syngja fyrir gesti. í frétt frá hótelinu er fólk hvatt til að mæta á Mímisbar til að kveðja staðinn. Hlífog Hrafnista í Hafnarfirði semja HRAFNISTA í Hafnarfirði og verkalýðsfélagið Hlíf undirrituðu nýjan kjarasamning í gær fyrir ófag- lært starfsfólk sem starfar á Hrafn- istu. Samningurinn gildir út árið 2003. Sveinn Skúlason, forstjóri Hrafn- istu, segir að samningurinn feli í sér sambærilegar launabreytingar og samið hafi verið um á Sólvangi og St. Jósefsspítala fyrr á árinu. Einnig sé um að ræða hliðstæðan samning og Efling í Reykjavík gerði við ríkið um mitt þetta ár. Hann segir að ekki sé búið að reikna út nákvæmlega hvað miklar launabreytingar felist í samn- ingnum á samningstímanum. Öryrkjabandalagið Fundur haldinn með for- seta í dag FRAMKVÆMDASTJÓRN Oryrkjabandalags íslands, ásamt lögmanni þess, hefur verið boðuð til fundar við for- seta Islands að Bessastöðum í dag. Oryrkjabandalagið fór fram á þennan fund í fyrradag vegna nýlegs dóms Hæstaréttar og viðbragða stjórnvalda við hon- um. Ætla forsvarsmenn ör- yrkja að skýra fyrir forsetan- um sjónarmið sín og gera honum grein fyrir stöðu mála.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.