Skírnir

Ukioqatigiit

Skírnir - 01.08.1913, Qupperneq 16

Skírnir - 01.08.1913, Qupperneq 16
508 Púkinn og fjósamaðurinn. að vera mesti kvennabósi, sem engin stúlka væri óhult fyrir. Honum voru eignuð ein 5—6 önnur börn, sem fæddust það árið i reiðuleysi. »Svínið að tarna!« sögðu kerlingarnar. Sagan endar á því að ný vinnukona frúarinnar, sem upphaflega hafði skapað Putois í vandræðum sínum, kemur inn og segir að maður í vinnufötum geri orð eftir henni og vilji tala við hana. »Hvað heitir hann?« »Putois«. Frúin bað stúlkuna að spyrja hvað hann vildi, en þegar hún kom fram aftur var hann allur á brott. Frá þeim tíma fór frúin líka að hugsa að óvíst væri nema Putois væri til og að hún hefði ekki logið honurn upp. — Eg veit það vel, að önnur sagan er þjóðsaga en hin skáldsaga, en það sem þær herma er svo sennilegt, að margt heflr gerst ólíklegra. Saga trúarbragðanna og goða- fræðin gætu nefnt mörg slík dæmi. Sumir guðir hafa í fyrstu ekki verið annað en nafnið tómt, alveg eins og Putois. Svo hafa þeir smám saman magnast við það að talað var um þá eins og þeir væru til. Og því fleiri sem á þá trúðu, töluðu um þá, ákölluðu þá og færðu þeim fórnir, því voldugri urðu þeir, því víðar birtust þeir og létu til sín taka. Ymsar verur, sem trúað hefir verið að byggi í lofti, jörð eða sjó, eru runnar af misskilningi á einhverju orði, eins og fuglinn »Sút«, sem segir frá í Þjóð- sögunum, átti tilveru sína að rekja til orðanna »sút flaug í brjóstið inn«, í Passíusálmunum. En eins og púkinn í fjósinu hans Sæmundar fróða horaðist með hverju dægri sem hann var ekki nefndur á nafn, þannig hefir og farið ýmsum guðum, og ýmsum þeim verum sem áttu orðun- um einum upphaf sitt að þakka. Vér trúum nú ekki á Þór né Oðinn né aðra guði forfeðra vorra. Hvers vegna? Vegna þess að hætt er að segja af þeim nýjar sögur. Þeir voru til og máttu sín mikils meðan um þá var talað með lífi og sál, en þeir dóu út þegar nýir guðir komu til sögunnar, sem meira var um talað, og nýjar sögur sagðar af. Um leið og þeir »voru úr sögunni«, voru þeir ekki lengur til.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Skírnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.