Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1953, Blaðsíða 73
77
ærum, er nú í óvissu, en þó ekki svo, að öldum skipti eftir þetta. —
Talið er, að um eitt skeið hafi bænahús verið á Þorleifsstöðum.
Jörðin. Landslag og jarðargæði er að flestu leyti líkt á báðum
þessum jörðum. En matið er alltaf eins á Þorleifsstöðum, 1681,
1861, 20 hundruð, en þá 23,2 hundruð 1932 3500 kr. og 1942
4000 kr.
Tvíbýli hefur verið á Þorleifsstöðum öðru hvoru, svo er það 1711
og aftur á 11. öld (1833—46), en varla úr því, og þrír húsbændur
voru þar 1733. En þrátt fyrir tvíbýlið mun þar oftar hafa verið
heldur minna bú en á Rauðnefsstöðum. T. d. eru þar hjá báðum
1711: 9 nautgripir, 147 kindur, en 14 hross. Jarðarafgjald hafa þeir
hærra, 138 álna landskuld, móti 100 á Rauðnefsstöðum og 5 kvígildi
móti 4. Getið er sama árennslis á engjar og að auki: „Högum grand-
ar blástur. Líka er peningi hætt fyrir giljum“. — Jarðarspjöll af fok-
sandi munu aldrei hafa orðið mikil á Þorleifsstöðum eða langvinn.
(Þeirra hefir gætt meira á landi Reynifells, og gætir þar enn, þótt
nú fari væntanlega að lagast, vegna girðingar um gárann).
YFIRLIT OG VIÐAUKI
Hér að framan hefir nú verið getið að nokkru 79 eyddra býla eða
bæjarstæða og 23 aflagðra bæja til ábúðarafnota. Samtals 102. —
Þar eru talin aðeins tvö tvíbýli, á Helluvaði og Víkingslæk. En tví-
býlin eyddu og aflögðu eru svo mörg og óviss um tímatal, að þeirra
verður hér að litlu getið. En þó vil ég nefna aðeins hin helztu þeirra,
og á þeim jörðum eingöngu, sem hér eru áður nefndar, eftir sömu
hringferð:
1. Þorleifsstaðir. Tvíbýli var þar 1738 og 1833—46. (Árfærð
hér og á fleiri stöðum aðeins eftir því, sem víst er).
2. Stóra-Hof. Tvíbýli 1703, 1711, 1827 og 1860—1886 síðast.
3. Gröf. Árið 1711 og lengi síðar tvíbýli. — Lítið rannsakað
eins og víðar.
4. Grafarbakki. Tvíbýli þar 1733, en óvíst að öðru leyti.
5. Gaddstaðir, sömuleiðis 1733, 1788, 1791-1800 og 1830-35.
6. Brekkur. Tvíbýli var þar, 1752, 1788, 1801, 1833 og 1870—
76 síðast.
7. Bolholt. Tvíbýli þar 1848—62.
8. Steinkross. Árið 1711 var þar tvíbýli, en hversu lengi er óvíst,
eins og alls staðar á þessum nefndu stöðum.