Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1911, Side 50

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1911, Side 50
52 framan til) beggia vegna, og a kraganum. aeigia menn ad biskup Jon Arason hafl hana til kirkiunnar lagt, og þad truest almennelega. vidi« (þ. e. eg sá hana). Areiðanlegt var og alkunnugt, að Jón biskup Arason hafði geflð Hólakirkju einhver dýrindis messuklæði, af 8. erindinu í minnisvísum þeim, sem Olafur skáld Tómasson á Hafgrímsstöðum (d. 1595), — systursonur barna Jóns biskups og trúr fylgdarmaður hans á yngri árum, — orti um Jón biskup Arason og sonu hans eftir dauða þeirra; kvæðið var prentað í Bisk. sögum, II. b., bls. 485—498, og er 8. erindi þannig: Skínandi var skníðinn einn, sem skenkti hann heim til Hóla, með flugeli' allur fagur og hreinn, flúraður í þeim skóla, sem langt í löndin er; aldrei borið heflr annað slíkt enn fyrir sjónir mér, veit eg fátt svo fólkið rikt, að flnni’ hans likann hér. í næsta erindinu á undan hefir skáldið lýst hinum dýrmæta gull- kaleik, sem Jón biskup lét smíða erlendis handa kirkjunni í tíð fyrir- rennara síns, og sem rænt var frá kirkjunni af Dönum sumarið 1551; en i næsta erindi á eftir lýsir höfundurinn altarisbríkinni miklu, sem Jón Arason hafði gefið Hólakirkju, og er þar yfir altarinu enn í dag (sbr. Árb. 1910, bls. 63). Það vill nú svo vel til, að hægt er að færa nær óyggjandi sannanir fyrir því, að kórkápa sú, sem hér er um að ræða, er ein- mitt eins og sagan hefir sagt tillögð Hóla dómkirkju af Jóni biskupi Arasyni, og að 8. erindið í kvæði Olafs Tómassonar er um þessa kórkápu eða þann sama biskupsskrúða, sem hún hefir til- heyrt, en sannanirnar eru í skrám þeim um eignir kirkjunnar, sem jafnan voru gerður er nýr maður tók við forráðum hennar, og eru skrár þessar enn til í Landsskjalasafni voru, komnar þangað úr Biskupsskjalasafninu. I Isl. Fornbrs. hafa, eins og sjá má hér að framan, verið prent- aðar 4 skrár um eignir Hóla-dómkirkju, 1. frá 1374 (D. I. III. 287), 2. frá 1396 (D. I. III. 606), 3. frá ca. 1500 (D. I. VII. 463) og sú 4. frá þvi er Jón Arason tók við dómkirkjunni árið 1525 (D. I. IX. bls. 294; sbr. og bls. 335). í þeim skrám finst ekki getið neinnar kápu sérstaklega, er ætla mætti að væri sú hin sama og hér er uni að ræða, — en það er raunar engin sönnun fyrir því að hún hafi samt ekki verið til þá, því að kápunum er ekki lýst.

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.