Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1911, Page 65

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1911, Page 65
67 akamt framar fann eg 2 brot af leggjum, aitt á hvorum stað, aem ajá mátti að voru af mannsleggjum. Skamt frá rústinni eru bæði grjótbungur og garðlög á fleirum en einum stað, og hafa þar verið allmiklar byggingar. Vatnsbólið hefir verið lækur, sem runnið hefir i Rangá rétt fyrir austan bæinn. Sér þar glögt farveg hans með vatnsnúnum klöppum og virðist hann ekki hafa verið alllítill. Hann hefir komið beint úr vestri, frá hárri hraunbrún, sem þar verður. Þó hefir hann ekki komið upp undan henni, að minsta kosti ekki allur, því farvegurinn liggur innan með henni frá því á móts við yngra Merkihvol. Virðast upptök lækjarins hafa verið þar nálægt, og hefir sá bærinn þá haft þar vatnsból. Sandfok eða jarðskjálfti hefir þurkað lækinn. Er stutt bæjarleið milli gamla og yngra Merki- hvols. Engar fornar byggingaleifar sjást hjá yngra Merkihvoli. Mun þar engin bygð hafa verið (hjáleiga e. a.) fyr enn bærinn var færð- ur þangað. En byggingarleifar eru á nokkrum stöðum í hraunbrún- inni, sem fyr er getið og er ekki annað liklegra, en að þar hafi verið býli. Það hefir þá verið Merkihvols kirkjusóknin, ef um kirkju- sókn hefir verið að ræða. Það er merkilegt, að á þessu svæði hefir uppblásturinn fært sig framanfrá inneftir, gagnstætt venju. En skilja má það: í norðan- áttum stendur harður strengur fram fyrir vestan Búrfell og stefnir á þetta svæði. Gangi áttin til útnorðurs, sem oft ber við, færist vindstaðan austar. Og það hefir hér grandað. Enn er eftir óblásin torfa eigi all lítil inn frá yngra Merkihvoli. Er þar skógur og í góðri framför. Br. J. 9*

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.