Morgunblaðið - 29.12.2000, Síða 67

Morgunblaðið - 29.12.2000, Síða 67
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 2000 6J DAGBÓK BRIDS Umsjttn Uuðmiiinliir l'áll Arnarson ÞÓTT lesandinn byrji með tvær hendur (tómar) er nokkurn veginn hægt að fylla út í myndina strax í fyrsta slag: Suður gefur; NS á hættu. Norður + Á10 v K542 ♦ DG98 + 763 Suður + K95 *Á3 ♦ ÁK2 +ÁKD52 Vestur Norður Austur Suður - _ 2 lauf * 2spaðar Pass Pass 2grönd Pass 6 grönd Allir pass Vestur spilar út laufgosa og austur hendir óvænt hjarta í þann slag! Það er nefnilega það: Vestur á fimmlit í laufi og sagði spaða ofan í alkröfuna. Hver er áætlunin? Kastþröng á vestur í svörtu litunum gengur ekki upp, því suður er með hót- unarspilin í báðum litum og vestur hendir á eftir. Því má alls ekki dúkka fyrsta slaginn. Innkast með þvingunarívafi er iausnin. Ef vestur á litlu hjónin í spaða, eins og líklegt má teljast, ætti að vera hægt að neyða hann til að gefa spaðaslag í lokin: Noyður ♦ A10 v K542 ♦ DG98 + 763 Vestur Austur ♦ DG8742 4.63 vG vD 109876 ♦ 7 »106543 +G10984 +- Suður +K95 VÁ3 ♦ ÁK2 +ÁKD52 Suður tekur fyrsta slaginn og spilar spaða með því hugarfari að láta tíuna ef vestur setur lítið. En vest- ur stingur gosanum á milli. Ásinn tekur þann slag og síðan eru rauðu slagirnir teknir og laufi hent heima í fjórða tígulinn. Vestur er upptalinn og væntanlega heldur hann í Dx í spaða og þrjú lauf. Þá tekur sagn- hafi hálaufin, sendir svo vestur inn á síðasta laufið og gætir þess vel að losa sig í leiðinni við spaðatíuna í borði og hreinsa þannig stífluna í litnum. Vestur verður þá að spila frá Dx í spaða upp í K9. Ast er... ... að búa sig upp ogfara út að borða. hvítlaukur svo góður! Árnað heilla r D ÁRA afmæli. Nk. OvJ sunnudag, 31. des- ember, verður fimmtugur Heiðar P. Breiðfjörð, versl- unarmaður, Meðalholti 9, Reykjavík. Hann tekur á móti ættingjum og vinum á morgun, laugardaginn 30. desember, frá kl. 21 í Sal Ai- þýðubandalags Kópavogs, Hamraborg 11, Kópavogi. BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 15. júlí sl. i Fríkirkj- unni í Hafnarfirði af sr. Ást- þóri Valgeirssyni Hildur Jóna Þorsteinsdóttir og Sigurjón Einar Þráinsson. Heimili þeirra er í Reykja- vík. Þessir duglegu drengir héldu tombólu í Vík í Mýrdal og söfnuðu 2.481 kr. til styrktar Rauða krossi íslands. Þeir heita Þorgils Haukur Gíslason og Axel Karl Gíslason. SKAK llmsjóii llelgi Áss Grétarsson FYRIR stuttu lauk skákhá- tíð í York á Englandi. Teflt var í þrem lokuðum flokkum og var sá sterkasti þeirra eingöngu skipaður stór- meisturum. Sa'ma fyrir- komulag var fyrir ári, en stórmeistaraflokkurinn hafði þá einnig sömu kepp- endum á að skipa. Sú gam- alkunna klisja að Englend- ingar séu íhaldssamir virðist eiga við einhver rök að styðj- ast. Skoski stór- meistarinn Jonat- han Rowson (2494) varð óvænt- ur sigurvegari, en staðan kom upp á milli hans og sænsks koUega hans Tiger Hill- arp-Persson (2549), sem vann mótið fyrir ári. Sá skoski hafði hvítt og lauk skákinni með snaggaraleg- um hætti. 