Morgunblaðið - 29.12.2000, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 29.12.2000, Qupperneq 30
30 FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Vetrarhörkur í Bandaríkjunum og á Bretlandseyjum Snjór setur samgöngur úr skorðum Washington, Little Rock. AP, AFP. VITAÐ er að minnst 16 manns hafa farist af völdum óveðurs sem gengið hefur yfir suðurhluta Bandaríkjanna frá því á jóladag. Snjókoma og ísing hafa valdið mörgum slysum og um hálf milljón manna mun vera án rafmagns. Hjálparsveitir voru að störfum í norðurhluta Texas, Oklahoma og Arkansas í gær og rafmagnsleysi olli vandræðum í Louisiana við Mexíkóflóa. Flugfélagið American Airlines aflýsti hundruðum ferða frá völlunum í Dallas og Fort Worth í Texas. Miklar samgöngutruflanir voru einnig í gær á Bretlandseyjum vegna éljagangs, á Norður-írlandi var snjókoman sú mesta í 18 ár. Mörgum flugvöllum var lokað að sögn BBC og fjölmargir urðu því strandaglópar. Spáð var enn meiri snjókomu er liði á daginn. Víða var mikil hálka og illfært vegna fann- fergisins, meðal annars í Kent í Suður-Englandi. Læknar ráðlögðu aðstandendum eldra fólks og heilsutæpra að ganga úr skugga um að nægur hiti væri hjá þeim þar sem gera mætti ráð fyrir slæmu veðri í nokkra daga. Ising sligar raforkulínur Mick Huckabee, rikisstjóri í Arkansas, lét í gær þjóðvarðliða dreifa mat og fleiri nauðsynjum til fólks í strjálbýli þar sem rafmagn hefur farið af. Margir komast hvorki lönd né strönd vegna þess að mikil ísing á vegum hefur stöðvað alla umferð á þeim. „Bók- staflega allt er í ólagi,“ sagði Huckabee. „í 11 eða 12 sýslum eru nær allir án rafmagns, símasam- bands og vatns.“ Víða hefur ísing sligað raforku- Einmanalegur póstur á reiðhjóli kemur bréfum á áfangastað í Crumlin á Norður-frlandi í gær. línurnar og tré. Að sögn embættis- manna geta liðið margir dagar áð- ur en búið verður að koma orkumálum í samt lag á sumum svæðum en óveðrið hefur undan- farna daga verið að þokast austur á bóginn til strandríkjanna við Atl- antshafið. Sögðu veðurfræðingar að hvassviðrið væri í Mississippi og Alabama en fram til þessa hefði eingöngu fylgt því rigning en ekki snjór og frost. Orsök kuldakastsins síðustu daga var sögð vera að heitt og rakt loft hefði borist sunnan úr Mexíkóflóa og rekist á lag af köldu lofti. Atkvæði skoðuð í Flórída STARFSMAÐUR kjörstjórnar í Hillsborough-sýslu í Flórída í Bandaríkjunum heldur á loft kjörseðli fyrir blaðamann frá The Tampa Tribune í Tampa í gærmorgun. I krafti upplýs- ingalaga hafa blaðamenn fengið því framgengt að fá að sjá tugþúsundir vafaatkvæða sem greidd voru í forsetakosn- ingunum hinn 7. nóvember, til að fá úr því skorið hvort A1 Gore, fráfarandi varaforseti og forsetaefni Demókrata- flokksins, hefði fengið meiri- hluta atkvæða í ríkinu ef dóm- stólar hefðu heimilað form- lega endurtalningu atkvæð- anna. Aðeins starfsmenn kjör- stjórnarinnar mega snerta kjörseðlana. Byssumaðurinn sem myrti sjö manns í Massachusetts Einfari sem ræddi sprengjugerð á Netinu Boston, Malden. AFP, AP. MICHAEL McDermott, sem hefur verið ákærður fyrir morð á sjö samstarfsmönnum sínum í netfyr- irtæki í Massachusetts á þriðjudag, er lýst sem dularfullum einfara með sérstakan áhuga á byssum og sprengiefnum. Nokkurt magn af efnum og búnaði til sprengjugerð- ar var gert upptækt á heimili hans eftir lögreglurannsókn, en engar vísbendingar fundust um hvort eða hvernig hann hefði ætlað að nota það. McDermott vann við gæðapróf- anir og eftirlit hjá Edgewater- netráðgjafafyrirtækinu íMalden, einu úthverfa Boston. Lögregla rannsakar nú hvort gremja yfir því að vangoldnir skattar yrðu dregnir af launum hans hafí orðið til þess að McDermott gekk berserksgang á skrifstofum fyrirtækisins, en vinnuveitendur hans höfðu nýlega fallist á kröfu skattayfírvalda þar að lútandi. Meðal þeirra sjö sem féllu í valinn voru fimm starfsmenn bókhaldsdeildar og einn starfs- mannastjóra fyrirtækisins. Hafði mikinn áhuga á byssum og sprengiefnum McDermott er 42 ára gamall, frá- skilinn og barnlaus. Að sögn banda- rískra ijölmiðla er margt á huldu varðandi líf hans, en hann virðist Reuters Michael McDermott er hann var leiddur fyrir dömara í fyrradag. hafa verið einfari sem hafði helst samskipti við annað fólk í gegnum