Skírnir - 01.01.1883, Qupperneq 84
86
ÍTALÍA.
álitamumirinn sje ekki mikill á neinum höfuðmálum, hefir De-
pretis optsinnis játað í ræðum sínum, og sagt, að áform sitt
væri að halda því sama áfram, sem hinir hefðu byrjað á, bæta
við í sumum greinum, bæta um í öðrum. Jm verður eigi
heldur mótmælt, að þessir menn hafa komið miklu áleiðis til
allsháttar endurbóta í lögum og landstjórn — og hitt eigi
minnst að meta, að þeim hefir tekizt að koma fjárhag Italiu í
skaplegt horf, skapa rjett jafnvægi með tekjum og útgjöldum.
A þetta minntist Depretis í októbermánuði í ræðu til kjósenda
sinna — eða rjettara sagt: í veizlugildi, sem þeir hjeldu honum
(i Stradella) — og talaði um afnám mylnuskattsins, lækkun
annara skatta, bætt kjör embættismanna, treystar landvarnir,
bætta uppfræðingu alþýðunnar; og svo frv. Hann sagði að
þingið hefði samþykkt 534 laganýmæli siðan 1876. Eitt þeirra
eru listakosningar til fulltrúadeildarinnar, sem öldungaráðið fjellst
á 3. mai, og urðu svo í lög leiddar á Ítalíu fyr enn á Frakk-
landi. I niðurlagi ræðu sinnar minntist hann konungsins og
konungsættarinnar, kallaði hana bæði þá elztu og þá frjáls-
lyndustu, sem til væri í Evrópu, og minnti menn á, hvernig
Sardiníukonungar hefðu lagt líf sitt við lif þjóðarinnar, og hvað
Italia ætti hreysti þeirra upp að inna. Að loknu máli sínu
bað hann menn drekka minni Umbertó konungs, og var það
drukkið með miklum fagnaðarómi. — Nýjar kosningar fóru
fram i lok októbermánaðar, eptir enum nýju kosningarlögum
— sem höfðu lika fært út kosningarrjettinn — og hlaut stjórn-
inn drjúgan viðauka við fylgislið sitt á þinginu*).
*) Menn telja svo, að en nýju kosningarlög haff komið tölu kjósend-
anna upp úr 600,000 í 2 millíónir. Hvað skattgjald snertir, höfðu
þeir áður kosningarrjett, sem guldu 40 franka til ríkis og hjeraðsþarfa,
nu er ei meira til tekið enn 19 fr. og 80 sentímur. Áður kusu að
eins háskólakennarar, kennarar við ena æðri skóla, embættismenn í
þjónustu ríkisins, menn sem báru riddarorður — en nú allir kennarar,
við hvaða skóla sem eru, menn sem hafa tekið burtfararpróf í æðri
mennta skólum (21 ára gamlir), allir embættismenn, hverju umboði sem
þeir gegna, og allir sem liafa fengið minnispeninga fyrir framgöngu
sína í her, eða fyrir annan drengskap og dugnað.