Skírnir - 01.01.1883, Qupperneq 117
RÚSSLAND.
119
á hann að hafa farið fram á að gera smám saman bændurna
að sjálfseignamönnum. IgnatjefF vildi alls ekki með þessu
móti takmarka Zarveldið, og það vill enginn Slafavinur, en
hann vildi gera það vinsælla, og ætlaði ekkert betur fallið til
að gera bændur og borgalýð afhuga gjöreyðöndum og illræð-
nm þeirra, enn slíka ráðabreytni. A ráðstefnu hjá keisaranum
á Sjúvaloff greifi að hafa sagt við Ignatjeff: ,.það sem þjer
viljið, er ekki annað enn keisaralegur sósialsmus. “ Hinn svar-
aði: „Og það sem þjer viljið, er sósíalismus lendra mannau.#)
Zarveldið á þar enn versta óvin sinn heima hjá sjer, er
níhílistarnir eru. Af sögnum má ráða, að nú hafi til mikilla
muna á unnizt að hepta illræði þeirra, en í dróma er sá úlfur
ekki kominn. Fjöldi gjöreyðenda hafa enn komizt í höpt, og
af þeim sumir sætt lífláti, aðrir varðhaldsvinnu á Rússlandi,
en allur þorrinn rekinn til Síberíu. Töluna vitum vjer ekki,
en líklegt, að hún hafi eigi orðið minni enn árið á undan (1881);
hún var þá nær því 12,000, auk þeirra sem fylgdu ættingjum
sínum og ástvinum. 1 byrjun ársins tókust rannsóknir á sökum
23 nihilista, þeirra er við verstu illræðin voru riðnir, eða ymsar
*) Enginn ber á raóti því, að Ignatjeff sje vitur, snarráður og vel að
sjer, en erindrekar stórveldanna í Miklagarði þóttust eiga þar við
slægðarref að sjá, er hann var til móts, svu vel sem hann kunni tökin
á Tyrkjum og soldáni þeirra. það getur verið, að þeir fyrir þá sök
hafi valið honum svo ljót nöfn, er þeir — eða blöðin eptir þeim —
kölluðu hann »föður lyginnar- og fl. því um líkt, að þeir hafi opt
farið flatt fyrir honum. Stundura var sagt, að hann hefði komið svo
fortölura sínum við soldán, t. d. við Abdúl Azíz, að honum var næst-
um komið í hug að gerast skjólstæðingur Rússlands eins, og vísa
ráðum hinna stórveldanna af höndum. Menn segja að óvinir Ignatjeffs
við hirð keisarans, hafi stundum lygaföðurnafnið honum til sneiðar.
Einn af þeim er sá maður, sem Tsjerevin heitir — nú, að því oss
minnir, fyrir löggæzlustjórninni peirlgnatjeff voru einu sinni saman í boði
hjá keisaranum, en Ignatjeff er bindindismaður, og neytir engra áfengfa
drykkja. Keisarinn á að hafa sagt við Tsjerevin, að það væri undar-
legt, er Ignatjeff vildi ekki bragða á víninu, en hinn að hafa þá mælt
þetta: ■ það gerir Ignatjeff varla, því hann þekkir orðtakið latneska:
• In vino veritas». (Vínið sannleikann segir = »öl er innri maður»).