Skírnir - 01.08.1913, Síða 75
Heimur versnandi fer.
267
Rannsóknir seinni ára hafa sýnt að í öllu kjöti og
fiski er mikið af margskonar eiturefnum, sem komast í
blóðið, og veikja líkamann. Kjötið brennur illa í líkam-
anum, og skilur eftir þessi eitruðu" efni, sem líffærin eiga
erfitt með að losna við.
Kjötátið á ennfremur þátt í hinni miklu ólgu og ýldu,
sem framleiðist í ristlinum af bakteríuáhrifum. Margskon-
ar eiturefni myndast þar, fara útí blóðið, og veikja lík-
amann. Metschnikoff telur flesta ellisjúkdóma stafa af
þessu, og heldur því fram, að unt muni að lengja líf
manna að mun, með því að koma i veg fyrir alla ýldu
og rotnun í ristlinum. I þeim tilgangi ræður hann mönn-
um að borða Búlgaríuskyrið yoghurt — en íslenzka skyr-
ið mun ekki standa því að neinu leyti að baki, og er
þegar fengin reynsla fyrir, að það er sérlega hollur mat-
ur. Eg tel súrt skyr vera öflugt læknislyf í sumum melt-
ingarsjúkdómum, einkum gerlaþembu, sem stafar af
ristilhólgu.
Maðurinn er eina skepnan á jörðunni sem skemmir
mat sinn áður en hún neytir hans. Með því að sjóða
alla hluti spillast margir hollir réttir, og ennfremur er
matnutn spilt með mustarði, pipar, ediki og öðrum skað-
vænum kryddum, sem tilraunir hafa sýnt, að framleiða
æðasigg og önnur ellieinkenni, ef þeim er spýtt inn í
blóðið í dýrum.
Þá minnist Kellogg á ofátið og ofdrykkjuna, sem rót
alls ills, og skal eg ekki þreyta menn á að fara mörgum
orðum um þau atriði, með því að eg hefi í tveimur fyrir-
lestrum áður gefið yfirlit yfir skoðun vísindanna á þeim.
Dr. Kellogg endar hinn fróðlega fyrirlestur sinn með
þessum orðum:
»Mannkynið hefir flýtt sér svo á menningarbraut sinni,
að það hefir í flaustrinu gleymt að bæta úr þeim missi,
sem tilbreytni frá eðlilegum lifnaðarháttum hefir haft í för
með sér. Vér þurfum eigi að verða villimenn aftur, til
að lifa heilsusamlegu lífi, en vér verðum að gæta þess að
andrúmsloftið sé þó eins hreint, eins og það, sem villi-