Skírnir - 01.12.1915, Qupperneq 85
Bismarck.
421
skrauthlutur í sínu eigin stjórnarfarshúsi. En er hann var
laus orðinn við þingið 13. október 1862, þá tók hann til
óspiltra málanna og lét nú auka og endurbæta herinn og
gerði þingið fornspurt að því. Hann réð þá og fram úr
vandamálum í tollfélaginu, og ónýtti tilraunir sunnan-
manna að sameina þýzku ríkin undir handleiðslu Austur-
ríkis, og hélt þó stundum við ósigri, einkum þá er konungi
lá við að láta undan »þrjátíu’ stjórnöndum og konungi
sem sendisveini«. Þá var og töluverð hætta á ferðum, er
Napoleon III. boðaði til þjóðfundar í París og ætlaði að
»friða Norðurálfuna friðsamlega«. En þá sá Austurríkí
sér hættu búna og leitaði nú stuðnings á Prússlandi. Þetta
'kom Bismarck vel, því að málum Slesvíkur og Holsteins
var nú svo komið, að þýzka sambandið þurfti að vera á
einu máli.
Hertogadæmin svokölluðu gerðu uppreisn móti Dana-
konungi 1848, en urðu þá undir, því að Austurríki sendi
þangað her. Var þeim síðan stjórnað af þrem umboðs-
mönnum, einum úr Austurríki, öðrum úr Prússlandi og
hinuin þriðja úr Danmörku Friðrik VII. var rétt borinn
til þess að vera þar hertogi, en hann var barnlaus. Var
þá Kristján frá Glúcksburg kjörinn ríkiserfingi, en hann
var kominn af Danakonungum í kvenlegg. Nú voru
þau lög í Holstein að karlleggurinn einn var arfgengur.
Þótti þeim því Kristján 9. eigi arfborinn til hertogatignar,
heldur Kristján Agúst frá Augustenburg. En hann sagði
lausum rétti sínum fyrir sig og sína og fekk fyrir 225000G
ríkisdali danska. Friðrik sonur hans taldi sig þó eigi
bundinn af þeirri afhendingu réttarins og alment töldu
Þjóðverjar brotinn rétt á honum með Lundúnaákvæðun-
um En þar ákváðu stórveldin, — Rússland, Frakkland,
Austurríki og Prússland — og Svíakonungur, að veldi
Danekonungs skyldi óskiftilegt og Kristján 9. erfa hertoga-
dóm í Slesvík og Holstein. Þetta var 8. maí 1852. Þessu
mótmælti Bayaraland og Aldinborg hátíðlega og töldu rétt-
arspjöll, og eigi fekk Bismarck því frarakomið að sam-
bandsþingið viðurkendi þessi ákvæði: Þau voru því skuld-