32. Hxg6+! hxg6 33. h7+! og svartur gafst upp enda verður hann mát eftir 33...Kxh7 34. Hhl + Kg8 35. Hh8# eða tapar liði eftir 33...Hxh7 34. Rf6+ Kf7 35. Rxh7. Lokastaða mótsins varð þessi: 1. Jonathan Row- son (2494) 7 vinningar af 10 mögulegum 2. Julian Hodg- son (2640) 6'h v. 3.-5. Jonny Hector (2509), Alexei Barsov (2534) og Peter Wells (2506) 4!4 v. 6. Tiger Hillarp Pers- son (2549) 3 v. Jólaskákmót Hellis fer fram í kvöld, 29. desember, kl. 20:00. Það verður haldið á ICC-skákþjóninum, en nán- ari upplýsingar um mótið er hægt að finna á skak.is. LJOÐABROT SÍÐASTA FERÐIN Herra guð í himnasal, haltu mér við trúna; kvíði eg fyrir Kaldadal, kvölda tekur núna. * MANVÍSA Enn nærist elskan sanna, enn kærleiks funinn brennur, enn leiftrar ástar tinna, enn kviknar glóð af henni, enn giftist ungur svanni, enn saman hugir renna, enn gefast meyjar mönnum, menn hallast enn til kvenna. Páll Vídalín STJÖRJYUSPÁ eítir Frani'es Urake STEINGEIT Afmælisbarn dagsins: Þú ert ævintýragjarn oghik- ar hvergi við að lenda í aifs kyns uppákomum. Mundu að allur er varinn góður. Hrútur (21. mars -19. apríl) Þú verður að komast yfir and- stöðu þína við breytingar því að ekkert hefst með því að hjakka í sama gamla farinu. Reyndu að nýta umskiptin þér til framdráttar. Naut (20. apríl - 20. maí) Þótt þér finnist þú geta um frjálst höfuð strokið er ekki þar með sagt að þú getir gert hvað sem er því allt byggist þetta á að við göngum ekki á rétt hvert annars. Tvíburar . (21. maí - 20. júní) Áfi Hugmyndm þínar falla í fijóan jarðveg svo þú skalt gefa þér tíma til þess að fylgja þeim eft- ir og fá áhangendur þína til þess að bera málstaðinn áfram. Krabbi ^ (21.júní-22.júlí) Það er hyggilegra að hugsa hlutina í gegn heldur en að bregðast við þeim án allrar fyrirhyggju. Myndaðu þér skoðanir áður en þú aðhefst eitthvað. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) 3* Þú verður að vera maður til þess að taka afleiðingum gjörða þinna. Sá sem vill njóta gæða heimsins verður að vera reiðubúinn til að hlíta settum leikreglum. Meyja (23. ágúst - 22. sept.) vDíL Allar breytingar eru tækifæri tál hins betra. Þú lærir hluti sem umbylta lífi þínu og að minnsta kosti hefur af þeim eitthvert gaman. (23.sept.-22.okt.) Komdu sjálfum þér og öðrum á óvart með einhverju sem þú hefur aldrei gert áður. Það stælir hugann að finna upp á nýjungum og fylgja þeim eftir. Sporðdreki (23. okt. -21.nóv.) Það er alltaf tvíbent að reyna að þrýsta hlutum í gegn án þess að vinna þeim jarðveg- inn. Bogmaður (22. nóv.-21.des.) ítSf Það er að taka öllum nýjum hugmyndum opnum huga en mundu að það sem gagnast einum er kannski ekkert f\TÍr öðrum því sérhver verður að finna sinn takt í lífinu. Steingeit (22. des. -19. janúar) áÍÍB Veltu því fyrir þér sem mælir með einhverju og hinu sem talar gegn því. Aðeins með því að kynna þér allar hliðar getur þú tekið þá ákvörðun sem far- sæluster. Vatnsberi (20. jan. -18. febr.) vfint Láttu það ekkert slá þig út af laginu þótt ókunnugir kunni ekki að meta verk þín. Þeir munu flykkja sér um þig. Fiskar ,mt (19. feb. - 20. mars) Þú virðist vera að sigla inn á lygnan sjó og átt svo sem fyrir því að eiga rólegar stundir. Njóttu þeirra en búðu þig um leið undir nýjar sviptingar sem óhjákvæmilega eru á næsta leiti. Stjörnuspána á að iesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byegðar á traustum grunni vísinaaíegra staðreynda. