Skírnir

Volume

Skírnir - 01.04.1916, Page 14

Skírnir - 01.04.1916, Page 14
126 Um Þorleif Guðmundsson Repp. [Skírnir mannahafnarháskóla í eðlisfræði; hann lýkur miklu lofs- orði á þekking og ástundan Þorleifs í vitnisburði, sem enn er til í skjalabögglum Þorleifs. Eigi reyndist þó Örsted Þorleifi sem bezt síðar, er Þorleifur átti þungan andróður við aðra, svo sem enn verður frá sagt. Svo var Þorleif- ur þá orðinn fróður í lækningum, að hann samdi ritgerð til úrlausnar vísindalegu verkefni háskólans í læknisfræði,. er heiðurspeningi háskólans var heitið fyrir, en eigi mun hann hafa sent þá ritgerð til háskólans. Fyrir kom og það, að hann var látinn vera respondens, sem kallað var, eða svaramaður við dispútázíur í læknisfræði — yfirleitt var Þorleifur talinn skæður andmælandi við dispútázíur háskólans og varð oft til þess að andmæla doktorsefnum — og svo segir Byrgir prófessor Torlacius, að við doktors- dispútázíu í læknisfræði 1821 hafi Þorleifur leyst svo vel. af hendi þetta starf sitt, að allir þeir, sem vit hafi haft á, hafi lokið lofsorði á frammistöðu hans. En eigi lagði Þorleifur stund á læknisfræði lengur en tvö ár og eigi hugði hann á embættispróf í þeirri grein. Eftir það sökkti liann sér af kappi niður í heimspeki og fagurfræði. Árið 1818 var úrlausnarefni fyrir heiðurspen- ing háskólans í heimspeki þetta: »Exposita notionum, quas homines vocabulo naturæ exprimere soleant, varie- tate, eaque, quantum fieri queat, ad unum constantemque sensum revocata, diligens explicatio detur ideæ hocce vocabulo insignitæ«. Þorleifur samdi þá ritgerð til úr- lausnar þessu efni og hlaut heiðurspeninginn eftir dómi háskólakennaranna næsta ár (1819) með lofsamlegum ummæl- um. Þessi ritgerð hans var eigi prentuð, en hún var undirstaða undir ritgerð þeirri, er hann samdi fyrir meist- aranafnbót, svo sem síðar segir. Árið 1823 var úrlausnarefni til þess að öðlast heið- urspening háskólans í fagurfræði á þessa leið: »At under- söge og med Exempler at oplyse, hvorvidt det er nöd- vendigt, at et Digt oversættes i samme Versart, hvori det er skrevet«. Þorleifur samdi enn ritgerð til úrlausnar þessu verkefni og hlaut enn gullpening háskólans fyrir.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.