Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1953, Page 21
25
3. Vitnisburðinn gefur bóndinn á Víkingslæk, Ólafur Halldórsson,
í Skálholti 1612, þannig: ,,I fyrstu norðan fram á millum Bolholts
og Víkingslækjar, af Djúphól og sjónhending í Hrútshelli, en Rangá
rceður suðureftir (vsv. réttara) að Freysteinsholti. En frá Freysteins-
holti er sjónhending í Ballarholt, sem stendur fyrir austan (sunnan)
hraunið. Þar gengur einn garður á millum þeirra holta og réttsýnis
út í Víkingslœk. Item frá Ballarholti og (austur) í Hvítamel, úr Hvíta-
mel og aftur í Djúphól. En við Hvítamel mætast jarðirnar Kot og
Steinkross að austan, en Víkingslækur að utan“. — Af undirstrik-
uðum örnefnum geta allir séð, að töluvert ber á milli hjá þessum
þrem mönnum. Það er aðeins Hrútshellir og Hvítimelur, sem allir
nota.1 I staðinn fyrir Freysteinsholt og Vallarholt nefnir sá fyrsti
Fífuflag og Svínavöll. Og fyrir Stóraklif hjá hinum hefir sá þriðji
Djúphól. Hann einn nefnir líka garðlagið.
Auk landamerkjanna hefir biskup tekið upp ýmsar athugasemdir
eftir Ólafi Halldórssyni, og eru þessar helztar í litlu ágripi:
1. Að á Freysteinsholti ,,séu miklir og blásnir sandmelar“.
2. ,,Frá Svínhaga liggur ein gata austur (suður) að Steinkrossi
og í þá götu á Víkingslækur, að utan að Hvítamel, en Kot og
Steinkross austan að götunni“.
3. Garðurinn fyrrnefndi er milli Vallarholts og Freysteinsholts, og
er landamerki milli Víkingslækjar og Heiðar.
4. Halldór Jónsson var 39 ár á Víkingslæk, dó 1610, 83 ára.
5. Ólafur, sonur Halldórs Jónssonar (nýnefndur) hefir nú (1612)
einn um fertugt.
6. Jón Jónsson á Strönd ber sama vitnisburð um landamerki Vík-
ingslækjar. Hann ólzt þar upp hjá föður sínum í 15 ár, og er
nú 83 ára.
7. Biskup ritar: Nú hefi ég beðið Torfa Eiríksson á Keldum að
lögfesta fyrir mig Víkingslæk, og það hefir hann gjört.
8. Ólafur Halldórsson segir, að Jón Arngrímsson hafi umboð yfir
kóngsparti, 5 hundruðum í Víkingslæk, og vilji byggja þann
part sérstaklega, eða flytja þangað 2 kvígildi, ásamt kvöðum,
sem þar hafi ekki þekkzt í manna minnum. ,,Þar fyrir hefi ég
1) Nafnið Hvítimelur held ég vafalaust að dregið sé af vikrinum hvíta,
sem enn gerir sandana á svæði þessu mjög hvítleita af vikrinum í stórum
og litlum molum. Þar er og gróðurlausasta flatlendi og ömurlegasta á öllum
Rangárvöllum. Og gæti ég vel trúað, að svona hafi það verið á Hvítamel,
síðan mest kom af hvíta (sama) vikrinum í Þjórsárdal, því að miklu er
Hvítimelur eldri en vikurdrifið úr gosinu margnefnda 1693.