Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.08.1913, Side 43

Skírnir - 01.08.1913, Side 43
Josef Calasanz Poestion. 235 Poestion er afkastamikill rithöfundur. Fyrstu rit hans voru einkum um forn-suðræn efni: Griechische Dichterinnen (Grrískar skáldkonur) 1876, Griechische Philosophinnen (Griskir kvennspekingar) 1887, Aus Hellas, Rom und Thule (Frá Grikklandi, Róm og íslandi) 1887. öll þessi rit hafa komið út í tveim útgáfum. í síðastnefndu riti sínu leiðir Poestion fram á sjónarsviðið forníslenzkt skáld (Gunnlaug ormstungu), berserkina norrænu og gátur Gestumblinda, og er meðferð hans undir eins örugg og viðfeldin. Hann lætur sögurnar sjálfar segja frá í góðri þýðingu og setur þær í umgjörð sem skýrir þær. Síðan hefir Poestion verið ötull brautryðjandi fyrir bókmentir Norðurlanda meðal þýzkumælandi þjóða. Á tvennan hátt: Hann hefir búið í hendur þeim sem læra vilja Norðurlandamálin — ritað kenslubækur í þeim öll- um, fyrst Einleitung in das Studium des Altnordischen (Leiðarvísir til að læra norrænu, 2 bindi, málfræði og lesbók), þá danska, norska og sænska mállýsing, er hver hefir komið út í þrem útgáfum, og norska lesbók. Þessar kenslubækur hafa áunnið honum mikið lof vísindamanna og kennara fyrir lærdóm, samvizkusemi og hagsýni, og eru þær taldar einhverjar hinar beztu hver í sinni grein. Á hinn bóginn hefir hann þýtt skáldrit eftir ýmsa Norður- landahöfunda: H. C. Andersen, Drachmann, Bauditz, Rudolf Schmidt, Kielland, Elster, Ibsen, og að auki ýms kvæði, lappneskar þjóðsögur og æfintýri, og vísindalegar ritgerðir. En mest hefir Poestion þó unnið fyrir oss Islendinga með ritum sínum um land vort, þjóð og bókmentir, og þýðingum á íslenzkum bókum og ljóðum. Hann þýddi »Friðþjófssögu« 1879, »Pilt og stúlku« 1883, — af henni eru komnar út 4 útg. — »íslenzk æfintýri* 1884. Árið 1885 kom út hið merka rit hans: Island. Das Land und seine Bewohner. (Island. Landið og þjóðin), Isfimdische Dichter der Neuzeit (íslenzk nútíðarskáld. Lýsingar af þeim og úrval af kvæðum þeirra í þýðingum, með yfir- liti yfir andlega lífið á íslandi síðan um siðaskiftin) 1897, Zur Geschichte des isl&ndischen Dramas und Theaterwesens

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.