Morgunblaðið - 29.12.2000, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 29.12.2000, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR * Breyttar úthlutunarreglur LIN vegna verkfalls framhaldsskólakennara Lán metin til ástundunar fram að verkfalli STJÓRN Lánasjóðs íslenskra náms- manna, LÍN, hefur samþykkt breytta útfærslu á úthlutunar- reglum sjóðsins vegna verkfalls framhaldsskólakennara. Um 240 framhaldsskólanemendur, einkum í iðnnámi, sem sótt hafa um námslán, eiga ekki kost á að staðfesta náms- árangur sinn vegna verkfallsins og að óbreyttu ættu þeir ekki rétt á út- borgun námsláns í janúar nk. Stjórn LÍN hefur samþykkt að þessir nem- endur geti sótt um lán fram að þeim degi sem verkfallið skall á, þ.e. til 7. nóvember síðastliðinn. Skilyrði er að þeir óski skriflega eftir slíku láni fyrir 1. febrúar nk. og að einstakir skólar staðfesti náms- ástundum fram að verkfalli. í tiikynningu frá LÍN segir að samband verði haft við nemendur vegna þessa og þeim sendar upplýs- ingar á næstunni. LÍN mun jafn- framt sjá um að útvega staðfestingu beint frá skólum um ástundun náms- ins. Þeir sem eru í starfsnámi og verða ekki fyrir beinum áhrifum af verkfallinu þurfa eftir sem áður að útvega sjálfir staðfestingu meistara eða vinnuveitanda á námstíma og -ástundun og skila henni síðan til sjóðsins. Ljósmynd/Hafliði B. Guðmundsson Kviknaði í við slökkvistöðina SENDIBIFREIÐ stórskemmdist þegar kviknaði í henni á bflstæði gegnt slökkvistöðinni í Hafnarfirði nokkru eftir hádegi í gær. Slökkviliðsmenn sáu út um glugga stöðvarinnar að kviknað var í bflnum og voru skjótir á vett- vang handan götunnar. Eldur hafði hins vegar kraumað um stund og því urðu skemmdir nokkrar. Bfla- stæðið er í um 100 metra fjarlægð frá lögreglustöðinni og gengu lög- reglumenn á staðinn til að kanna vettvang og gera skýrslu um atvik- ið. Orsakir eldsins eru óijósar, en bifreiðin var mannlaus þegar kviknaði í henni. O -<o Styrkur Nálægð við miðin, þekking á veiðum og vinnslu sjávarafurða, handverk og listiðnaður, nálægð við náttúruna, nægilegt leiguhúsnæði, hagstætt kaupverð fasteigna, ánægja með opinbera þjónustu, góð öldrunarþjónusta og dagvistun, félagsleg samkennd, rætur þjóðmenningar. m Veikleikar Veik staða sveitarfélaga, fólksfækkun, fábreytt atvinnulíf, lágt menntunarstig, fábreytni iðnaðar, lítill markaður, lítil áhersla á rannsóknir og vöruþróun, hár samgöngu- og fjarskiptakostnaður, hátt vöruverð, lágt söluverð fasteigna, lág laun, vantar fólk í heilsugæslu, fábreytt námsframboð, menningar og félagsaðstaða, umhverfismál. Ógnanir Atgervisflótti, fækkun starfa í sjávarútvegi, skuldaaukning sjávarútvegsins, taprekstur í ferðaþjónustu, fjarvinnslustöðvum lokað, fækkun hafna, ótrygg framtíð áætlunarfiugs, fólksfækkun veikir verslun og þjónustu, endalok skólastarfs í fámennum byggðurp, hæg þróun fjarkennslu. I Urdráttur úr niðurstöðum Tækifæri Samstarf/sameining sveitarfélaga, efling mannauðs, aukin fjölbreytni atvinnulífs, fjárfesting í samgöngum og fjarskiptum, afleidd störf í sjávarútvegi, menningartengd/umhverfis- væn/heilsutengd ferðaþjónusta, rannsóknarstarf, fjarvinnsla, jöfnun fjarskiptakostnaðar, netverslun, hitaveitur, fjarkennsla, menningarhús, fegrun umhverfis. Greining Byggðastofnimar á sjávarbyggðum Staðirnir eiga í vök að verjast „ÞESSI greining staðfestir það sem við höfum vitað, að sjávar- byggðir eiga í vök að verjast vegna einhæfni atvinnulífs og fækkunar starfa vegna hagræðingar og tæknivæðingar. Því þarf að finna ný atvinnutækifæri,“ segir Bjarki Jóhannesson, forstöðumaður þró- unarsviðs Byggðastofnunar, um skýrslu stofnunarinnar um svæð- isbundna greiningu á sjávarbyggð- um á íslandi. í skýrslunni er greind staða sjávarbyggðanna hvað varðar fjár- hag, íbúa- og atvinnuþróun, ein- stakar atvinnugreinar, samgöngur, húsnæðismál, félagslegt umhverfi, menntun, menningu og umhverfi. Farið er yfir styrk sjávarbyggð- anna í einstökum landshlutum og almennt, veikleikar þeirra, ógnanir og tækifæri. Tilgangurinn er að finna staðbundin sóknarfæri varð- andi atvinnu og búsetu, en