Skírnir - 01.08.1915, Page 17
Veturinn.
241
•skylda livers einstaklings er að þroska sjálfan sig. Hið
sama gildir um þjóðirnar. íslenzka þjóðin er nú á vara-
samasta aldurskeiði. Hún er lik unglingi, sem kemur frá
fámennu afdalabýli og inn í stórborgarglaum. Við lifum
á þeim tíma þegar fjarlægðirnar minka og þjóðirnar fær-
ast nær hver annari, fyrir bættar samgöngur og aukin
viðskifti. Öldur stórþjóðamenningarinnar sópa um öll lönd,
jafnt Island sem Astraleyjar. öldin, sem er að byrja, hlýt-
ur að verða byltingaöld. Hún mun og talsvert breyta
öllum okkar atvinnuvegum: búnaði, iðnaði og fiskiveiðum,
innleiða erlenda starfshætti og jafnvel erlendan hugsun-
arhátt.
Qnga kynslóðin hefir mikið hlutverk. Hún þarf að
breiða út faðminn móti heimsmenningunni, taka á móti
hverri góðri erlendri hreyfingu er hingað berst og gera
hana innlenda. En um fram alt þarf hún að hlúa að öll-
um góðum og gömlum þjóðernisstofnum, skapa nýtt
ísland og verja það handa Islendingum.
Ef við höldum andlegu og efnalegu sjálfstæði
í byltingum þessarar aldar; ef við þroskum þjóðern-
ið um leið og við öflum okkur aðfenginnar menningar, þá
munum við skipa virðulegt sæti á meðal þjóðanna.
Jón Sigurðsson.
16