Skírnir - 01.01.1883, Side 101
ÞÝZKALAND.
103
þetta þótti heldur fara að sjást fæðarmark á afstöðu keisaraveld-
anna sin á milli, þó blöð Slafavina sneru heldur máli sinu að
Austurrikþ þegar það hafði kúgað uppreisnina i Bosníu og
Herzegóvinu. En allir vissu samt hitt, að Bismarck líkaði
vel rögg og röskleiki stjórnar Austurrikiskeisara. það var sem
enga ræki lengur minni til vináttumálanna í Danzíg (í hitt eð
fyrra). Lengi sumars bar á dylgjum í blöðunum, einkum í
Austurríki og í haust og í byrjun vetrarins þótti þeim meir
enn mál komið að hefja herskjöld móti Rússlandi. þeim
stormi sló aptur niður, er hinn nýi kanselleri Rússakeisara,
Giers (sjá Rússlandsþátt), lagði leið sína um Vín frá Italíu, er
hann hjelt heimleiðis, en 'nafði áður haft tal af Bismarck (í
Warzín). Menn leiddu mörgum getum um fundi þeirra. Vjer
leiðum hjá oss, að greina þær nánara eða leggja þær á met,
en af því má nokkuð ráða, er þau blöð, sem eru Bismarck
innan handar, minntust um þær mundir (í desember) á sam-
bandið við Austurriki, og kölluðu það „bandalag“ með stödd-
um einkamálum. þau sögðu líka á stundum, að það þyrfti
ehginn sjer að ætla, að komast þeirra ríkja á milli. þetta
þótti benda til, að Bismarck hafi grunað, að erindi Giers væri
meðfram að vita, hvað takast mætti um aðskilnað þýzkalands
og Austurrikis. Vjer látum þetta liggja milli hluta, en til hins
mun rjett getið, að Bismarck þyki það forsjállegast að hafa
andvara á sjer gagnvart Rússum. Fyrrum þótti mest undir
vináttu höfðingjanna kornið, en saga seinni tírna hefir sýnt, að
þjóðernishreifingarnar geta eigi komið minna til leiðar, þar
sem máli skiptir um samdrátt og sundurleitni með þjóðurn og
ríkjum. Jafnvel á Rússlandi hefir mátt taka eptir því, að þjóðar-
viljinn og þjóðartilfinningin, er farinn að ryðja sjbr svo til
rúms, að sjálft alræðisvald Zarsins hefir orðið að sveigja undan.
Sbr. „Skirni" .1882, 83—86. bls. Bismarck mun ætla, að al-
slafneski flokkurinn hafi svo sitt mál fram til lykta á Rússlandi,
að en næstu stórræði þess rísi af tilstilli og eggingum þeirra
manna. En með því að allmikill flokkur af Slöfurp i Austur-
TÍki fýsist heldur i samkomulag við Rússa, en kýs Austurríki
aust allra mála við þýzkaland, þá mun nærri fara því er