Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1953, Side 52
56
ágætri ritgjörð sinni um Heklu, í Árbók Ferðafélagsins 1945, bls.
58—59, að hraun þetta hafi ,,eflaust runnið löngu áður en land
byggðist“. — Væri £>ví æskilegt, ef hann vildi eða gæti við hentug-
leika athugað nánar aldur hrauns þessa.
Eftir áður sögðum einkennum og sérstöðu þessa umtalaða húss,
tel ég líklegt, að afnot þess, til hvers sem var, hafi oröiö mjög skamm-
vinn, og því líklegast nýlega byggt, þegar hraunið rann.
Hverf ég nú frá þessum stað að öðru, ssnnilegra yngra hrauni,
sem nefnt er Svartahraun eða Norðurhraun eða Norðurhraun í Sel-
sundi. Það nær frá þeim bæ norður undir Haukadal og langa íeið
þaðan í austurátt. Eru í því hrauni birkiskógar og sauðfjárhagar
góðir.
Munmæli gömul og ný nefna þrjá bæi, er orðið hafi undir hrauni
þessu. Og þar sem ekkert annað er að styðjast við en munnmælin,
er ekki efamál, að Svartahraun er eldra en frásagnir af hrauninu
sunnan Selsundsfjalls og eyðing Skarðs og annarra bæja þar. Verða
nú hér nefnd nöfn bæjanna.
77. Kanastaðir. Örnefni þrjú, Kanastaðanef, Kanastaðabotnar og
Kanastaðatorfa, mega teljast fullgild sönnun fyrir því, að býli þetta
hafi verið til og orðið undir nýnefndu hrauni norð-vestarlega, nær
Haukadal en Selsund. Kanastaðanef mun vera vestasta nefið á hraun-
inu og Kanastaðabotnar eru uppsprettur lækjar, sem koma undan
hrauninu, sunnan við nefið. En torfan var á melnum þar á móts við,
síðustu leifar af gömlum jarðvegi, eftir uppblástur á öllum melum.
Hún var að síðustu orðin örlítil og mjög há, eins og á öðrum slíkum
stöðum, og hvarf alveg nálægt 1930. Líklegt er, að þetta hafi verið
stórjörð og kennd við mann þann, er byggði þar í fyrstu, kani að
viðurnefni.
Nú er komið að hinum bæjarnöfnunum: Stóraskógi og Litlaskógi.
Ekki verða þau studd, svo ég viti, með sérstökum örnefnum, nema
ef vera kynni Stóruskógarbotnar. Og þar sem vöxtur skógarins og
stærð trjánna á tilgreindu svæði — án bæja — hefðu getað heitið
þessum nöfnum, þá verða þau nokkuð tortryggiíegri. Eigi að síður
tek ég þau í eyðibýlatöluna, bæði sökum þess, að landrýmið er næsta
nóg, og líka af því, að lengi hefur svo verið talið og því trúað, að
þarna hafi bæir orðið undir hrauninu.
78. Stóriskógur. Meginhluti af suðurjaðri Svartahrauns hefir
mætt mótspyrnu og myndað brún við norðurhallanda frá Selsunds-
fjalli og Botnafjalli að Heldu. Verður þar því dálítið bil rnilli hrauns
og hlíðar, og hefir þar verið reiðvegur sæmilegur frá Selsundi til