Skírnir - 01.08.1913, Side 54
246
Nútima hugmyndir um barnseðlið.
Jafnvel í svo stuttu raáli gera skýr börn stundum
verulegar villur. Eitt segir innbrotið hafa gerst í n ó 11,
á L a u f á s v e g i, sem hvorttveggja er rangt. Annað að
spellvirkinn hafi verið v e 1 b ú i n n, þriðja að brotist hafi
verið inn i n r. 2 0, en hvorugt það var nefnt. Hér eru
ósannindi í byrjun, þótt engin hvöt valdi, heldur einungis
ónákvæm eftirtekt. Vitanlega breytist sagan tiltölulega
þvi meir sem hún er oftar sögð, og eru myndbreyting-
arnar eftirtektai’verðar. Ef sagt er frá slysum og mann-
tjóni fjölgar sífelt særðum og dauðum. Skaðinn er hafinn
i annað veldi. Sama villa hendir fullorðna menn þó að
sjaldnar sé. Þannig telst réttarfræðingum svo tii, að 25°/0
af öllum vitnaframburði séu ósannindi, jafnvel þó að vitn-
in ætli að segja satt. Það eru óafvitandi ósannindi; þeim
veldur ónákvæm eftirtekt, og ímyndunarafl, sem ræðst inn
á svið skynseminnar. I börnum er ímyndunaraflið frjótt
og skapandi; hvert atvik, heyrt eða séð, vekur skammlíf,
virkileikaleg hugsanasambönd, svo að hverful draumsjón
verður sögumanninum, eftir eigin dómi, að fullum veru-
leika. En að sama skapi sem ímyndunaraflið er máttugt
;i börnum, eru bönd þau, sem halda því í réttum skorðum
i vel þroskuðum mönnum, varla hálfmynduð; þau vantar
.þekking, dómgreind, stilling og virðing fyrir siðlegum lög-
um. Rangminni er þannig ein af uppsprettum ósanninda.
Uppeldið þyrfti að búa menn til varnar móti þessari
meðfæddu breytingahneigð, ef unt væri. Heizta þekta
ráðið er athugunarkensla, æfing i að skoða gaum-
gæfilega, bera saman likt og ólíkt í eðli og útliti liluta,
festa myndina í huganum. Við samathuganir og saman-
burð lýsinganna læra börn og menn varfærni, reyna að
alla getur hent að fella úr eða auka við óafvitandi. Þann-
ig lærist flestum smátt og smátt að halda stöðugt höndinni
á lífæðinni, að vera á verði móti sínu eigin imyndunar-
afli, að það breyti ekki og bylti hugmyndunuin, svo að
sannleikur verði að villu.
Aðrir ófullkomieikar loða við minni manna. Flestir
-eru ekki jafnvígir á alt, hafa sérsvið þar sem minni þeirra