Skírnir - 01.12.1915, Side 77
Bismarck.
413
Þá var Bismarck 24 ára gamall, er hann tók við búi.
Höfðu þeir bræðurnir tveir, Bernhard og Otto, fyrst þrjá
búgarða í sameiningu, en skömmu síðar tók Otto við
tveim þeirra. Hann var búmaður góður og uxu jarðirnar
mjög í verði meðan hann sat þær. Hjúum sínum var
hann góður, og er sagt að hann talaði við þau sem jafn-
ingja sína. En heldur þótti hann aðsúgsmikill og ófyrir-
leitinn, og enginn heiður þótti konum að sitja við hlið
hans. í ástamálum var hann fremur óheppinn og ónýtt-
ist fyrir honum trúlofun oftar en einu sinni, en hann
þráði þó lieimilisgæfu. Þótti honum einlífið daufiegt,
einkum síðan er systir hans giftist 1844. Jók það á, að
hann hafði á ungum aldri veiklast mjög í trúnni og kunni
eigi að biðjast fyrir frá því, er hann var 16 ára. En í
Pommern voru trúmenn miklir og þótti því eigi árenni-
legt, að gefa Otto von Bismarck dætur sínar. En um
þetta skeið kyntist hann Marie von Thadden, unnustu
eins æskuvinar síns, og urðu þau góðir vinir. Reyndi
hún jafnan að örfa trú hans, en aldrei tókst henni að
vinna hann til bænarinnar, fyr en á banasænginni, rétt
áður en hún dó. Honum varð síðan rórra í skapi og náði
aftur bjartsýni æsku sinnar. önnur hamingja varð hon-
um og að þessum sinnaskiftum. Nú var rutt úr vegi
þyngstu mótbáru væntanlegra tengdafeðra, enda varð hon-
um að því, er hann feldi næst hug til konu. Sú hét
Jóhanna von Puttkammer, góð kona og gáfuð. Hennar
fekk hann og gekk að eiga hana 28. júlí 1847.
Þetta verður að nægja í stuttum fyrirlestri, og verður
eigi rúmsins vegna sagt gjör frá þessum kafla úr æfi
Bismarcks, þótt mörgu sé slept, sem frásagnar er vert.
Þó verður hér eftir styttra yfir sögu farið, því að upp frá
þessum tíma verður saga Bismarcks eigi fullsögð, nema
saga Þýzkalands sé sögð út í æsar um leið. Því verður
hér að koma örstutt yfirlit.
Nú bar svo við, að Saxelfur braut skjólgarða og flóði
víða yfir landið. Var það fyrir þá sök að umsjónarmað-
ur var ónýtur. Þá varð skaði á landi Bismarcks og gekk