Skírnir - 01.01.1883, Page 111
AUSTURRÍKI og ungverjaland.
113
svo liði sínu saman, að f>jóðverjar urðu forviða fyrir þeim, og
ráðaneytið af þýzka flokkinum („ríkislagaverjöndum“, sem þeir
kalla sig) varð að gefa upp völdin. Síðan hafa þau verið í
höndum þeirra manna, sera að vísu vilja halda alrikisskránni,
tvídeildarlögunum, en um leið auka sjálfsforræði landanna og
gera öllum þjóðflokkum jafnan rjett, eða með öðrum orðum:
svipta þjóðverja þeirri frumtign, sem þeir hafa veitt sjer sjálfir
og svo ósanngjarnlega á haldið. Einn af stórsigrum Czeka
voru lögin um tvídeild háskólans í Prag (sjá „Skírni“ 1882,
78. bls.), en hann unnu þeir til fulls á þessu ári (snemma í
febrúarmánuði), er efri deildin („herradeildin11) samþykkti þau
svo sköpuð, sem þau komu frá fulltrúadeildinni, og rak aptur
uppástungu þjóðverja, að gera þýzkuna eina — í stað beggja
málanna — að skyldunámi fyrir alla embættismenn. þegar
þess er gætt, að vart 2/s landsbúa i Böhmen og Máhren eru
af þýzku kyni, og að tala enna czeknesku stúdenta i Prag
var 1200 í móti 600 þýzkra, þá er bágt annað að sjá, enn
hjer hafi verið gegnt rjettum kröfum. En hitt, er þó til enn
meiri frambúðar fyrir Slafa, er ný kosningarlög gengu fram á
þinginu, þar sem kosningarrjetturinn er mjög út færður —
miðaður við 5 gyllina skattgjald —, og tala slafneskra kjós-
enda verður samsvarandi þvi hlutfalli, sem er með slafnesku
og þýzku þjóðerni. þjóðverjar gerðu allt sem unnt var að
sporna á móti nýmælunum, og viðkvæði þeirra var, sem optar,
að þau mundu verða keisaradæminu til falls og glötunar. En það
kom fyrir ekki, og álíka og þeir hafa orðið undir á þinginu,
verða þeir nú alstaðar að lúta i lægra haldi, þar sem Slafar
halda til kapps málum sinum, og gerast þeim andvigir fyrir
tungu sinni og þjóðerni; Eins og áður er á vikið fer hinu
sama fram í austurdeild alríkisins. þar er þýzkan alstaðar
komin á flótta fyrir Madjaramálinu. þjóðverjar hafa kallað
Búda-Pesth, höfuðborg Ungverja, „ena fögrustu þýzkra borga“,
og menn telja að þar og í hjeraðinu umhverfis bæinn búi
300,000 þjóðverja, og 1869 voru þar tveir skólar alþýzkir, en
28, þar sem kennt var á báðum málunum. En 1880 voru al-
þýzku skólarnir horfnir, og tala hinna komin niður i 6, en á
Skírnir 1883.
8