Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1953, Page 87
SKYRSLUR
/. Aðalfundur 1952.
Hann var haldinn í sýningasal Þjóðminjasafnsins 13. des. og hófst kl.
5 síðdegis. Formaður setti fundinn og skýrði frá störfum félagsins á árinu,
sem einkum voru fólgin í útgáfu árbókar félagsins fyrir árin 1951 og
1952. Kvað hann bókina nú komna út fyrir nokkru og hafa verið senda
öllum félagsmönnum. Skýrði hann svo frá, að prentkostnaður væri nú það
mikill, að til vandræða horfði fyrir félagið.
Þessu næst las formaður upp reikning yfir tekjur og gjöld félagsins
árið 1951, svo sem hann er prentaður í árbók þess 1951 og 1952 (bls.
168).
Því næst var kosinn fulltrúi í stað Vigfúsar Guðmundssonar, er látizt
hafði á þessu ári. Minntist formaður Vigfúsar og hinna miklu starfa hans
í þágu íslenzkrar fornleifafræði, og fór með minningarkvæði um hann, er
Snæbjörn Jónsson hafði ort og sent fundinum. í stað Vigfúsar var kosinn
Bergsteinn Kristjánsson (til aðalfundar 1955).
Önnur mál voru ekki tekin fyrir, og sleit formaður fundi, er fundarbók
hafði verið lesin upp og samþykkt.