Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1953, Blaðsíða 57
61
bróður sínum. Þannig gekk jörðin áfram til sonar frá föður: Guð-
mundar á Keldum, Arna og Jónasar á Reynifelli.
Athugasemdir. — 1) Hrappstaðir, sem áður eru nefndir (nr. 22), ættu
nú að vísu eins vel heima hér sem þar, af því að bæjarstæðið sjálft hefir
aldrei blásið upp og eitthvað af óblásnu landi jarðarinnar lagt til Þor-
leifsstaða og Reynifells. En þar á móti er bæjarstæðið á svo lágkúruleg-
um stað og túnstæði svo rotið, gróðursnautt og lélegt, að alls engin lík-
indi eru til endurbyggingar þar. Og auk þess mundi staður sá þykja óþarf-
lega nærgöngull nefndum bæjum. Sama er yfir höfuð að segja um Smiðju-
nes, þar hjá (nr. 23), hafi þar verið sérstakur bær. — En þó því fremur
sett á réttan stað, sem það er minna. — 2) Keldur vil ég líka rétt aðeins
nefna hér, sökum þess að þar hefir bærinn verið fluttur, að líkindum
nálægt aldamótunum 1200, og upphaflega bæjarstæðið aflagt að fullu og
öllu. En ekki þykir mér þó hlýða, að setja hér eyðinúmer á Keldur fyrir
þetta bæjarstæði. Læt ég heldur nægja að vísa til rökfærslu um þetta
bæjarstæði í bókinni ,,Keldur“, bls. 153.
3. Króktú n var lengi hjáleiga írá Keldum, og byggð svo snemma
í fyrstu, að 1711 vissi enginn nein skil á því. Býlið taldist lU Keldna
og því 10 hundruð meðan Keldur töldust 40 hundruð. Enda mátti
heita að það væri „hjartað úr skákinni“. Hafði beztu heimahagana
út frá túni, skjólgott og ágætt beitarland, Króktúnsheiðina, með gili
fögru. Vesturbotnar og Króktúnslækur skilur túnið frá Keldnatún-
inu að vestanverðu. — Sökum þessa notalega nábýlis, getur hugsazt,
að einhver heimabóndi hafi í fyrstu byggt Króktúnið einhverjum
náskyldum eða tengdum náunga.1) Túnið var girt með torf- og grjót-
garði árla á 19. öld. Hefur líklega aldrei verið stærra en það er nú,
eða gefið af sér meira en 1—2 kýrfóður af töðu og engar slægjur
aðrar en kropp úr lautum í heiðinni í valllendisárum. Ekki er Krók-
túnið heldur talið geta fóðrað nema 1 kú og vetrung árið 1711. Þó
er þá áhöfn þar 3 kýr og 1 kvíga, 41 kind og 5 hross. En leigumáli
sagður vera 60 álna landskuld og 2 kvígildi. (Sigurður landsskrifari
á þá jörðina). Engir ókostir eða spjöll af sandfoki eru þá nefnd á
býli þessu, og er slíkt fágætt um jarðir á Rangárvöllum. Enn eru þar
ekki heldur mikil spjöíl af sandi, nema sagazt hefur af ,,Jaðrinum“
svo nefnda, norðan af heiðinni, vestur frá túninu, allt í Utbuginn við
Stokkalækinn.
1) Þannig var það notað af Steini, syni Guðmundar Erlendssonar, nokk-
ur ár. Svo og afskipti af ekkju Guðmundar og sonardóttur hans. (Sbr.
,,Keldur“, bls. 43 o. fl. st.).