fólks- flutningar frá landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðisins eru alvar- legt vandamál hérlendis, segir í fréttatilkynningu Byggðastofnun- ar. Skýrsla Byggðastofnunar hefur verið birt á vef stofnunarinnar, www.bygg.is, en ekki er fyrirhugað að prenta hana. Segir Bjarki að skýrslan verði í stöðugri þróun. Versta ástandið á Vestfjörðum Að mati Bjarka er ástandið verst í sjávarbyggðum á Vestfjörðum og Austurlandi, þar hafi fólki fækkað mest, en af þessum tveimur lands- hlutum sé ástandið verra á Vest- fjörðum vegna þess hvað sveitar- félögin eru illa stödd fjárhagslega. Hann segir nauðsynlegt að finna nýjar atvinnugreinar fyrir sjávar- byggðirnar. Menn hafi rennt aug- unum til upplýsingatækninnar en áform um sókn á því sviði hafi því miður ekki gengið alveg nógu vel eftir, til dæmis í fjarvinnslu. Telur hann þó möguleika á að lífga það við. Ætlunin að gera samsvarandi greiningu fyrir önnur svæði Þá vekur hann athygli á því að ekki sé nóg að hafa vinnu, búsetu- þættir að öðru leyti þurfi að vera í lagi, svo sem skólar, afþreying, menning og heilbrigðisþjónusta. Ætlunin er að gera samsvarandi greiningu fyrir stærri þéttbýlis- staði og landbúnaðarsvæði. Eftir áramót verður lögð fram á Alþingi úttekt á framkvæmd þings- ályktunar um stefnu í byggðamál- um fyrir árin 1999 til 2001, sem samþykkt var í byrjun síðasta árs. í framhaldi af því verður lögð fram þingsályktunartillaga um stefnu í byggðamálum fyrir næstu fjögur ár og telur Bjarki að greiningin um sjávarbyggðirnar muni nýtast vel við undirbúning hennar. Ifirsiliii Rfttt litttiiii 1. jniir 2801 HöTEL LOFTLEIÐA nýársgleðinnar, Ragnar Wessman er fytlr löngu kurmur hér á landi sem erlendls fyrlr stórkostlegan feril á sviði | matargerðarlistarlnnar, Matseðill kvöldsins er settur saman af alkunnrl snllld Ragnars. Um áfi i'an 2001 2001 Champagne et amuse-gueule Foie gras et confit d'agneau en tenlne sur salade de celSri-me Gæsalifrar- og lambasultutenina á seljurótarsalati Langoustines et csmpote de pommes parlumée á la coríandra sur glace d'araignée de mer Roulade de canard et son magrat croustillanL fenouH braisé et glace de canard aux cassls lelkt andabringa með guf sölberja- og andasösu. Purae de poiras giyrée et sortet aa ritron vert et baslllc ftoslfl perumauk með Ifmúnu- og basllíkukrapfs Fordrykkur frá kl. 19.00 Veislustjóri: Steingrímur Sigurgeirsson Söngskemmtun: Jóhann Valdimar Friðgeirsson meðleikari Ólafur Vignir Albertsson Kvoldverðartúnlist: • Sverrisson Hljómsveit Stefáns P. ásamt Þuríði Sigurðardóttur Gisting f 2ja manna herbergi kr. 6.000.- Morgunverður innifalinn JT VEITINGAR HÚTEL LOFTLEIÐUM Tekifl er á móti pöntunum í símum 5G2 7575 og 5050 925, fax 562 7573 YfirmaúBiflsluniBistari: Veitingastjöri: Reynir Magnússon Traustl Víglundsson Ytirtramreiflslumeistari: Blúmaskraytingar: Gunnhildur Gunnarsdóttir Krisb'n Magnúsdóttir Morgunblaðið/Högni Sigurþórsson Ekið var á jeppann sem er hægra megin á myndinni en mikil mildi þykir að fólk skyldi ekki hafa slasast við áreksturinn. Árekstur í Vest- fj arðagöngunum MILDI þykir að fólk skyldi ekki slas- ast við árekstur í Vestfjarðagöngun- um laust fyrir hádegi á miðvikudag er fólksbifreið ók aftan á kyrrstæðan bilaðan jeppa, að sögn lögreglunnar á ísafirði. Draga varð fólksbifreiðina af vettvangi með kranabíl, þar sem hún er líkast til ónýt eftir óhappið. Jepp- inn er hins vegar hálf ökufær og var síðar ekið út úr göngunum. Óhappið varð við eitt af hliðarút- skotum á einbreiðum vegarkafla ganganna sem eru um 6 km löng. Jeppinn ofhitnaði og bilaði í göngun- um um 500-600 metra frá ganga- munnanum í Breiðadal. Hafði önnur bifreið stöðvað við hlið jeppans til að taka farþega hans og flytja þá áfram og stóð fólk við og fyrir utan jeppann er aðra bifreið dreif að og skall aftan á honum. Að sögn lögreglunnar mun öku- maður fólksbifreiðarinnar ekki hafa séð jeppann vegna móðumyndunar á framrúðu. Vill það gjaman verða þegar ekið er inn í göngin að móða mikil myndast á rúðum vegna hita- breytingarinnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.