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Jólamót SPRON og BR Minningarmót Harðar Þórðarson- ar verður haldið í kvöld, fostudaginn 29. desember í húsnæði BSÍ, Þöngla- bakka 1. Mótið hefst kl. 17. Spilaður er Monrad barómeter, 11 umferðir með fjórum spilum á milli para. Áætluð mótslok eru rétt eftir kl. 23. Keppnisgjald er 2.000 kr. á mann. Veitt verða peningaverðlaun fyrir sex efstu sætin auk þess sem veitt verða verðlaun fyrir efstu pör í kvennaflokki, blönduðum flokki og heldri spilara flokki. í lok mótsins verða einnig veitt aukaverðlaun af handahófi til þeirra sem eru við- staddir verðlaunaafhendinguna. Keppnisstjóri er Sveinn Rúnar Ei- ríksson. Ski-áning er á spilastað við mæt- ingu auk þess sem hægt er að skrá sig símleiðis í s. 587-9360. Rey kj avíkurmótið í sveitakeppni 2001 Reykjavíkurmótið í sveitakeppni 2001 fer fram dagana 11.-23. janúar. Spilaðir verða 16 spila leikir nema að þátttaka verði of mikil til að leyfa þann fjölda spila. Spilað verður með forgefnum spilum og verður árangur hvers pars metin í fjölsveitaútreikn- ingi. Keppnisdagar miðað \ið 24 sveitir (23 umferðir). 9. janúarumf. 1-2 10. janúarumf. 3-4 13. janúarumf. 5-8 14. janúarumf. 9-12 16. janúarumf. 13-14 17. janúarumf. 15-16 20. janúarumf. 17-20 21. janúarumf. 21-23 Niðurröðun leikdaga gæti riðlast ef þátttaka verður minni eða meiri en gert er ráð fyrir. Skráningarfrestur er til 17:00 mánudaginn 8. janúar. Dregið verður í töfluröð kl. 18:0(1 sama dag. 14 efstu sveitimar úr Reykjavík öðlast rétt til að spila í undankeppni Islandsmótsins í sveitakeppni 2001. Keppnisgjald er 24.000 kr. á sveit. Tekið er við skráningu á skrifstofu BSÍ, s. 587-9360. eða í tölvupóst bridge@bridge.is Skráningu verða að fylgja nöfn 4 spilara í sveitinni. Heimasíða mótsins er www.isl- andia.is/~svenni. Bridsféiag Fjarðabyggðar Miðvikudagskvöldið 27. desember var spilaður tvímenningur hjá Bridgefélagi Fjarðabyggðar. Átta pör tóku þátt ogvoru spiluð fjögur spil milli para. Urslit urðu á þessa leið: Ottar Guðmundsson - Einar Þorvarðarson97 ÁmiGuðmundss.-ÞorbergurHauksson 97 Atli Jóhannesson - Svavar Kristinsson 94 Svavar Bjömsson - Oddur Hannesson 80 Bridsfélag Suðurnesja Úrslit í jólatvímenningi urðu þessi: Oli Þ. Kjartanss. - Garðar Garðarss. 69 Karl Karlss. - Gunnlaugur Sævarss/ Kjartan Ólason 59^ Randver Raparsson - Jón B. Stefánss. 46 Sigriður Eyjólfsdóttir - Grethe íversen 24 Jóhann Benediktss. - Sigurður Albertss. 20 Þriðjudaginn 2. janúar 2001 held- ur stjórnin aðalfund sinn og hefst hann kl. 19. Eftir fundinn verður spilaður tvímenningur. Aðalsveita- keppnin hefst 8. janúar. Að lokum óskar stjórnin öllum árs og friðar. afsláttur af öllu jólaskrauti ■* Fasteignir á Netinu (gþmbUs <r /

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.