Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1911, Page 45
47
kistu í klaustrinu á fjallinu Sínaí. Á hana er gott að heita fyrir heim-
spekinga og vísindastofnanir; einnig þeim sem í sjávarháska eru staddir.
Mynd Katrínar heíir haldið sér einna bezt af öllum myndunum
á kápunni og fylgir hér með mynd af henni.
Efst á vinstra borðanum er mynd af karlmanni í fótsíðum kyrtli
rauðum og með bláa káp um sig, en hann er berfættur og berhöfðaður.
Hár og skegg brúnt, mikið. Hann er á gangi og sér á vinstri hlið
honum. I hægri hendi ber hann spjót, styður því á jörðina fyrir
framan sig hægra megin og stendur upp fjöðrin. Vinstri hendi réttir
hann fram fyrir sig; ef til vill hefir hann haldið einhverju i henni,
en það slitnað af. Þessi heilagi maður virðist helzt vera Tómas
postuli.
Um hann eru sögur og á hann eftir þeim að hafa verið sendur til
Indlands, til að smíða Gundaforusi konungi höll; þessvegna er einkenni
hans venjulega mælisnúra eða hornmál. — Fé það er honum var fengið
til að kaupa fyrir byggingarefni til hallarinnar, gaf hann fátækum mönn-
um, en er konungur varð þess vís, vildi hann taka hann og drepa, þar til
er hann fékk að vita á yfirnáttúrlegan hátt, að Tómas hafði fyrir féð bygt
honum höll á himnum. Segir sagan, að Tómas hafi skírt Gundaforus
(Gondopharas). — Gondophares var sannsögulegur konungur, parthneskur
að ætt og ríkti í Peschawar við Indus, kunnur af mörgum áletrunum og
myndum. — Tómas gerði mörg kraftaverk og sneri mörgum mönnum til
kristinnar trúar. Hann endaði svo æfi sína, að Mezdeus konungur lét fjóra
hermenn reka hann í gegn með spjótum. Flokkur kristinna manna, sem
átt hefir heima á Malabar frá því um 600, er keudur við hann, hafa þeir
til forna staðið í sambandi við kristna menn á Sýrlandi, en urðu Nestor-
ianar og skiidust við aðalkirkjuna, persneskir Nestorianar rekja og upp-
runa sinn til hans. Á Tómas er smiðum og byggingamönnum gott að
heita. Tómasarmessa er 21. desember.
Miðmyndin á vinstra barmi er bersýnilega Jeronimus (.Hieronym-
us) hinn helgi kirkjufaðir. Hann er með kardínálahatt á höfði og í
fótsíðri kápu, upprunalega rósrauðri(?) að lit, með löngum opum á
hliðunum, sem hann stingur höndunum út um; í hægri hendi heldur
hann stöng eða staf, er hann styður á jörðina og er kross (Lazarus-
arkross) á endanum, en í vinstri hendi heldur hann á opinni bók.
Fyrir fótum hans liggur ljón, er heldur upp hægra framfæti og er
þyrnir i fætinum. Geislakranzinn um höfuð þessa dýrlings og hinn-
ar heilögu Katrínar er saumaður með grænu silki og gullnum þræði.
Það yrði of langt mál hór, að skýra nokkuð að gagni frá æt'iat-
riðum þessa stórmerka manns. Hann fæddist um 340 í Stridon, (á landa-
mærum Panuoníu og Dalmatiu); hót fullu nafni Eusebius H. Sophronius.
Foreldrar hans voru kristnir, en sjálfur var hanu skírður í Róm, er