Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1911, Qupperneq 51
53
Næsta skrá um eignir Hóla dómkirkju er sú sem nefnd var hér
að framan, gerð á jólunum 1550, að Jóni biskupi Arasyni fráföllnum,
af syni hans síra Sigurði á Grenjaðarstað, og er til (á Lskjs.) með hans
eigin hendi í frumritinu (Sigurðar-registri), á 6. bl. o. s. frv. Skal
nú tilfært hér það af þessari skrá, sem þarf, og síðan kaflar úr eftir-
fylgjandi úttektum og skrám um eignir Hólakirkju, eftir því sem
þörf gjörist, og mega menn þá glöggvast sjá það sem unt er að til-
færa af sögu kápunnar fram til vorra daga.
Skrá um eignir kirkjunnar gerð á Hólum 1550 á jólunum.
í SigurSar registri á 6. bl.
í þann tima sem lidit var fra holldgan Drottens vorss Jhesu Christi m. d.
og 1 aara. war biskup Jon Arason Godrar minningar. Gud hans saal nááde.
sem uar á holum j hiallta dal a Islande. vigdnr biskup. og samþýcktr Admini-
strator skalhollz biskups dæmis. af kennemonnum skalholldz kirkiu. Halshogguin
j skalholltti. á enn siounda jdus nouembris. var þat þáá faústudagur. næstur
firir marteins messo á haustenn. Og á enum næstum Jolum þar epter war skod-
at og saman reiknad med alite og ýfer sion Godra manna. Lærdra og leikra.
Domkirkiunnar gotz. heima á holum. og saman Reiknader aller adrer domkirk-
iunnar Peningar faster og lauser. frider og ofrijder. kuiker og dauder. Epter
þui sem Radzmann domkirkiunnar Sira stulle Einarsson. og adrer vt vmboða
og bua Radzmenn Giordu reikningskap. Og suo war saman reiknad. huad log-
ast hafde wpp a fimm og ,xx. aar á meden biskup Jon hafde riktt. og suo
huad aukist hafde. og hann hafde til lagtt. og epter aullum fýR saugdum grein-
um. var þetta registrum gíortt. og samsett sem hier epter skrifad stendur.
Þessa peninga og ornamentum innan kirkiu Hefur Biskup Jon lagtt til hola
dom kirkju þat æigi er fyr skrifad. Ein forgyllt brik á midiu kirkiu golfe.
med alltare og aullum sinum buninge. Messu haukull og tuær dálma
dikr med Rosafluiel. Cantara kápa med flugil. Subtijl med gud-
vef og dubullt silke — o. s. frv., bækur, tjöld o. fl., og þar á meðal »S a n d a 1 i a
m e d f 1 u g e 1«.
1569.
í sömu bók, á 32. bl. fr.
Þa lidid var fra holldgan Jhu x’. m. d. Ix og ix ár at framlidnum herra
Olafi hialltasyni super intendens holensis pie memorie þann atianda dag februarij.
þa sigurður prestur ionsson medtok holadomkirkiu forrædi ýfersyn oc vmvernd.
tok hann þa þann sama dag reikningskap kirkiunnar og stadarins a nockrum
daudum peningum innann stocks oc at nærstum paskum a ornamentum innan
kirkiu oc þar epter a bokum i skola oc suo reikning a kosti oc fridum pening-
um at ionsdeigi sem suo kallast. oc er þann (sic) xxt! oc þridie dagur aprilis. og
suo vm vorid fyrir fardaga allann reikningskap iarða oc kugillda oc fridra peninga
i heima vmbodum oc so vtumbodum so sem hier eptir. skrifað stendur. epter