Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1911, Síða 84
86
6064. «/s
6065. 22/s
6066. a9/8
6067. —
6068. —
6069 a-c. 8/9
6070. as/9
18 sm., þverm. um 10 sm., jafnvíð öll, nema um barm-
ana nokkru mjórri. — Undan Jökli.
Altarisstjaki úr kopar, lítill, hæð 16,7 sm., stéttin all-
mikil um sig, þverm. 11,8 sm. neðst, en stjakinn upp
af grannur, rendur með liðum. Frá Holts-kirkju í Fljótum.
Eikarkista mikil, járnbent, og hafa böndin á lokinu og
lamirnar verið með fallegu, gagnskornu verki, sem nú
er gallað mjög af ryði og brotið. Stærð sjálfrar kist-
unnar er neðst 145X56 sm., en efst 152X64 sm. Hæð
upp á lok, sem er kúpt nokkuð, 72 sm. Handraði er
við annan gafl. Kistan er afar rammgjör. Hún er frá
Þingeyrum og sögð hafa staðið þar mann fram af manni.
Hefir hún jafnan verið kölluð »fangakistan«, og fylgir
henni sú sögn, að Bjarni sýslumaður Halldórsson hafi
læst niður í hana fanga, er geymdir skyldu eða prófaðir.
Nálhús úr beykitré, útskorið, með upphafsstöfunum
GED og árt. 1880; með 3 pípum St. 8,2X5,9 sm.,
þ. 1,5 sm.
Nálhús úr skinni og flaueli með silfurbaldýringu eftir
Sigríði Bachmann, systur Jóns prests Bachmanns. Með
3 álftarleggjapípum í. St. 8,5X6 sm.
Steinn með boruðu gati í gegnum annan endann, spor-
öskjulagaður, 1. 14,5 sm., br. 10,2 sm., þ. 3,8 sm. mest;
vídd gatsins 1,3 sm. Efnið grágrýti. Krot nokkuð á
annari hlið, máske merki. Líklega gamall lóðarsteinn.
Fundinn í Reykjavík. Afh. af fornmenjaverði.
Framhlið af gamalli eikarkistu, öll útskorin einkar hag-
lega; mun vera útlent verk; hún er sett saman af 4
spjöldum í umgjörðum með strikuðum brúnum og renn-
ingum. St. er 119X50 sm., en vantar lítið á annan
enda. Skrá er föst á. Útskurður og verk er í endur-
lifnunarstíl og varla yngra en frá 16. öld ofanverðri;
þýzkt eða hollenzkt verk. Hérmeð fylgir ennfremur
útskorið spjald, líklega úr loki eða öðrum hvorum gafli
sömu kistu, og útskorin fjöl, máske af handraða í sömu
kistu. Norðan úr Skagafirði.
Spaði úr greni allur, 1. 84,5 sm., br. blaðsins, sem er
bogadregið að neðan og ólögulegt, er mest 21 sm.,
gildl. 8kaftsins 4,5 sm. um miðju. Spaði þessi mun
vera forn; hann fanst við mótekju djúpt í jörðu í Ytra-