Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1911, Síða 59

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1911, Síða 59
61 Ketilsson úr Ásum og iieiri brennumenn féllu fyrir Kára Sólmundar- syni 1013, og sagt er frá í Njálu. Hafði Ketill úr Mörk skilið þar við þessa félaga sína, og riðið fram í Meðalland við áttunda rnann. Eptir vígin sneri Kári og Björn í Mörk ofan með Skaptá, þar til er áin féll sum í austur, en sum í landsuður, sem hefir verið skamt frá Skál. Sneru þeir þá ofan með miðkvíslinni, og léttu eigi fyrri en þeir komu í Meðalland, og á mýri þá, er Kringlumyri heitir (Njála, Kh. 1875, kap. 151 15-19). Þar var þá hraun alt, umhvertis, sama hraunið, sem enn er, því að Skaptárhraunin 1783 komust aldrei svo langt fram, að þau rynni yfir þenna stað. Eptir uppdrætti sira Sæmundar Hólms, sem fylgir riti hans um Skaptáreldinn, og prentað er í Khöfn 1784, þeim er sýnir héraðið eins og það var fyrir Skaptár- eld, er auðsætt, að þeir Kári hafi ekki farið niður með Landá, sem rann í Kúðafljót fyrir austan Leiðvöll ofan um Arnargljúfur, — sem enn sér ljóslega merki til, meðal annars fossfar mikið með djúpu hyljarfari í grjótinu, — heldur hafi þeir farið niður með kvísl þeirri, er Sæmundur nefnir Melkvísl, og rann milli Botna, Hólma og Hólma- sels í Fjótsbntninn, þar sem upptök voru Fljóts l Meðallandi, er síðan Skaptáreld hefir verið kallað Eldvatn í Meðallandi. Með því að fara svo austarlega niður hafa þeir þózt öruggir um að komast fyrir þá Ketil, að ekki væri þeir farnir austur um. Síðan hafa þeir Kári snúið suðvestur með hraunbrúninni, alt þar til þeir komu á Kringlu- mýri, og mun alfaravegur hafa legið um hana. Þar var veiðivatn, sem Kringla hét. Austan mýrarinnar rann á sú, er Höfðakvísl hét, og kom utan úr svo nefndu Breiðalækjargljúfri, en rann síðan aust- ur hjá Langholti og Lyngum, og kallaðist þá Lyngakvísl, og féll í Strandarholtsós. Eptir uppdrætti Sæmundar prests hefir Kringlumýri verið í Hraunslandi fyrir neðan hraunbrúnina austur frá Hrauni. Mýrina segja kunnugir menn nú komna í leiru, og Kringluvatn er víst fyrir mart laungu fylt af sandi. Njála (kap. 151) greinir ljóslega frá því, hverir féllu fyrir Kára við Kringlumýri. Það voru þrír menn: þeir Vébrandur og Asbrand- ur Þorbrandssynir, — sem eru lítt kunnir, — og Glúmur Hildisson, sem var fremstur allra brennumanna, annar en Flosi, og Flosa hinn handgeingnasti. Getur hans víða í Njálu. Hann var sonur Hildis hins gamla í Borgarhöfn, og er Glúmur talinn með höfðingjum í liði Flosa. Það var Glúmur, sem kveikti í á Bergþórshvoli. Það var hann, sem gekk upp á skálagaflhlaðið með Flosa eptir brennuna og spurði, hvort Skarphéðinn mundi nú lífs. Það var hann, sem tók um hendur Ásgríms Elliðagrímssonar, þegar hann ætlaði að keyra öxina i höfuð Flosa, þegar Flosi heimsótti hann í Tungu honum tii
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.