Skírnir - 01.12.1915, Síða 105
Ritfregair.
441
ur sem ritgerðir í því verða framvegis hafðar með sjálfstæðu blað-
síðutali, svo að þær geta jafnframt verið bækur út af fyrir sig.
Af Sólarijóðum hefir líka verið prentuð skrautútgáfa og er lík-
legt að bókavinir fl/ti sór að ná í hana. G. F.
1889—1914. NáttúrufræðisféJagið tuttugu og fimm ára.
Rvík 1914.
í afmælisriti þessu er fyrst saga »Hins íslenzka náttúrufræðis-
félags« eftir dr. Helga Jónsson. Er hún ljóst og vel samin. Fyrst
er skýrt frá því er stofnað var »íslenzkt náttúrufræðisfólag« í Kaup-
mannahöfn 1887 fyrir ötula framgöngu Björns Bjaruarsonar fyrv.
sýslumanns og Stefáns Stefánssonar skólameistara, er þá dvöldu í
Höfn. Það fólag leið undir lok er »Hið íslenzka náttúrufræðisfólag«
var stofnað í Reykjavík 16. júlí 1889 fyrir forgöngu Stefáns
Stefánssonar, er þá var kominn heim til íslands. Erfði þetta nýja
félag svo nafna sinn í Höfn og urðu gripir þeir, sem það hafði
safnað, fyrsti vísir »Náttúrugripasafnsins«.
Höf. gerir grein fyrir stofnun félagsins, fólagsmönnum, félags-
stjórn, fjárhag, safninu og skýrslum þeim, sem fólagið hefir gefið út.
Saga þessa félags er að mörgu merkileg. Hún sýnir hvernig
eitt hið þarfasta safn vort hefir sprottið upp af hugsjón eins manns
og dafnað i kyrþey fyrir ósórplægna alúð nokkurra macna, og þá
fyrst og fremst forgöngumannsins og formannanna Beuedikts Grön-
dals, Helga Pjeturss og Bjarna Sæmundssonar, sem um síðastliðin
8 ár hefir verið formaður fóiagsins og umsjónarmaður safnsins með-
miklum dugnaði. I bókinni eru myndir af nokkrum aðalmönnum
félagsins: Stefáni Stefánssyni, Birni Bjarnarsyni, J. Jónassen, Birni
Jenssyni, Þorvaldi Thoroddsen, formönnunum þremur, og svo tvær
myndir af Náttúrugripasafninu. Alþingi hefir styrkt fólagið frá
upphafi, fyrst með 400 kr., nú með 1000 kr. á ári. Gestir safnsins
eru nú nær 4000 á ári.
Aftan við sögu fólagsins er fróðleg ritgerð eftir Stefán Stefáns-
son skólameistara: Öspiu í Fnjóskadalnum. G. F.
Die Wunder in Schillers »Jungfran von Orleans«, Inau-
gurai-Dissertation .... vorgeiegt von Alexander Jóhannesson
aus Island, 75 bls., 8 blbr., Halle a. S. 1915.
Fyrir lesendur Skírnis er rótt að geta með fám orðum, hver
þessi jungfrú frá Orleans var. — Filippus fríði, konungur Frakka