spjallrásir á Netinu. Nágrannar og samstarfsfólk lýsa honum sem dul- um manni, sem hafi ekkert látið uppskátt um líf sitt. Að sögn fólks sem rætt hefur við McDermott á Netinu hefur hann mikinn áhuga og töluverða þekkingu á byssum og sprengiefnum og ræddi oft um mál því tengd. Þátttaka hans í slíkum umræðum mun þó ekki hafa vakið grunsemdir um að hann hygði á of- beldisverk. Netveijar segja Mc- Dermott einnig kaldhæðinn og með „svartan húmor“, en hann mun til dæmis hafa sagt smekklausa brandara um matreiðslu dýra sem keyrt hefði verið á. Þegar ákæran á hendur McDermott var lögð fram fyrir dómstóli í Maldcn á miðviku- dag, sagði lögfræðingur hans, Kev- in Reddington, að hann hefði verið í meðferð hjá geðlækni og að hann neytti lyfja. Reddington óskaði eft- ir því að rétturinn tryggði að lyfja- gjöflnni yrði haldið áfram, en neit- aði að skýra fréttamönnum nánar frá andlegu ástandi McDermotts. Löngum stundum um borð í kafbáti McDermott gegndi herþjónustu um sex ára skeið, en þar af starfaði hann sem aðstoðarrafvirki um borð í kjarnorkukafbáti á árunum 1978 til 1982. Fyrrverandi yfirmenn hans segja hann hafa staðið sig þokkalega, en sökum þess að hann stóðst ekki reglubundin próf var hann hvað eftir annað skyldaður til að vera löngum stundum um borð í kafbátnum meðan félagar hans fengu landgönguleyfl. Orku- skortur í Kaliforníu Washington. AFP. BILL Richardson, orkumála- ráðherra Bandaríkjanna, hefur framlengt um eina viku neyð- artilskipun, sem skyldar bandarísk orkufyrirtæki til að sjá Kaliforníubúum fyrir nægi- legri raforku, en alvarlegur orkuskortur er yfirvofandi í ríkinu. Orkuver í Kaliforníu fram- leiða ekki næga raforku til að svara eftirspurn í ríkinu, og Kaliforníubúar hafa því þurft að kaupa rafmagn frá öðrum sambandsríkjum. Óvenju mikl- ir kuldar á vesturströnd Bandaríkjanna í vetur hafa aukið orkunotkun til muna, og það, ásamt óvenju litlu vatns- magni í ám, hefur leitt til þess að nágrannaríki Kalifomíu, Oregon og Washington, hafa ekki haft umframorkubirgðir til að selja Kaliforníubúum. Þá hefur rekstur tveggja stærstu raforkudreifingarfyr- irtækjanna í Kaliforníu, Pacific Gas and Electric Company og Southern California Edison, verið í járnum, vegna hækk- ana á heildsöluverði rafmagns. Heildsöluverðið var gefið frjálst í Kaliforníu fyrir fjórum árum, en hámarksverð er enn í gildi á smásölu, og hafa fyr- irtækin því ekki haft mögu- leika á að auka tekjur sínar til samræmis við verðhækkanirn- ar. A miðvikudag fóru þau þess á leit við orkumálayfirvöld í ríkinu að leyfi yrði veitt til að hækka raforkuverð til notenda um allt að 30%, en forsvars- menn þeirra fullyrða að fyr- irtækin stefni að öðrum kosti í gjaldþrot. Fákshesthús til sölu Höfum til sölu síðasta hesthúsið sem Fákur selur á sínu frá- bæra félagssvæði. Húsið, sem er við Faxaból, er upphaflega innréttað fyrir 38 hross. Mjög stór hlaða með mikilli lofthæð, sem gefur ótrúlega möguleika. Nú gefst einstakt tækifæri fyrir einstaklinga, tamningamenn, nokkra félaga saman eða stórfjölskylduna að eignast stórt hesthús á glæsilegasta hesthúsasvæði landsins. Allar nánari upplýsingar veitir Kári Fanndal. FASTEIGNASALAN GARÐUR Sími 562 1200, 862 3311 Iðnaðarmenn handteknir vegna eldsvoðans í Kína Luoyang. AP. ÆTTINGJAR þeirra sem fórust í eldsvoðanum sem kom upp í stór- markaði í Kína á jólanótt gagnrýndu í gær harkalega kulda og sinnuleysi embættismanna sem sjá um að bera kennsl á líkin. Alls fórust 309 manns í slysinu. Nokkrir iðnaðarmenn, sem voru að logsjóða stálbita í kjallara hússins, hafa verið handteknir og sak- aðir um að hafa valdið eldsvoðanum. Heimildarmönnum bar ekki saman um fjölda hinna handteknu. Yfir 200 manns gengu með kröfu- spjöld um aðalgötu borgarinnar Luo- yang í miðhluta Kína í gær og kröfð- ust þess að embættismenn héldu fund með ættingjum hinna látnu. Yang Zhije, sérfræðingur í örygg- ismálum, sagði í viðtali við kínverska sjónvarpið að settum reglum hefði ekki verið fylgt. Slysið varð í Dongdu- verslanamiðstöðinni að kvöldi jóla- dags og er talið að neistar hafi lent á vefnaðarvöru. Að sögn fjölmiðla flúðu fjórir iðnaðarmenn út úr húsinu er þeim hafði mistekist að slökkva eldinn með vatni.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.